Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forsetinn segir írskan brandara dæmi um hroka Breta Haft er Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands að írskur brandari sé aðeins nýlegt dæmi um hroka Breta. Þetta kemur fram í blaðinu Irsh Times og vitnað er í ummælin á Reuters. 29.1.2010 08:13
Þingnefnd kallar Landsbankamenn inn á teppið Nú klukkan níu hefst fundur í efnahags- og skattnefnd Alþingis. Þar á að ræða fyrirhugaðar hækkanir Landsbankans á vaxtaálögum sjávarútvegsfyrirtækja. 29.1.2010 08:03
Samkeppniseftirlitið fór í húsleit hjá Íslandspósti Flokkur manna frá Samkeppniseftirlitinu fór og gerði húsleit hjá Íslandspósti í gærmorgun. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, staðfesti að húsleitin væri liður í rannsókn á hugsanlegri misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Hann segir þessa rannsókn standa yfir og ekki sé á þessu stigi hægt að áætla hvenær henni ljúki. 28.1.2010 19:48
Miklar breytingar í fjármálageiranum með nýju frumvarpi Viðskiptaráðherra boðar miklar breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki þar sem tekið verður á krosseignarhaldi, starfslokasamningum, lánveitingum til tengdra aðila og lánum með veði í hlutabréfum. 28.1.2010 19:30
Kannast ekkert við að eiga Þingvelli Skilanefnd og slitastjórn Kaupþings hafa ekki hugmynd um hver stendur að baki kröfu í þrotabúið upp á tæpa 140 milljarða króna. Félagið sem gerir kröfuna er erlent en er kennt við Þingvelli. Kona, sem er skráð fyrir félagi með sama nafn í New York, hefur aldrei heyrt á það minnst og kannast ekkert við Ísland. 28.1.2010 19:26
Mjög rólegt á skuldabréfamarkaðinum Mjög rólegt var á skuldabréfamarkaðinum í dag enda menn væntanlega að endurmeta stöðuna eftir lætin sem hafa verið fyrripart vikunnar. 28.1.2010 15:41
Metfjöldi: Yfir 1.100 manns á Microsoft ráðstefnu Metfjöldi sótti ráðstefnuna „Best of TechEd & Convergence 2010" sem haldin var í Reykjavík dagana 26. og 27. janúar. Alls komu 1.134 gestir sem gerir þetta að fjölmennustu ráðstefnu sem haldin hefur verið í upplýsingatækni hér á landi. Fyrra metið var sett á sömu ráðstefnu á síðasta ári en þá voru gestir 850 talsins. 28.1.2010 14:02
Héraðsdómur fellst á beiðni Landic Property um gjaldþrot Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á beiðni Landic Property hf. um að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. 28.1.2010 13:36
Gjaldþrota Magnús skal greiða einn og hálfan milljarð Athafnamaðurinn Magnús Þorsteinsson, sem nú er búsettur í Rússlandi, var í morgun dæmdur til þess að greiða einn og hálfan milljarð til Straums Fjárfestingabanka vegna láns frá bankanum til eignarhaldsfélagsins BOM ehf. 28.1.2010 12:28
Gjaldþrot fyrirtækja umtalsvert færri en nýskráningar Fjöldi gjaldþrota fyrirtækja á árinu 2009 var umtalsvert færri en nýskráningarnar þó svo að gjaldþrotin hafi ekki verið fleiri í a.m.k. tvo áratugi, eða eins langt aftur og tölur Hagstofunnar ná. 28.1.2010 12:09
Töluverð lækkun húsnæðisverðs enn í pípunum Greining Íslandsbanka segir að töluverð lækkun húsnæðisverðs sé enn í pípunum. Byggir greiningin þetta álit sitt á nýrri efnahagsspá Seðlabankans sem kynnt var í gærdag. 28.1.2010 11:05
