Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Afleiðingar gjaldeyrishafta verða lökustu lífskjör í Evrópu Lífskjör á Íslandi færast 60 ár aftur í tímann og verða með þeim lökustu í Evrópu ef ekki verður losað um gjaldeyrishöft og stýrivextir lækkaðir. Þetta kom fram í máli Margeirs Péturssonar, stjórnarformanns MP banka, í þættinum Markaðurinn með Birni Inga Hrafnssyni í gærkvöldi. 3.4.2009 12:31
Viðskiptaráðherra vill breyta lögum om bankaleynd Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að fjölmiðlar eigi að geta upplýst almenning um mikilvæg atriði eins og óeðlilegar lánveitingar bankamanna. Hann beitir sér fyrir breytingum á lögum um bankaleynd. Ásakanir Fjármálaeftirlitsins um að blaðamenn brjóti bankaleynd séu innlegg í málið. 3.4.2009 12:20
Skyldar Senu til að selja Skífuna ótengdum aðila Samkeppniseftirlitið leggur þá skyldu á Senu að Skífan verði seld til ótengds aðila. Á meðan söluferli Skífunnar stendur yfir og þar til Skífan verður seld hafa samrunaaðilar fallist á að hlíta tilteknum skilyrðum sem er ætlað að koma í veg fyrir þau samkeppnislega skaðlegu áhrif sem af samrunanum stafar á meðan Skífan er enn í eigu Senu. 3.4.2009 11:56
FME: Ekki tilkynnt sérstaklega að forstjórinn væri regluvörður Fjármálaeftirlitinu barst ekki sérstök tilkynning um að Höskuldur Ásgeirsson, þáverandi forstjóri Nýsis, hefði verið ráðinn regluvörður félagsins. Stofnunin rannsakar málið. Þetta kemur fram í athugasemd frá FME vegna fréttar á Vísi í gær. Þar var greint frá því að forstjóri Nýsis hefði einnig verið regluvörður félagsins. 3.4.2009 11:49
RZB þarf ríkisaðstoð eftir tap á íslensku bönkunum Austurríski bankinn Raiffeisen Zentralbank (RZB) mátti horfa upp á að allur hagnaður bankans í fyrra þurrkaðist út eftir afskriftir vegna tapa á íslensku bönkunum og Lehman Brothers. Hefur bankinn samið um ríkisaðstoð upp á 1,75 milljarða evra eða um 280 milljarða kr. af þessum sökum. 3.4.2009 10:59
Óvenju dauf opnun í kauphöllinni Opnunin í kauphöllinni í morgun var með allra daufasta móti. Aðeins var hreyfing á einu félagi, Bakkavör, sem hækkaði um 0,7%. 3.4.2009 10:28
Staðan í gjaldeyrismálum þjóðarinnar er óviðunandi Viðskiptaráð telur að staðan í gjaldeyrismálum þjóðarinnar sé óviðunandi. Þetta kemur fram í nýrri skoðun sem Viðskiptaráð hefur sent frá sér. 3.4.2009 10:12
Aflinn jókst um 28% á fyrstu mánuðum ársins Afli í janúar–febrúar 2009, reiknaður á föstu verði, var 28,1% meiri en í janúar– febrúar í fyrra. 3.4.2009 09:22
Gistinóttum á hótelum fækkaði um 6% í febrúar Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 72.900 en voru 77.600 í sama mánuði árið 2008. Gistinóttum fækkaði þó einungis á Höfuðborgarsvæðinu og á Austurlandi en fjölgaði í öðrum landshlutum. 3.4.2009 09:15
Sveinn Andri ráðinn bankastjóri Sparisjóðabankans Sveinn Andri Sveinsson, áður framkvæmdastjóri fjármála- og upplýsingatæknisviðs bankans, hefur verið ráðinn í starf bankastjóra Sparisjóðabankans. 3.4.2009 09:02
J.C. Flowers vill kaupa Kaupþing í Lúxemborg Bandaríski fjárfestirinn J.C. Flowers mun hafa áhuga á því að kaupa Kaupþing í Lúxemborg. Reuters greinir frá þessu í dag. 3.4.2009 08:52
