Viðskipti innlent

Kannast ekkert við að eiga Þingvelli

Skilanefnd og slitastjórn Kaupþings hafa ekki hugmynd um hver stendur að baki kröfu í þrotabúið upp á tæpa 140 milljarða króna. Félagið sem gerir kröfuna er erlent en er kennt við Þingvelli. Kona, sem er skráð fyrir félagi með sama nafn í New York, hefur aldrei heyrt á það minnst og kannast ekkert við Ísland.

Alls var rúmlega 28.100 kröfum lýst í Kaupþing og nam heildarfjárhæð þeirra 7316 milljörðum króna. Fjöldi krafna hlaupa á hundruðum milljörðum króna og kröfur vegna skuldabréfa skipta þúsundum. Nokkuð er um að erlend félög, sem bera íslensk nöfn geri slíkar kröfur. Má þar nefna félögin Soltun Partners, Borgartun Associates og Keflavik Associates. Þessi félög gera öll kröfu upp á tæpa 4,4 milljón króna. Félagið Thingvellir Fund á þó hæstu heildarkröfuna af þessum erlendu félögum. Thingvellir gerir 53 kröfur en heildarfjárhæð þeirra nemur rúmum 137 milljörðum króna. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa slitastjórn og skilanefnd engar upplýsingar um hver eða hverjir eiga félagið.

Eftir því sem fréttastofa kemst næst þá er eitt félag sem ber nafnið Thingvellir skráð í New York. Það var stofnað þann 17. apríl árið 2007 og er skráður eigandi Joan Matthews. Hún virtist þó ekki kannast við félagið þegar fréttastofa náði tali af henni.

Hún sagði ennfremur að ekkert félag væri skráð í hennar nafni og hún hefði engin tengsl til Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá slitastjórn er ekki ólíklegt að eigendur Thingvalla hafi keypt skuldabréfin á markaði en þau hafa gengið kaupum og sölu frá bankahruni. Sé það tilfellið er ljóst að eigendur félagsins hafa hagnast verulega því skuldabréfin voru seld með miklum afslætti en ljóst þykir að heimtur verði meiri en talið var í upphafi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×