Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. október 2026 11:00 Framkvæmdastjórarnir þrír ásamt forstjóra Dranga, Auði Daníelsdóttur. Sigríður Pálsdóttir Drangar hefur ráðið nýja framkvæmdastjóra þriggja dótturfélaga, Samkaupa, Orkunnar og Lyfjavals. Tveir koma frá Nóa Siríus og Bauhaus en sá þriðji er hækkaður í tign. Auður Daníelsdóttir forstjóri Dranga hefur fram að þessu jafnframt stýrt rekstri Samkaupa og Orkunnar. Nú er orðin breyting þar á.
Fram kemur í tilkynningu frá Dröngum að Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, sem hætti störfum sem forstjóri Nóa Siríus, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samkaupa, móðurfélags verslunarkeðjanna Nettó, SPAR, Prís, Kjörbúðarinnar, Krambúðarinnar, Heimkaupa og 10-11. Hún gegndi starfi forstjóra Nóa Síríus frá árinu 2023. Áður starfaði hún hjá Íslandsbanka sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs frá árinu 2017. Sigríður Hrefna er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og með MBA-gráðu frá Copenhagen Business School. Hún hefur víðtæka leiðtogareynslu í ýmsum atvinnugreinum bæði hérlendis og erlendis. „Mikil uppbygging hefur átt sér stað í rekstri félaga Samkaupa. Þar má meðal annars nefna nýja ásýnd Nettó sem mælist vel hjá viðskiptavinum. Prís fagnaði nýlega tveggja ára afmæli sínu og hefur frá opnun mælst ódýrasta verslunin samkvæmt athugunum ASÍ,“ segir í tilkynningu frá Dröngum. „Jafnframt hefur fimm Krambúðum hefur verið breytt í SPAR-verslanir með tilkomu nýs viðskiptasamnings við alþjóðlegu verslunarkeðjuna. Með samningnum hefur SPAR getað lækkað verð í verslunum ásamt því að styrkja bæði vöruúrval og verslunarupplifun viðskiptavina.“ Hörður framkvæmdastjóri Orkunnar Hörður Ingi Þórbjörnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Orkunnar. Hann hefur starfað hjá Orkunni frá árinu 2021 sem mannauðsstjóri og tók sæti í framkvæmdastjórn 2025 sem forstöðumaður rekstrar og mannauðs. Hörður stundaði nám í alþjóðlegri markaðsfræði í Kaupmannahöfn. „Orkan er leiðandi fyrirtæki á eldsneytis- og hraðhleðslumarkaði sem rekur 75 stöðvar um allt land þar sem markmiðið er að bjóða lægsta verðið í öllum landshlutum. Áhersla Orkunnar er á gott aðgengi viðskiptavina að hreinum og snyrtilegum stöðvum þar sem búnaðurinn virkar vel,“ segir í tilkynningunni. Ásgeir framkvæmdastjóri Lyfjavals Ásgeir Bachmann hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Lyfjavals. Hann var áður framkvæmdastjóri Bauhaus þar sem hann starfaði frá árinu 2014. Ásgeir er viðskiptafræðimenntaður frá Háskólanum á Bifröst og hefur víðtæka þekkingu og reynslu af smásölumarkaði. „Lyfjaval er vaxandi fyrirtæki í smásölu lyfja sem leggur áherslu á fjölbreytta og aðgengilega þjónustu við viðskiptavini, m.a. í bílalúgum og með sólarhringsopnun,“ segir í tilkynningunni. Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, segir frábært að fá öfluga stjórnendur með víðtæka reynslu og þekkingu úr viðskiptalífinu til að leiða áframhaldandi þróun og uppbyggingu rekstrarfélaganna. „Samkaup er á spennandi tímamótum og er það okkur mikið gleðiefni að fá Sigríði Hrefnu til að stýra félaginu í áframhaldandi sókn á dagvörumarkaði. Hörður þekkir rekstur Orkunnar vel og nýtur trausts okkar til að leiða áframhaldandi vöxt félagsins. Þá er Ásgeir sömuleiðis mikilvægur liðsauki fyrir Lyfjaval til að leiða uppbyggingu og þróun þeirrar þjónustu sem í boði er. Drangar er eitt stærsta verslunar- og þjónustufyrirtæki landsins. Sameiginlegt markmið okkar og rekstrarfélaganna er að þróa heildstæðar lausnir sem mæta þörfum viðskiptavina. Það verður ánægjulegt að vinna með nýju og öflugu stjórnendateymi að því að efla reksturinn og þróa þjónustuna enn frekar. Við erum rétt að byrja.“ Drangar er móðurfélag rekstrarfélaga sem starfa á smásölumarkaði um allt land. Félagið sameinar nokkur vörumerki undir einn hatt. Þar má nefna Nettó, Prís, Spar, 10-11, handverksbakaríið Brauð & Co., Orkuna, Löður og lyfjaverslanir Lyfjavals. Þjónustustöðvar Dranga eru yfir 150 um allt land og starfsmannafjöldinn um 1600 manns að því er segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Matvöruverslun Bensín og olía Lyf Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira