FME kemur á framfæri upplýsingum um Sjóvá 27. janúar 2010 15:12
Fjárfestingar Sjóvár Almennra trygginga hf. og lánveitingar hafa verið til ítarlegrar umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu. Vegna rannsóknarhagsmuna og þagnarskyldu getur Fjármálaeftirlitið (FME) ekki tekið afstöðu til hennar en vill þó koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri.Þetta segir í fret á vefsíðu FME. Þar segir einnig að fyrri hluta ársins 2008 hóf Fjármálaeftirlitið ítarlega skoðun á fjárhagsstöðu Sjóvár Almennra trygginga hf. eftir að félagið hafði veitt lögbundnar upplýsingar í skýrsluskilum til eftirlitsins vegna reikningsársins 2007. Kallað var eftir ítarlegri upplýsingum úr ársskýrslu 2007 sem og milliuppgjörum á árinu 2008. Í framhaldi af skoðun Fjármálaeftirlitsins var Sjóvá Almennar tryggingar hf. tekið til sértæks eftirlits í október 2008 þar sem félagið uppfyllti ekki skilyrði laga um gjaldþol vátryggingafélags. Skilyrði laganna eru nánar skilgreind í lögum um vátryggingastarfsemi. Þegar vátryggingafélag uppfyllir ekki skilyrði gjaldþols er XI. kafla áðurnefndra laga fylgt og þá sérstaklega 90. gr. laganna. Samkvæmt henni er félagið tekið undir sérstakt eftirlit og þarf að skila með reglubundum hætti, ítarlegum fjárhagslegum upplýsingum þar sem fylgst er með rekstrar- og efnahagsreikningum félagsins. Lögð er áhersla á að félagið geti staðið við skuldbindingar gagnvart vátryggingartökum og vátryggðum. Eins og rakið var í fréttatilkynningu Fjármálaeftirlitsins sem birtist hinn 8. júlí á síðasta ári skipaði eftirlitið sérstakan endurskoðanda til að gera úttekt á ákveðnum þáttum í rekstri og fjárfestingum félagsins í lok árs 2008. Niðurstöðum þessarar úttektar var skilað til Fjármálaeftirlitsins í lok janúar 2009.Framangreind úttekt leiddi í ljós að viðskipti Sjóvár Almennra trygginga hf. og félaga tengdum eigendum voru ekki með eðlilegum hætti auk þess sem skýrsluskilum félagsins til Fjármálaeftirlitsins var verulega ábótavant. Áframhaldandi skoðun á rekstri félagsins og fjárfestingum leiddi til þess að ákveðnum þáttum er vörðuðu starfsemi Sjóvár Almennra trygginga hf. var vísað til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara í mars 2009. Stærsti kröfuhafi félagsins tók yfir rekstur þess í mars 2009. Í kjölfar þess var skipt um stjórn félagsins og nýr forstjóri tók til starfa í júní sl. Aðkoma ríkisvaldsins að endurskipulagningu félagsins er öllum kunn en henni lauk með því að stofnað var nýtt vátryggingafélag er yfirtók vátryggingastofna gamla vátryggingafélagsins.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira