Viðskipti innlent

Íbúðaleiga í borginni heldur áfram að hækka

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 122,5 stig í mars s.l. og hækkar um 0,7% frá fyrra mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Þar segir að síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,1%.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×