Föroya Banki dregur úr væntingum um hagnað Föroya Banki hefur dregið úr væntinum sínum um hagnað á árinu 2009. Áður hefur bankinn áætlað að hagnaðurinn, fyrir skatta, yrði á bilinu 165 til 195 milljónir danskra kr. Nú telur bankinn að hagnaðurinn muni nema 150 til 160 milljónum danskra kr. eða allt að rúmlega 3,8 milljörðum kr. 28.1.2010 09:33
Nýskráningum hf. og ehf. félaga fjölgaði milli ára Nýskráð hluta- og einkahlutafélög voru 2.642 á síðasta ári og fjölgaði um tæp 3% frá árinu 2008 þegar 2.571 ný félög voru skráð. 28.1.2010 09:01
Samskip er komið í eigu Ólafs Ólafssonar SMT (Samskip Management Team) Partners, sem er félag í eigu Ólafs Ólafssonar kaupsýslumanns og stjórnenda Samskipa, hefur eignast tæp 90% hlut í Samskipum með því að leggja til aukið hlutafé. 28.1.2010 08:46
Eignir lánafyrirtækja lækka mikið milli mánaða Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.294,8 milljörðum kr. í lok desember og lækkuðu um 8,1 milljarða kr. milli mánaða. Innstæður í Seðlabankanum hækkuðu um tæpa 5,0 milljarða kr. í mánuðinum og námu um 35,0 milljörðum kr. í lok desember. 28.1.2010 08:39
Deilt um einn milljarð til Jóns Skiptastjóri þrotabús Fons vill rifta fjölda samninga upp á níu milljarða króna. 28.1.2010 06:00
Seðlabankinn lækkar vexti Seðlabankinn kynnti í gær lækkun vaxta um sem nemur hálfu prósentustigi. Ef ekki hefði verið fyrir óvissu um afdrif Icesave þá segir seðlabankastjóri að lækkun hefði verið meiri. Afnám gjaldeyrishafta verður að bíða. 28.1.2010 06:00
Tuttugu kærur í fjórum málum Seðlabankinn hefur nýlega kært fjögur mál vegna meintra brota tuttugu aðila á gjaldeyrisreglum til Fjármálaeftirlitsins. Seðlabankinn veitir ekki upplýsingar um fjárhæðir eða tegund viðskipta í þessum málum, að sögn Ingibjargar Guðbjartsdóttur, yfirmanns gjaldeyriseftirlits Seðlabankans. 28.1.2010 03:00
Eignarhald banka ógn við samkeppni Bitur reynsla sýnir að bankar taka eingöngu ákvarðanir sem stuðla að hámarkshagnaði hverju sinni, án tillits til afleiðinga. Bönkunum er því ekki treystandi til að gæta að samkeppnismarkmiðum. 28.1.2010 03:00
Pálmi Haralds: Milljarðurinn var „fjárfestingarsamningur“ Pálmi Haraldsson, kenndur við Fons, hefur sent frá sér tilkynningu vegna frétta þess efnis að skiptastjóri þrotabús Fons vilji láta rifta alls ellefu samningum upp á samtals níu milljarða króna. Á meðal samninga sem skiptastjórinn vill rifta eru greiðslur upp á samtals einn milljarð króna sem lagður var inn á persónulegan reikning Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. 27.1.2010 21:02
Milljarðurinn fór til Jóns Ásgeirs í tveimur greiðslum Milljarðurinn sem Jón Ásgeir Jóhannesson fékk frá Fons, eignarhaldsfélagi Pálma Haraldssonar, var greiddur í tveimur færslum síðla árs 2008, um það leyti sem íslenska bankakerfið riðaði til falls. 27.1.2010 20:28
Milljarður frá Fons til Jóns Ásgeirs Á meðal þeirra samninga sem skiptastjóri í þrotabúi Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar, vill rifta er greiðsla upp á einn milljarð króna sem greiddur var inn á reikning Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sem gjöf eða lán. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 27.1.2010 19:50
Ágúst Bakkabróðir: Ekki farið fram á farbann og engin lögbrot verið framin Yfirheyrslum yfir Ágústi Guðmundssyni vegna málefna Exista er lokið í bili. Fréttastofa náði tali af honum nú á sjöunda tímanum þegar hann var á leið úr yfirheyrslu. 27.1.2010 18:47
