Viðskipti innlent

Gjaldþrot fyrirtækja umtalsvert færri en nýskráningar

Fjöldi gjaldþrota fyrirtækja á árinu 2009 var umtalsvert færri en nýskráningarnar þó svo að gjaldþrotin hafi ekki verið fleiri í a.m.k. tvo áratugi, eða eins langt aftur og tölur Hagstofunnar ná.

Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Eins og fram kom í morgun birti Hagstofan upplýsingar um að á síðasta ári voru nýskráð 2.642 hluta- og einkahlutafélög sem er tæplega 3% fleiri félög en árið á undan. Er þetta nokkuð mikil fjölgun ef mið er tekið af efnahagsástandinu.

Í Morgunkorninu segir að líkt og undanfarin ár voru flestar nýskráningar í starfsemi eignarhaldsfélaga, leigu atvinnuhúsnæðis og í byggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Þannig voru skráð rúm 300 ný félög í starfsemi eignarhaldsfélaga, 230 í leigu atvinnuhúsnæðis og um 150 í byggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Er þetta um 26% nýskráðra félaga á árinu sem er nokkuð minni en hlutdeild þeirra var á árinu 2008 þegar þriðjungur nýskráðra félaga var í þessum þremur atvinnugreinum.

Hinsvegar höfðu alls 823 fyrirtæki verið úrskurðuð gjaldþrota á fyrstu 11 mánuðum ársins 2009 sem eru 23% fleiri fyrirtæki en á sama tímabili 2008. Ríflega fjórðungur allra gjaldþrota fyrirtækja á árinu 2009 er í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð en það er einmitt í þeirri starfsemi sem nær flest félög voru nýskráð á síðasta ári.

Þannig voru 229 félög gjaldþrota í þessari starfsemi á fyrstu 11 mánuðum síðastliðins árs en 275 félög nýskráð í þessari atvinnustarfsemi á sama tíma. Þess má geta að á morgun mun Hagstofan birta tölur um fjölda gjaldþrota fyrirtækja í desember 2009.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×