Viðskipti innlent

Milljarðaáform Nubos næsta sumar í óvissu

Tækifæri til að setja af stað mörghundruð milljóna króna hönnunarvinnu fyrir Kínverjann Nubo í vetur er að renna úr greipum þar sem engin svör fást frá stjórnvöldum um hvort honum verði leyft að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Áform um að hefja tíu milljarða króna framkvæmdir næsta sumar eru einnig í uppnámi.

Rúmir tveir mánuðir eru nú liðnir frá því Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra barst formlegt erindi frá fyrirtæki Huangs Nubo um undanþágu til að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum þar sem hann áformar tíu milljarða króna uppbyggingu lúxushótels. Að sögn Halldórs Jóhannssonar arkitekts, talsmanns Nubos, hefur ekkert svar borist ennþá frá ráðuneytinu, aðeins fyrirspurn um nánari skýringar, sem var svarað fyrir tæpum mánuði.

Halldór segir að Nubo hafi ætlað að hafa hraðar hendur og vonast til að hefja framkvæmdir á Grímsstöðum næsta sumar. Þannig stóð til í síðasta mánuði að senda sérfræðinga til Íslands og setja af stað samstarfsteymi með íslenskum hönnuðum og náttúrufræðingum. Ætlunin var að fara í undirbúningsferðir til Norðausturlands í október áður en harðasti veturinn og skammdegið gengi í garð svo unnt væri að nýta veturinn til hönnunar.

Halldór segir að ef ekki berist svar mjög fljótlega sé ljóst að tækifæri til að setja í gang undirbúnings- og hönnunarvinnu í vetur sé fyrir bí, - vinna sem hefði nýst íslenskum náttúrfræðingum, arkitektum, tæknifræðingum og verkfræðingum. Hönnun í vetur, verkefni upp á mörghundruð milljónir króna, jafnvel yfir milljarð, sé forsenda þess að byggingarframkvæmdir geti hafist næsta sumar. Þau áform, segir Halldór, séu nú uppnámi og hætta á því að framkvæmdum geti seinkað um heilt ár, verði á annað borð fallist á jarðakaup Nubos.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×