Viðskipti innlent

Seðla­bankinn ætti að halda stýrivöxtum ó­breyttum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Vilhelm

Samtök iðnaðarins segja að sterk rök séu fyrir því að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi stýrivöxtum óbreyttum. Núverandi staða í efnahagsmálum kalla á þjóðarsátt að mati samtakanna sem segja að á næstu vikum muni liggja fyrir upplýsingar sem geti haft afgerandi áhrif á verðbólguhorfur.

Peningastefnunefnd Seðlabankans mun kynna vaxtaákvörðun sína næstkomandi miðvikudag 19. ágúst en stýrivextir hafa verið hækkaðir í tvígang á þessu ári og standa nú í 7,75 prósentum. Helstu greiningaraðilar á borð við Íslandsbanka hafa spáð því að nefndin muni kynna hækkun upp á 0,25 stig sökum þrálátrar verðbólgu og hárra verðbólguvæntinga en verðbólga mældist í júlí 5,3 prósent, 0,1 stigi meira en mánuðinn á undan. Í yfirlýsingu Samtaka iðnaðarins segja samtökin sterk rök vera fyrir því að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri samtakanna segir þrennt vega þyngst.

„Í fyrsta lagi þá er aðhaldið þegar mikið og hagkerfið er að kólna. Við sjáum það til dæmis bara á væntingum fram í tímann, væntingavísitalan hefur ekki verið lægri síðan á tímum heimsfaraldurs og þar áður eftir hrun og það sama gildir um stjórnendur fyrirtækja, þannig það gildir minni bjartsýni.“

Í öðru lagi hafi samtökin áhyggjur af því að vaxtahækkun nú muni vinna gegn markmiði peningastefnunnar.

„Við sjáum það hvernig vanskilahlutfall byggingariðnaðar hefur vaxið hratt það sem af er ári, þannig það er sótt að fjárfestingum. Og svo í þriðja lagi eru þrír afgerandi þættir sem liggja fyrir fljótlega, það er endurskoðun kjarasamninga, fjárlagafrumvarp 8. september og síðan er þjóðaratkvæðagreiðsla núna í lok mánaðar, þannig að við teljum rétt að skýr og trúverðug framsýn leiðsögn henti þessum aðstæðum betur heldur en að hækka vextina.“

Í núverandi stöðu sé þörf á þjóðarsátt þar sem hagstjórnaraðilar stilli saman strengi sína.

„Ólíkir aðilar þurfa að koma saman til að finna samhljóm. Við glímum við efnahagsvanda. Það er margt mjög gott á Íslandi og framtíðin er björt en hinsvegar kallar staðan núna á aðgerðir og athygli. Það þarf að auka samkeppnishæfni, þannig þetta eru tvö meginviðfangsefni núna, ná tökum á efnahagsmálum annars vegar og auka samkeppnishæfnina hinsvegar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×