Áframhaldandi bygging tónlistarhússins tryggð Austurhöfn-TR hefur eignast félögin Portus og Situs, sem höfðu með höndum uppbyggingu Tónlistar - og ráðstefnuhússins (TR), ásamt byggingarrétti á allri lóðinni að Austurbakka 2 eftir að samningsskilmálar þar um hafa nú verið undirritaðir af Austurhöfn, NBI hf., skilanefnd Landsbanka Íslands hf., menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjóra og Nýsi hf. 3.4.2009 08:45
Hlutabréf hækkuðu í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun þegar bjartsýni fjárfesta jókst í kjölfar yfirlýsinga þjóðarleiðtoga á G20-fundinum í London um að grípa til róttækra aðgerða gegn efnahagskreppu heimsins. 3.4.2009 07:26
Unnið að lausn krónueigna Í skoðun er að erlendir krónubréfaeigendur fjárfesti í íslenskum stórfyrirtækjum fyrir tugi milljarða. Þannig yrði undið ofan af krónustöðum í Seðlabankanum. 3.4.2009 06:30
Finnar vilja ekki markið aftur „Það er lítill stuðningur við það í Finnlandi að ganga úr myntbandalagi Evrópusambandsins og taka aftur upp finnska markið þrátt fyrir kreppuna,“ segir Ilkka Mytty, fjármálaráðgjafi í finnska fjármálaráðuneytinu. 3.4.2009 06:15
Bankarnir stóðu ekki við sitt Einn viðskiptabankanna þriggja sendi Seðlabankanum rangar upplýsingar um lausafjárstöðu sína á síðasta ári og tveir þeirra stóðu ekki við samkomulag sitt við evrópska seðlabankann frá vordögum í fyrra að draga úr endurhverfum viðskiptum við bankann. 3.4.2009 05:00
Stýrivextir aldrei lægri á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn lækkaði stýrivexti í gær um fjórðung úr prósenti og standa þeir nú í 1,25 prósentum. Þótt stýrivextir á evrusvæðinu hafi aldrei verið lægri bundu fjárfestar vonir við að stýrivextir færu neðar. 3.4.2009 04:30
Dow Jones yfir 8.000 stigin Dow Jones-hlutabréfavísitalan rauf átta þúsund stiga múrinn á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í gær. Hún hefur legið undir honum síðan í byrjun febrúar. Lægst fór vísitalan í 6.547 stig fyrir tæpum mánuði. Hækkunin síðan þá nemur rúmum 22 prósentum. 3.4.2009 04:15
Sparisjóður eykur stofnféð Stofnfé Sparisjóðs Ólafsfjarðar hefur verið aukið, að hluta með skuldajöfnun þegar kröfu aðaleiganda sjóðsins var breytt í stofnfé. Við þetta hækkaði eiginfjárhlutfall sparisjóðsisn upp fyrir lögbundið lágmark, að því er fram í tilkynningu.- jab 3.4.2009 04:00
Peningastefnunefndin var einhuga Peningastefnunefnd Seðlabankans var einhuga um að fara sér tiltölulega hægt í upphafi vaxtalækkunarferlisins og lækka stýrivexti úr 18% í 17% 19. mars. Svein Harald Øygard, seðlabankastjóri, bauð öðrum meðlimum peningastefnunefndarinnar að kjósa um tillöguna og samþykkti nefndin hana einhuga. Næsti vaxtaákvörðunarfundur verður 8. apríl. 2.4.2009 23:13
Hlutabréf hækkuðu í Bandaríkjunum Mikil uppsveifla var hlutabréfaviðskiptum í Bandaríkjunum í dag og hækkuðu helstu hlutabréfavísitölur í í kauphöllinni á Wall Street í kvöld. Hækkunina má meðal annars rekja til að þess að Bandaríska reikningsskilaráðið aflétti ákveðnum reglum á fjármálafyrirtækjum. 2.4.2009 21:49
Sýnir styrk og getu viðskiptabankanna Landsbankinn, Íslandsbanki og Nýi Kaupþing banki komu sér saman í dag um lánveitingu til að tryggja áframhaldandi framkvæmdir við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhúss. Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans segir að niðurstaðan sýni glögglega styrk og getu íslensku viðskiptabankanna til þess að takast á við og leysa úr flóknum og fjárfrekum viðfangsefnum. 2.4.2009 20:22
