Ársreikningur Strætó: Venjulegt fyrirtæki væri ekki rekstrarhæft 2. apríl 2009 15:27
Rekstrarniðurstaða Strætó fyrir árið 2008 var neikvæð um 352 milljónir króna sem er aukning um 81 prósent á milli ára en árið 2007 var hún neikvæð um 195 milljónir. Eiginfjárhlutfall er neikvætt um 57 prósent. Í umsögn borgarráðs um ársreikninginn kemur fram að þetta sé fjórða árið í röð sem rekstrarniðurstaðan er neikvæð. „Ef um venjulegan fyrirtækjarekstur væri að ræða myndi staða sem kalla á fyrirvara í áritun ytri endurskoðanda en þess er ekki þörf þar sem hlutaðeigandi sveitarfélög bera einfaldlega ábyrgð á skuldbindingum fyrirtækisins," segir einnig í umsögninni en 57 prósenta neikvætt eiginfjárhlutfall myndi hjá „venjulegu" fyrirtæki einfaldlega þýða að fyrirtækið væri ekki rekstrarhæft. Tekjur jukust um 13 prósent á milli ára en helstu tekjur eru framlög eigenda sem námu 2,5 milljörðum á árinu og jukust um 12 prósent á milli ára. Fargjöld nema 675 milljónum og stendur sú tala nánast í stað. Í umsögn borgarráðs er bent á að hlutfall fargjalda í tekjum hafi lækkað úr 37 prósentum í 21 prósent frá árinu 2004 á kostnað framlaga frá eigendum. Þá kemur einnig fram að veltufjárhlutfall, sem sýnir hæfi fyrirtækis til þess að inna af hendi skuldagreiðslur á næstu mánuðum er 0,60 hjá Strætó, sem er óásættanlegt að mati fjármálastjóra Reykjavíkurborgar sem ritar umsögnina. Skuldsetningarhlutfall Strætó telst einnig verulega hátt, eða - 194 prósent. Í niðurlagi umsagnarinnar segir að framundan sé kostnaðarsöm endurnýjun á vögnum, akstursamningar verktaka renna út í lok árs og vísbendingar eru um enn frekari kostnaðarhækkanir. „Alls telur fyrirtækið að árlegur kostnaðarauki nemi á bilinu 500 til 700 milljónum króna. Ljóst er einnig að við núverandi skilyrði þar sem hallarekstur hefur verið fjármagnaður með lántökum muni verulegur vaxtakostnaður íþyngja fyrirtækinu á næstu misserum.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira