Viðskipti innlent

Gerviverktaka hjá Þjóðskrá Íslands stöðvuð

Þjóðskrá Íslands (áður Fasteignaskrá Íslands) hefur með formlegum hætti brugðist við ábendingum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2010. Ábendingarnar vörðuðu verktakagreiðslur til einkahlutafélags sem falið var að stýra tölvudeild Fasteignaskrár.

Að mati Ríkisendurskoðunar bar þetta fyrirkomulag ýmis merki svokallaðrar gerviverktöku. Eigandi félagsins var sama ár ráðinn yfirmaður tölvudeildar Fasteignaskrár. Ríkisendurskoðun gerir athugasemd við háar launagreiðslur til hans á árunum 2011 ̶ 2012.

Fjallað er um málið á vefsíðu Ríkisendurskoðunar. Þar segir að Í mars 2010 beindi Ríkisendurskoðun tveimur ábendingum til Fasteignaskrár Íslands (nú Þjóðskrá Íslands) vegna verktakagreiðslna stofnunarinnar til tiltekins einkahlutafélags. Samkvæmt verksamningi skyldi félagið m.a. veita tölvudeild stofnunarinnar forstöðu, stýra rekstri gagnagrunna og tölvukerfa hennar og annast ýmsa áætlanagerð í þessu sambandi.

Að mati Ríkisendurskoðunar bar fyrirkomulagið ýmis merki svokallaðrar gerviverktöku en í henni felst að einstaklingur þiggur verktakagreiðslur fyrir störf sem í eðli sínu eru venjuleg launavinna. Greiðslur samkvæmt samningnum runnu þannig til nafngreinds einstaklings sem hafði aðstöðu hjá Fasteignaskrá, aðgang að búnaði stofnunarinnar og naut aðstoðar starfsmanna hennar endurgjaldslaust. Fjárhagsleg ábyrgð hans og áhætta af verkinu var því lítil eða engin.

Ríkisendurskoðun benti á að Fasteignaskrá Íslands bæri að fylgja reglum skattyfirvalda um þann greinarmun sem gerður er á verktöku og launavinnu. Þá bæri ríkisaðilum jafnan að auglýsa laus störf. Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að Fasteignaskrá hafi þegar árið 2010 gert úrbætur vegna þessara ábendinga. Meðal annars hafi fyrrnefndum verksamningi verið sagt upp og starf forstöðumanns tölvudeildar auglýst. Ríkisendurskoðun lítur svo á að með þessu hafi verið brugðist við ábendingunum með formlegum hætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×