Óvíst hvort Ólafur tapi sínum stærstu eigum Það ræðst á næstu dögum og vikum hvort að Ólafur Ólafsson tapar öllum sínum stærstu eignum. Allt stendur og fellur með nauðasamningum sem Egla, dótturfélag í hans eigu, reynir að ná við kröfuhafa. 2.4.2009 19:30
Ársreikningur Strætó: Venjulegt fyrirtæki væri ekki rekstrarhæft Rekstrarniðurstaða Strætó fyrir árið 2008 var neikvæð um 352 milljónir króna sem er aukning um 81 prósent á milli ára en árið 2007 var hún neikvæð um 195 milljónir.Eiginfjárhlutfall er neikvætt um 57 prósent. 2.4.2009 15:27
Landsbankinn vísar ásökunum Sparnaðar á bug Landsbankinn segir það alrangt að verið sé að hvetja sparendur til að segja upp viðbótarlífeyrissparnaði hjá Bayern Líf eins og forsvarsmaður Sparnaðar ehf. fullyrti í gær í samtali við fréttastofu. Ingólfur Ingólfsson sagði þá að að sér hafi borist í hendur skjöl og vitneskja um að Nýi Landsbankinn beiti gróflegum rangfærslum og fölsun á gögnum í þeim tilgangi að ná til sín langtímasparnaði viðskiptavina Bayern Líf, sem er umboðsaðili þýsku tryggingarsamsteypunnar Versicherungs Kammer Bayern á Norðurlöndum. 2.4.2009 14:11
Þrír milljarðar streyma úr tveimur stærstu séreignasjóðunum Að minnsta kosti rúmir þrír milljarðar munu streyma út hjá tveimur stærstu séreignarsjóðum landsins. Skatttekjur ríkisins vegna þessa verða 1,2 milljarður króna. 2.4.2009 14:00
Stofnuðu símafyrirtæki í miðri kreppu Símafyrirtækið Sip hóf rekstur þann 1.nóvember. Fyrirtækið er nú orðið hluti af íslenska fastlínunkerfinu og getur því farið að bjóða upp á símaþjónustu fyrir landsmenn. Að sögn Brjáns Jónssonar framkvæmdarstjóra félagsins fóru þeir af stað eftir að Teymi keypti meirihlutaeign í Hive og lagði niður tæknikerfin. Fimm starfsmenn fyrirtækisins eru eigendur þess en þeir eru fyrrum tæknistjórar hjá gamla Hive, Vodafone og Símanum. 2.4.2009 13:45
Vill reka þá forstjóra lífeyrissjóða sem brotið hafa af sér Stjórn VM fagnar þeirri umræðu sem komin er af stað vegna bréfs stjórnarinnar til lífeyrissjóðanna. Stjórnin vill að þeir sem sannarlega hafa brotið af sér verði látnir sæta ábyrgð og látnir víkja. 2.4.2009 13:42
Skuldabréf Eglu hf. sett á athugunarlista Skuldabréf útgefin af Eglu hf. hafa verið færð á athugunarlista kauphallarinnar vegna óvissu um fjárhagslega stöðu útgefanda með vísan til tilkynningar frá félaginu, dags. 2. apríl 2009, um greiðsluerfiðleika félagsins. 2.4.2009 12:59
Stýrivaxtalækkun á ESB svæðinu undir væntingum Seðlabanki Evrópu (ECB) lækkaði stýrivexti sína um 0,25 prósentustig í hádeginu. Þessi lækkun var töluvert undir væntingum greinenda og sérfræðinga sem almennt gerðu ráð fyrir tvöfalt meiri lækkun í spám sínum. 2.4.2009 12:42
Viðskiptakjör hafa versnað töluvert Á föstu gengi var útflutningsverðmæti nærri fjórðungi minna í mars en á sama tíma í fyrra, en innflutningsverðmætið 46% minna. 2.4.2009 12:27
Forstjóri Nýsis einnig regluvörður félagsins Forstjóri Nýsis var regluvörður félagsins. Fjármálaeftirlitinu er ekki kunnugt um nein dæmi um að forstjóri sé jafnframt regluvörður, enda þótt upplýsingar um Nýsisforstjórann liggi á heimasíðu eftirlitsins. 2.4.2009 12:04
Fréttaskýring: Þjóðarnauðsyn að skipta krónunni út Sú fáránlega staða er nú komin upp á landinu að það er orðið ólöglegt að nota íslenskar krónur í viðskiptum við útlendinga. Íslenska krónan er sumsé orðin svo ónýtur gjaldmiðill að það er ekki einu sinni hægt að nota hana í heimalandinu lengur. 2.4.2009 12:02
Mastercard lækkar gjöld til banka um helming Mastercard í Evrópu hefur ákveðið að lækka tímabundið millikortagjöld banka innan Evrópusambandsins um helming. Þar sem Ísland tilheyrir Evrópukerfi Mastercard nær þessi ákvörðun einnig til Íslands. 2.4.2009 11:14
Samningur við Cayman-eyjar um upplýsingaskipti undirritaður Í gær var samningur Norðurlanda og Cayman-eyja um upplýsingamiðlun undirritaður við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi. Samningurinn veitir norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um skattskyldar innstæður og tekjur og getur veitt aðgang að fjármagni sem ekki hefur verið gefið upp til skatts í heimalandinu. 2.4.2009 11:03
Hagfræðisvið Seðlabankans átti engan þátt í yfirtökunni á Glitni Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri og fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabankans, staðfestir að hagfræðisvið bankans hafi engan þátt tekið í þeirri ákvörðun að ríkið tæki yfir 75 prósenta hlut í Glitni í haust. 2.4.2009 10:24
Össur og Marel ein á hreyfingu í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri hefur hækkað um 1,58 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa Marel Food Systems hefur hækkað um 1,38 prósent á sama tíma. 2.4.2009 10:20
Óttast ekki að íslenska ríkið sé skaðabótaskylt Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að ef Straumur hefði verið sett í greiðslustöðvun eins og stjórn og stjórnendur bankans óskuðu 2.4.2009 09:57
SPRON og Icebank með 135 milljarða í neikvætt eigið fé Eigið fé Icebank, eða Sparisjóðabankans, var neikvætt um 100 milljarða króna þegar ríkið tók bankann yfir. Eigið fé SPRON var neikvætt um 35 milljarða króna. 2.4.2009 09:54
Sparisjóður Ólafsfjarðar eykur stofnfé Stofnfé Sparisjóðs Ólafsfjarðar hefur verið aukið. Sú aukning fór þannig fram að hluta af kröfum aðaleiganda sjóðsins var breytt í stofnfé með skuldajöfnun. Við þetta hækkaði eiginfjárhlutfall Sparisjóðs Ólafsfjarðar, svokallað CAD hlutfall, upp fyrir lögbundið lágmark. 2.4.2009 09:53
Bretar ætluðu að taka Straum Breska fjármálaeftirlitið var tilbúið til að grípa til aðgerða gegn Straumi daginn sem Fjármálaeftlitið setti skilanefnd yfir bankann þann 9. mars s.l. 2.4.2009 09:44
Greiðslustöðvun Kaupþings í Lúxemborg framlengd Dómstóll í Lúxemborg hefur ákveðið að framlengja greiðslustöðvun Kaupþings í landinu um tvo mánuði en hún átti að renna út þann 8. apríl n.k. 2.4.2009 09:35
Vöruskiptin hagstæð um 8,3 milljarða í mars Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir mars 2009 nam útflutningur 34,9 milljörðum króna og innflutningur 26,6 milljörðum króna. Vöruskiptin í mars voru því hagstæð um 8,3 milljarða króna. 2.4.2009 09:07
Prófessor í Oxford segir mikið glatast ef deCODE hverfur Peter Donnelly prófessor við stofnun Oxford háskólans í genatískum rannsóknum segir að mikið muni glatast á því sviði ef DeCODE verði gjaldþrota og hætti starfsemi sinni. 2.4.2009 08:49
Innflutningur á mánuði ekki verið minni í þrjú ár Innflutningur á vörum til Íslands í febrúar nam 26,4 milljörðum kr. og hefur ekki verið minni í einum mánuði undanfarin þrjú ár. Í febrúar í fyrra nam innflutningurinn tæpum 32 milljörðum kr. 2.4.2009 08:32