Viðskipti innlent

Sveinn Andri ráðinn bankastjóri Sparisjóðabankans

Sveinn Andri Sveinsson, áður framkvæmdastjóri fjármála- og upplýsingatæknisviðs bankans, hefur verið ráðinn í starf bankastjóra Sparisjóðabankans.

Í tilkynningu um málið segir að Sparisjóðabanki Íslands hf. hefur frá því að bankinn fékk heimild til greiðslustöðvunar þann 23. mars sl. sagt upp 37 starfsmönnum. Hjá bankanum munu starfa áfram 35 starfsmenn.

Bankastjóri Sparisjóðabanka Íslands hf., Agnar Hansson, lét af störfum í vikunni. Sömuleiðis hefur aðstoðarbankastjóri bankans, Ólafur Ottósson, látið af störfum.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×