Aflaverðmæti jókst um 5,5% milli ára í janúar 18. apríl 2013 09:16
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 13,3 milljörðum króna í janúar s.l. samanborið við 12,6 milljarða kr. í janúar í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 696 milljónir kr. eða 5,5% á milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks jókst um 3,5% milli ára og var tæplega 7,7 milljarðar kr. í janúar 2013. Verðmæti þorskafla var um 4,3 milljarðar kr. sem er 3% hærra en í janúar 2012. Aflaverðmæti ýsu nam 1,2 milljörðum kr. og dróst saman um 13,5% en verðmæti karfaaflans nam 1,1 milljarði króna, sem er 23,4% aukning frá janúar 2012. Verðmæti ufsaaflans jókst um 8,8% milli ára og var 506 milljónir í janúar 2013. Verðmæti uppsjávarafla nam tæplega 5 milljörðum króna í janúar 2013, sem er um 10,2% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist af 12,3% aukningu á verðmæti loðnu en nær enginn annar uppsjávarafli veiddist í janúar 2013. Aflaverðmæti flatfisksafla nam 551 milljónum, sem er 7,3% samdráttur frá janúar 2012. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 8 milljörðum króna í janúar 2013 líkt og árið áður. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 4,4% milli ára og var ríflega 1,7 milljarður í janúar 2013. Aflaverðmæti sjófrystingar nam rúmum 3 milljörðum í janúar 2013 sem er 35,3% aukning milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 420 milljónum króna, sem er 5,2% samdráttur frá janúar 2012. Hagstofan hefur endurskoðað bráðabirgðatölur fiskafla ársins 2012. Heildarafli íslenskra skipa var 1.480.472 tonn og aflaverðmætið tæpir 161 milljarðar króna. Þar af var þorskafli 204.755 tonn að verðmæti 49,5 milljarðar króna, ýsuafli 47.768 tonn að verðmæti 12,2 milljarðar króna, síldaraflinn 192.260 tonn að verðmæti 14,6 milljarðar og makrílaflinn 151.943 tonn að verðmæti 14,4 milljarðar króna.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira