Fleiri fréttir

Vilborg í Mentor: Fésbókin getur nýst við nám

"Við getum ekkert lokað á þessar breytingar sem eru að verða í heiminum," segir Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors í nýjasta þætti Klinksins, um þá tilhneigingu sem gætir í menntakerfinu að amast við vefsíðum eins og Fésbókinni og öðrum slíkum.

Ferðamönnum fjölgar um 17% milli ára

Samtals komu 762 þúsund farþegar til landsins um Keflavíkurflugvöll í janúar-október í ár samanborið við 651 þúsund farþega í janúar-október í fyrra. Þetta er aukning um 17,1% milli ára.

Kreditkortavelta heimilanna jókst um 9,7% milli ára

Kreditkortavelta heimila jókst um 9,7% í janúar–september í ár miðað við janúar–september í fyrra. Debetkortavelta jókst um 6,4% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar–september í ár um 8,1% miðað við janúar–september í fyrra.

Vöruskiptin hagstæð um 15,5 milljarða í september

Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 62,5 milljarða króna og inn fyrir 46,9 milljarða króna. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofu Íslands en hún birti í morgun tölur um vöruskiptajöfnuðinn.

Áfangastöðum fækkar um átta næsta sumar

Iceland Express mun fækka áfangastöðum sínum úr 24 í 16 á næsta ári. Sætaframboð fer úr tæplega 600 þúsund í ár og niður fyrir 500 þúsund á því næsta. Stefna félagsins hafði verið að vaxa enn meira, upp í 750-800 þúsund manns á næsta ári.

Forstjóri Bakkavarar fékk 112 milljónir í laun í fyrra

Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar Group, fékk um 9,3 milljónir króna á mánuði í laun í fyrra. Félagið gerði nauðasamning við kröfuhafa vorið 2010. Ekki er búist við því að það geti greitt skuld sína.

Tvær hópuppsagnir kostuðu 67 vinnuna í október

Vinnumálastofnun hefur tilkynnt um tvær hópuppsagnir í október þar sem samtals 67 manns misstu vinnuna. Þetta eru töluvert færri uppsagnir en í október í fyrra þegar 187 manns misstu vinnuna í fimm hópuppsögnum.

Bræðurnir að tapa eign sinni í Bakkavör

Framlegð Bakkavarar Group er ekki í takt við það sem nauðasamningur þess gerði ráð fyrir. Kröfuhafar, íslenskir bankar og lífeyrissjóðir, telja litlar sem engar líkur á að skuld við þá verði greidd. Þeir muni því breyta kröfum í hlutafé.

Ný stjórn Bankasýslunnar skipuð

Guðrún Ragnarsdóttir hefur verið skipuð stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, Jón Sigurðsson verður varaformaður og Hulda Dóra Styrmisdóttir mun jafnframt sitja í stjórninni. Egill Tryggvason verður varamaður.

Tæplega 2.500 íbúðir í höndum Íbúðalánasjóðs og banka

Í lok september síðastliðins áttu Íbúðalánasjóður (ÍLS), bankar og eignarhaldsfélög í þeirra eigu 2.482 íbúðir á landinu öllu. Flestar íbúðirnar sem þeir hafa leyst til sín, 1.026 talsins, eru á höfuðborgarsvæðinu. Þá eru 462 íbúðir á Suðurnesjunum, eða 18,6% af öllum íbúðum í eigu þeirra. Alls eru 4,7% allra íbúða á svæðinu í eigu lánafyrirtækja. Á Suðurnesjum búa 6,6% landsmanna. Þetta kemur fram í Peningamálum Seðlabanka Íslands sem birt voru í gær.

FME segir að MP banki megi eiga Alfa

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur komist að þeirri niðurstöðu að MP banki hf. sé hæfur til að fara með virkan eignarhlut í Alfa Verðbréfum hf.

Kaupa hlut í Högum fyrir 1300 milljónir

Búvellir, eignarhaldsfélag sem er að mestu leyti í eigu Árna Haukssonar og Hallbjörns Karlssonar, hefur ákveðið að nýta sér kauprétt á 10% hlut í Högum, sem rekur Bónus, Hagkaup og fleiri verslanir. Markaðsverð hlutarins er um 1,3 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar í dag, en Fréttablaðið sagði frá því í gær að von væri á að þessi viðskipti myndu eiga sér stað.

Iceland Express ætlar að kaupa flugflota

Iceland Express (IE) hefur sótt um flugrekstrarleyfi til Flugmálastjórnar Íslands og hyggst kaupa nýjan flota af flugvélum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Gistinóttum fjölgar

Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 136.400 samanborið við 113.900 í september í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Gistinætur erlendra gesta voru um 80% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í september og fjölgaði gistinóttum þeirra um 22% frá fyrra ári. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 11% samanborið við september í fyrra. Gistinóttum á hótelum í september fjölgaði á öllum landssvæðum samanborið við september í fyrra.

Furða sig á vaxtahækkun Seðlabankans

Greining Arion banka segir að stýrivaxtahækkun Seðlabankans komi á óvart enda hafa flestir þættir þróast með nokkuð jákvæðum hætti frá því að stýrivextir voru hækkaðir í ágúst.

Fjórir milljarðar afskrifaðir hjá Brimborg

Bílaumboðið Brimborg fékk tæpa fjóra milljarða króna afskrifaða á síðasta ári án þess að gengið væri á hlutafé. Þar af var ríkisbankinn Landsbankinn með sjö hundruð milljónir. Samningar við birgja voru við núverandi hluthafa og því hefðu bankarnir séð fram á að missa umboð tækju þeir fyrirtækið yfir.

Ólafur Ólafsson yfirheyrður hjá sérstökum saksóknara

Ólafur Ólafsson, sem var annar stærsti hluthafi Kaupþings fyrir hrun, mætti samkvæmt heimildum fréttastofu í yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í morgun í tengslum við rannsókn á kaupum sjeik Al-Thani á hlutabréfum í Kaupþingi í september 2008.

Ekkert útilokar kennitölusöfnun við söluna á Högum

Bankarnir eru tregir til að selja eignir í gegnum Kauphöllina. Forstjóri Kauphallarinnar vonast til að salan á Högum marki tímamót en 30 prósenta hlutur verður seldur í desember og býðst almenningi að kaupa hlutabréf fyrir hundrað þúsund krónur að lágmarki. Ekkert í gildandi reglum útilokar svokallaða kennitölusöfnun þegar hlutabréfin í Högum verða seld.

Milljarðaáform Nubos næsta sumar í óvissu

Tækifæri til að setja af stað mörghundruð milljóna króna hönnunarvinnu fyrir Kínverjann Nubo í vetur er að renna úr greipum þar sem engin svör fást frá stjórnvöldum um hvort honum verði leyft að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Áform um að hefja tíu milljarða króna framkvæmdir næsta sumar eru einnig í uppnámi.

14 milljarðar týnast í svartri vinnu

Umfang svartrar atvinnustarfsemi hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi er umtalsvert ef marka má niðurstöður samstarfsverkefnis ASÍ, Samtaka atvinnulífsins og Ríkisskattstjóra. Að meðaltali er umfangið um 12 prósent samkvæmt rannsókninni. „Útreikningar benda til þess að glötuð verðmæti vegna undanskota nemi ríflega 13.8 milljörðum króna og er gert ráð fyrir að þar af séu glötuð réttindi launafólks tæplega átta milljarðar króna,“ segir í tilkynningu frá Ríkisskattstjóra.

Forseti ASÍ gáttaður á stýrivaxtahækkun Seðlabankans

Gylfi Arnbjörnsson forseti er ómyrkur í máli vegna stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. "Ég er algerlega gáttaður á þessari ákvörðun,“ segir Gylfi. "Heimurinn glímir við enn eina fjármálakreppuna og stjórnmálamenn og seðlabankar um allan heim eru að reyna skapa forsendur til að efnahagslífið rétti úr kútnum, m.a. með því að halda stýrivöxtum lágum.

Gátu ekki sýnt fram á tilvist samningsins

Sýslumaður hafnar beiðni Iceland Express um lögbann á störf Matthíasar Imsland fyrir WOW Air. Gátu ekki sýnt fram á að Matthías hefði undirritað samning með samkeppnisákvæði. Lögmaður IE segist nú hafa fundið samninginn.

Veruleg auking á hlutabréfaviðskiptum í Kauphöllinni

Heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni námu 9,7 milljörðum kr. eða 462 milljónum kr. á dag í október. Þessu til samanburðar nam veltan með hlutabréf í september 1.532 milljónum eða 70 milljónum á dag.

Peningamál: Staðfesting á efnahagsbata

"Nýjustu hagtölur og spá Seðlabankans staðfesta að efnahagsbatinn hefur haldið áfram, þrátt fyrir að það dragi úr hagvexti í heiminum og óvissa hafi aukist.“ Þetta kemur fram í nýjustu Peningamálum Seðlabanka Íslands, sem komu út í dag. Eins og greint var frá í morgun ákvað Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að hækka vexti.

Skuldatryggingaálag Íslands hækkar að nýju

Skuldatryggingaálag á Ríkissjóð Íslands hefur hækkað nokkuð á síðustu dögum og stendur 300 punktum (3,00%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni. Á árinu hefur álagið farið hæst upp í 330 punkta sem var í byrjun október en lægst niður í 200 punkta sem var snemma í júní. Að jafnaði hefur skuldatryggingaálag ríkissjóðs verið 260 punktar á árinu.

Viðræðum um söluna á Icelandic Group miðar vel

Samningaviðræðum kanadíska fiskframleiðandans High Liner Foods og Framtakssjóðs Íslands um kaupin á eignum Icelandic Group í Bandaríkjunum og Asíu miðað vel, að því er segir á vefsíðunni fis.com.

