Viðskipti innlent

Kreditkortavelta heimilanna jókst um 9,7% milli ára

Kreditkortavelta heimila jókst um 9,7% í janúar–september í ár miðað við janúar–september í fyrra. Debetkortavelta jókst um 6,4% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar–september í ár um 8,1% miðað við janúar–september í fyrra.

Þetta kemur fram í hagvísum Hagstofunnar. Þar segir að greiðslukortavelta Íslendinga erlendis jókst um 22% en erlend greiðslukortavelta hérlendis jókst um 14,6% í janúar–september 2011 miðað við sömu mánuði árið áður.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 3,6% (miðað við vísitöluna í janúar–september) sem veldur 4,3% raunhækkun á innlendri greiðslukortaveltu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×