Viðskipti innlent

Áframhaldandi bygging tónlistarhússins tryggð

Austurhöfn-TR hefur eignast félögin Portus og Situs, sem höfðu með höndum uppbyggingu Tónlistar - og ráðstefnuhússins (TR), ásamt byggingarrétti á allri lóðinni að Austurbakka 2 eftir að samningsskilmálar þar um hafa nú verið undirritaðir af Austurhöfn, NBI hf., skilanefnd Landsbanka Íslands hf., menntamálaráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjóra og Nýsi hf.

 

Í tilkynningu segir að með samkomulaginu tekur Austurhöfn við öllum réttindum og skyldum sem fylgja samningum um byggingu og rekstur TR. Áframhaldandi fjármögnun framkvæmdanna hefur jafnframt verið tryggð og er hún hluti af samkomulaginu. Áætlaður kostnaður við að ljúka verkefninu er 14,5 milljarðar króna, að meðtöldum vöxtum á byggingartíma.

 

Fyrr í vikunni var gengið frá samkomulagi Austurhafnar-TR og ÍAV, Íslenskra aðalverktaka, um verkframkvæmdina allt til loka. Það byggir í aðalatriðum á fyrirliggjandi samningum en tekur á breyttum verktíma, ýmsum viðaukum, sparnaðarmöguleikum og öðrum ráðstöfunum sem nauðsynlegar eru til að tryggja farsæl verklok. Miðað er við að verkinu ljúki í febrúar 2011 og að húsið verði tekið í notkun í apríl það ár.

 

Um 150 starfsmenn starfa nú við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins, þeim verður nú fjölgað í 200 og í sumar er áætlað að starfsmannafjöldinn verði kominn yfir 300 manns. Gert er ráð fyrir að nú hefjist að nýju vinna við fyrsta áfanga bílakjallara og að lokið verði við hönnun lóðar á næstunni, svo unnt verði að vinna við næsta nágrenni TR sumarið 2010.

 

Í samræmi við yfirlýsingu borgarstjóra og menntamálaráðherra frá 19. febrúar síðastliðnum er þegar farið að huga að möguleikum á breyttri og aukinni nýtingu hússins. Góðir möguleikar eru á því að það geti tekist, án þess að gera þurfi verulegar breytingar á húsinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×