Hagar fara á markað í desember

Stjórn Haga hf. hefur óskað eftir að hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland. Stefnt er að því að viðskipti með hluti í félaginu hefjist í Kauphöllinni í desember næstkomandi, í kjölfar almenns hlutafjárútboðs. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur umsjón með útboðinu og skráningu félagsins í Kauphöll.

Erna Gísladóttir að eignast B&L og Ingvar Helgason

Eigendur BLIH ehf., móðurfélags Ingvars Helgasonar og B&L, hafa ákveðið að taka tilboði Ernu Gísladóttur, fyrrverandi forstjóra B&L, í allt hlutafé í fyrirtækinu. Framkvæmdastjóri Miðengis, dótturfélags Íslandsbanka, segist vongóður um að gengið verði frá sölunni á næstu dögum.

Innbrot í persónuleg gögn brot á lögum um persónuvernd

"Þessi niðurstaða er í fullu samræmi við okkar væntingar, enda lá alltaf ljóst fyrir að megintilgangur lögbannskröfunnar var að skaða orðspor skjólstæðings míns, fremur en nokkuð annað,“ segir í yfirlýsingu frá Jóhannesi Árnasyni hdl., verjanda Matthíasar Imsland, vegna þess að sýslumaðurinn í Reykjavík hefur hafnað lögbannskröfu Iceland Express.

Beiðni Iceland Express um lögbann var hafnað

Sýslumaðurinn í Reykjavík hafnaði í dag beiðni Iceland Express um lögbann vegna Matthíasar Imsland fyrrverandi forstjóra félagsins. Félagið vildi lögbann á að Matthías starfi með nýju félagi í flugrekstri í samkeppni við Iceland Express næstu 30 mánuði en hann er á meðal þeirra sem standa að flugfélaginu WOW. „Matthías er enn á launum á uppsagnarfresti frá Iceland Express, var síðast greitt laun upp á aðra milljón króna um þessi mánaðamót, er með síma, fartölvu og heimatölvu frá fyrirtækinu og fær að auki greiddan bifreiðastyrk. Uppsagnarfrestur hans rennur ekki út fyrr en 1. apríl 2012,“ segir í yfirlýsingu frá Iceland Express. Félagið ætlar að kæra úrskurðinn til Héraðsdóms Reykjavíkur og fara fram á að honum verði hrundið.

Eiríkur Guðnason látinn

Eiríkur Guðnason, fyrrverandi seðlabankastjóri er látinn, 66 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein. Hann lést á Landspítalanum í gær.

Forstjóri Alcoa í yfirheyrslu fyrir þingnefnd um Bakka

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, sat fyrir svörum atvinnuveganefndar Alþingis í morgun um ástæður þess að fyrirtækið féll frá áformum um að reisa álver á Bakka. Hér á Vísisvefnum má hlýða á spurningarnar sem alþingismenn lögðu fram og svörin sem Alcoa-forstjórinn gaf. Fyrsta spurningin sem heyrist er frá Jóni Gunnarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um það misræmi sem komið hefði fram í svörum Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, á opinberum vettvangi, annars vegar í marsmánuði sl. þegar hann sagði alvöruviðræður í gangi við Alcoa, og hins vegar nú í október, þegar hann sagði að viðræður hefðu verið á frumstigi.

Mentor fékk nýsköpunarverðlaunin

Fyrirtækið Mentor, sem búið framleiðir upplýsingakerfi fyrir skóla, fékk afhent nýsköpunarverðlaunin í morgun. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, afhenti Vilborgu Einarsdóttur, framkvæmdastjóra Mentor, verðlaunin á nýsköpunarþingi sem haldið var á Grand Hótel.

Skattar lækka á tónlist af netinu í dag

Breyting á lögum um virðisaukaskatt tók gildi í dag og nú er sami skattur á sölu tónlistar hvort sem hún er keypt á stafrænu formi á netinu eða á geisladisk. Þetta eru nokkur tíðindi en fyrir breytinguna var fullur virðisaukaskattur, eða 25,5 prósent á stafræna forminu en aðeins sjö prósent á geisladiskum.

Þarf að hugsa 20 ár fram í tímann

„Það þarf að hugsa 20 ár fram í tímann, ekki tvö ár,“ sagði Stefanía Karlsdóttir, eigandi Íslenskrar matorku á Reykjanesi, í ávarpi sínu á Nýsköpunarþingi Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóðs. Þingið fer fram á Grand hótel og hófst á ávarpi Katrínar Júlíusdóttur, innanríkisráðherra.

Árborg borgar FME 400.000 í sátt

Fjármálaeftirlitið (FME) og sveitarfélagið Árborg hafa gert með sér sátt vegna brots sveitarfélagsins á lögum um verðbréfaviðskipti. Með sáttinni er Árborg gert að borga 400.000 krónur fyrir brotið.

Sjá næstu 50 fréttir