Skiptastjóri Fons vill rifta ellefu samningum Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar, vill rifta allls 11 samningum um lán og arðgreiðslur út úr félaginu síðustu tvö árin fyrir bankahrun. Um er að ræða samninga og greiðslur upp á samtals níu milljarða króna. Þetta kom fram á fundi með kröfuhöfum Fons í dag. 27.1.2010 18:35
Óvíst um farbann yfir Lýði og Ágústi Sérstökum saksóknara hefur orðið ágengt í rannsókn sinni á málefnum Existu í dag, en yfirheyrslur standa enn yfir. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, vill ekki tjá sig um hvort að bræðurnir Lýður og Ágúst, sem eiga heimili í Bretlandi, hafi verið úrskurðaðir í farbann, en þeir eru báðir búsettir í Bretlandi og eiga þar lögheimili. 27.1.2010 18:32
FME kemur á framfæri upplýsingum um Sjóvá Fjárfestingar Sjóvár Almennra trygginga hf. og lánveitingar hafa verið til ítarlegrar umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu. Vegna rannsóknarhagsmuna og þagnarskyldu getur Fjármálaeftirlitið (FME) ekki tekið afstöðu til hennar en vill þó koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. 27.1.2010 15:12
Fræ ársins veitt í fyrsta sinn Hugmyndir Ingólfs Harðarsonar, flugvirkja og rafeindavirkja, og Jóhannesar Loftssonar, efnaverkfræðings og byggingaverkfræðings, eru Fræ ársins 2010. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík og formaður dómnefndar, tilkynnti um verðlaunin við hátíðlega athöfn í HR í dag og Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital, afhenti verðlaunin. 27.1.2010 15:07
Engar athugasemdir við samruna Íslandsbanka og GGE Samkeppniseftirlitið gerir engar athugsemdir við samruna Íslandsbanka og Geysi Green Energy (GGE). Íslandsbanki hefur nú skipað alla stjórnarmenn GGE. 27.1.2010 13:55
Fjárlagahallinn hærri en Icesave Fjárlagahalli ríkissjóðs árin 2009-2012 er áætlaður 350 milljarðar króna, sem er 50 milljörðum króna hærra en áætlað er að íslenska ríkið þurfi að taka á sig vegna Icesave. Opinber útgjöld á Íslandi eru nú þau hæstu meðal OECD-ríkja. 27.1.2010 13:30
Segir höfnun Icesave draga úr líkum á greiðslufalli Greinandi hjá fjármálaþjónustunni Gerson Lehrman Group segir að fari svo að Icesave frumvarpinu verði hafnað í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu muni það draga úr líkum á greiðslufalli hjá ríkissjóði. 27.1.2010 13:13
Már: Ákvörðun forsetans dró úr vaxtalækkun Már Guðmundsson seðlabankanstjóri segir að ákvörðun forseta Íslands um að vísa Icesavemálinu til þjóðaratkvæðagreiðslu hafi dregið úr umfangi vaxtalækkunarinnar núna. „Þetta er augljóst," segir seðlabankastjóri. 27.1.2010 11:40
Efnahagsbata á Íslandi seinkar um einn ársfjórðung Efnahagsbatanum seinkar um einn ársfjórðung frá síðustu spá Seðlabankans. Árstíðarleiðréttur ársfjórðungslegur hagvöxtur verður jákvæður á öðrum fjórðungi þessa árs. Gert er ráð fyrir meiri samdrætti landsframleiðslu í ár en í síðustu Peningamálum, eða 3,4% í stað 2,4%. 27.1.2010 11:26
Peningamál: Efnahagshorfur svipaðar en óvissa eykst Í meginatriðum eru efnahagshorfur svipaðar og í nóvember. Samdrátturinn á síðasta ári var minni en áður var talið en á móti verður hann meiri á þessu ári. 27.1.2010 11:17
