Skyldar Senu til að selja Skífuna ótengdum aðila 3. apríl 2009 11:56
Samkeppniseftirlitið leggur þá skyldu á Senu að Skífan verði seld til ótengds aðila. Á meðan söluferli Skífunnar stendur yfir og þar til Skífan verður seld hafa samrunaaðilar fallist á að hlíta tilteknum skilyrðum sem er ætlað að koma í veg fyrir þau samkeppnislega skaðlegu áhrif sem af samrunanum stafar á meðan Skífan er enn í eigu Senu. Í frétt um málið á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins kemur fram að eftirlitið hefur að undanförnu haft til meðferðar kaup Senu ehf. á Skífunni ehf., en kaup þessi áttu sér stað í lok síðasta árs. Með ákvörðun í dag hefur Samkeppniseftirlitið sett samrunanum skilyrði. Umrædd skilyrði fela m.a. í sér að skýr rekstrarlegur aðskilnaður sé á milli Senu og Skífunnar og er markmið þeirra m.a. að tryggja að viðskipti milli samrunaaðila á þeim mörkuðum sem málið tekur til, verði eins og um óskylda aðila sé að ræða og að vernda þannig samkeppni á bæði heildsölu- og smásölumarkaði.Samruninn felur í sér kaup Senu ehf. á 100% hlutafjár Skífunnar ehf. en tilkynning um samrunann barst Samkeppniseftirlitinu þann 21. nóvember 2008. Með bréfi sem Samkeppniseftirlitinu barst þann 16. mars 2009 var tilkynnt um að breytingar hefðu orðið á eignarhaldi Senu með undirritun samnings milli Íslenskrar afþreyingar hf. sem seljanda og Garðarshólma rekstrarfélags ehf. sem kaupanda að félaginu. Með þeim viðskiptum var skorið á tengsl við annan sterkan smásöluaðila, Haga hf., sem m.a. reka Hagkaupsbúðirnar. Samkeppniseftirlitið taldi að samruninn leiddi til styrkingar á markaðsráðandi stöðu Senu á markaði fyrir útgáfu tónlistar, heildsölu og dreifingu tónlistar og heildsölu tölvuleikja. Áhrifa af þeirri styrkingu á stöðu Senu á þessum mörkuðum myndi jafnframt gæta á þeim mörkuðum sem Skífan starfar á, þ.e. smásölu á tónlist og tölvuleikjum. Þá taldi Samkeppniseftirlitið að ástæða væri til að ætla að samkeppnishamlandi vandamál gætu komið upp í kjölfar samrunans á þeim mörkuðum sem málið tekur til. Af framangreindum ástæðum myndi draga úr samkeppni á nefndum mörkuðum og var það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samruninn væri andstæður markmiðum samkeppnislaga. Í ljósi þess taldi Samkeppniseftirlitið að ástæða væri til að grípa til íhlutunar vegna samrunans sem fælist í ógildingu eða setningu skilyrða.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira