Eignarhald banka ógn við samkeppni 28. janúar 2010 03:00 Mögulega væri búið að opna Bauhaus-verslun hér á landi ef Húsasmiðjan hefði ekki fengið líflínu frá Landsbankanum segir Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar.Fréttablaðið/GVA
Bitur reynsla sýnir að bankar taka eingöngu ákvarðanir sem stuðla að hámarkshagnaði hverju sinni, án tillits til afleiðinga. Bönkunum er því ekki treystandi til að gæta að samkeppnismarkmiðum. Þetta segir Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar. Hann sendi Samkeppniseftirlitinu harðort bréf nýverið vegna umræðu um yfirtöku banka á fyrirtækjum á samkeppnismarkaði. Eins og sagt hefur verið frá í Fréttablaðinu komst áfrýjunarnefnd samkeppnismála að þeirri niðurstöðu að heimildir Samkeppniseftirlitsins til að setja skilyrði við yfirtöku banka á fyrirtækjum séu ríkari en eftirlitið taldi. Í bréfinu bendir Baldur á að Samkeppniseftirlitið hafi enga burði til að fylgjast með því að bankarnir vinni ekki gegn samkeppnislögum í þeim fyrirtækjum sem þeir taki yfir. Það nálgist kjánaskap hjá eftirlitinu að setja fram slík óskhyggjumarkmið. „Af þessu leiðir að líta verður á eignarhald bankanna á fyrirtækjum á samkeppnismarkaði sem ógn við markmið samkeppnislaga, en ekki styrk fyrir samkeppnina eins og Samkeppniseftirlitið ályktar," segir í bréfi Baldurs. „Sá fjárhagslegi styrkur sem bankarnir veita með aðkomu sinni gerir yfirteknu fyrirtækjunum kleift að vaða á skítugum skónum yfir keppinauta sína með undirboðum og misnotkun á markaðsráðandi stöðu, halda þeim niðri og koma þannig í veg fyrir eðlilega samkeppni," segir í bréfinu. Ótækt er að bankar taki yfir rekstur fyrirtækja á samkeppnismarkaði, segir Baldur. Eðlilegra væri að setja fyrirtæki, sem hafi verið illa rekin og séu of skuldsett, í þrot. Þá geti aðrir keypt úr þrotabúinu, eða komið nýjum fyrirtækjum inn á erfiðan markað. Baldur tekur Húsasmiðjuna sem dæmi, einn samkeppnisaðila Múrbúðarinnar á byggingavörumarkaði. Landsbankinn tók fyrirtækið yfir á síðasta ári og kom í veg fyrir að fyrirtækið færi í þrot. Baldur fullyrðir í samtali við Fréttablaðið að Landsbankinn hafi hafnað því að selja fyrirtækið og kjósi frekar að reka það áfram enn um sinn. Baldur bendir í bréfi sínu á risavaxið húsnæði Bauhaus sem enn standi autt. „Allt eins mætti álykta að með því að halda Húsasmiðjunni á floti, þá sé verið að koma í veg fyrir að Bauhaus taki til starfa og þar með verði minni samkeppni en ella."brjann@frettabladid.is
Mest lesið Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Viðskipti erlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Viðskipti innlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Samstarf Fleiri fréttir Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Sjá meira