Stöðugt gengi og minni verðbólga á bak við vaxtalækkun Stöðugt gengi og minnkandi verðbólga er ástæðan fyrir stýrivaxtalækkun peningastefnunefndar Seðlabankans. Þetta kemur fram í yfirlýsingu nefndarinnar sem Már Guðmundsson seðlabankastjóri las upp á blaðamannafundi í Seðlabankanum sem nú stendur yfir. 27.1.2010 11:10
IMC á Íslandi semur við Huawei um farsímakerfi IMC Ísland ehf hefur undirritað samning við Huawei einn af leiðandi framleiðendum í heiminum á fjarskiptabúnaði, um kaup á annarar kynslóðar GPRS/EDGE farsímakerfi. Um er að ræða afar fullkominn og afkastamikinn búnað sem hægt er að uppfæra þannig að hann getur þjónustað alla íslenska farsímanotendur og gott betur. 27.1.2010 10:52
Skuldabréf Landabankans halda áfram að hækka Skuldabréf Landsbankans halda áfram að hækka og eru í dag skráð á 7% af nafnverði á viðskiptavefnum Keldan.is. Í gærdag var gengi þeirra hinsvegar skráð á 6,5% af nafnverði. 27.1.2010 09:47
Bloomberg: Vaxtalækkun Seðlabankans kom á óvart Erlendir fjölmiðlar voru snöggir að taka við sér og birta ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um lækkun stýrivaxta upp á 0,5 prósentustig. Börsen vitnar í Bloomberg þar sem segir að þessi lækkun hafi komið á óvart. 27.1.2010 09:35
Gylfi: Jákvætt en ég hefði viljað sjá djarfari ákvörðun Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir að stýrivaxtalækkun peningastefnunefndar Seðlabankans sé jákvæð en að hann hefði viljað sjá djarfari ákvörðun. 27.1.2010 09:15
Seðlabankinn lækkar stýrivexti um 0,5 prósentustig Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 8,0%. 27.1.2010 08:59
Sáu bankann sem sparibauk „Þetta var mokstur úr bankanum og sukk,“ segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands og fyrrverandi hluthafi í Glitni. Hann fékk á mánudag afhent gögn frá skilanefnd bankans um lánveitingar til eignarhaldsfélagsins Fons samkvæmt úrskurði Hæstaréttar. 27.1.2010 03:00
Las ekki samninga en gaf út bók um stjórnun Sjóvár Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, sem hefur nú stöðu sakbornings í rannsókn embættis sérstaks saksóknara á málefnum tryggingafélagsins, gaf út bókina „Betrun – Hvernig bæta má stjórnun með því að læra af mistökum,“ haustið 2008. 26.1.2010 19:00
Bankinn afskrifar rúman milljarð Landsbankinn afskrifar rúman milljarð króna þegar Grund kaupir af bankanum 78 þjónustuíbúðir fyrir aldraða á svæðinu austan við Skeifuna síðar í vikunni. Eftir því sem næst verður komist hafa þessar íbúðir - sem metnar voru á tæpa þrjá milljarða fyrir rösku ári - aldrei verið auglýstar opinberlega. 26.1.2010 18:28
Stjórn Landic Property óskar eftir gjaldþrotaskiptum Stjórn Landic Property hf. hefur óskað eftir því að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta við Héraðsdóm Reykjavíkur. 26.1.2010 18:03
Metviðskipti með skuldabréf í dag GBI lækkaði töluvert í dag eða um 0,57% í mikilli veltu um 19,9 milljarða sem er mesta velta ársins 2010. 26.1.2010 15:47
Segir verðbólgulækkun því miður vera gálgafrest Áhugaverðasta spurningin nú er sú hvort verðbólgan hafi misst móðinn eða hvort henni hafi bara seinkað aðeins. Því miður eru vísbendingar um að hin lága verðbólga í janúar sé að einhverju leyti gálgafrestur. 26.1.2010 14:58