Fleiri fréttir

Þórhallur í lok dags

Þórhallur Ásbjörnsson hjá Greiningardeild Kaupþings var gestur Sindra Sindrasonar í þættinum Í lok dags í dag.

Icelandair breytir skipulagi sölu- og markaðsmála

Breytingar hafa verið gerðar á skipulagi sölu- og markaðsmála hjá Icelandair. Þannig hefur millistjórnendum verið fækkað og nýtt fólk ráðið til starfa. Breytingarnar eru gerðar með það að leiðarljósi að efla markaðs- og sölustarfsemina, stytta ákvörðunarferli og einfalda boðleiðir eins og segir í tilkynningu.

Bakkavör tók flugið

Gengi bréfa í Bakkavör hækkaði um 3,63 prósent í Kauphöllinni í dag og er það mesta hækkun dagsins. Gengi bréfa í fyrirtækinu hafði fallið um rúmar 10 krónur á hlut frá mánaðamótum. Úrvalsvísitalan hefur hins vegar ekki verið lægri síðan um síðustu páska.

Fjárfestingarrisi í mínus

Blackstone Group, umsvifamesta fjárfestingarfélag heims, tapaði 66,5 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 5,2 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Félagið hagnaðist um 838,5 milljónir dala eftir skatt á sama tíma í fyrra.

Hlutabréfin niður en gengið á uppleið

Úrvalsvísitalan hefur lækkað örlítið í fyrstu viðskiptum dagins eða um 0.2% og stendur nú í 4.820 stigum. Á sama tíma hefur gengisvísitalan lækkað um 1,15% og gengið því styrkst sem því nemur.

Gjaldeyrisforðinn er til að sýna styrk

„Kjörin hafa verið að batna. Ríkið gæti fengið ágætis kjör núna, kannski 50 til 70 punkta ofan á Libor, en óvíst er að þau muni batna mikið á næstunni,“ segir Sigur­jón Árnason, bankastjóri Landsbankans, um lántökur ríkisins vegna gjaldeyrisforðans. Álagið sé nú í kringum 150 punkta.

Barclays afskrifar 1,7 milljarð punda

Breski bankinn Barclays afskrifaði 1,7 milljarð punda úr bókum sínum vegna niðursveiflu á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum á fyrsta ársfjórðungi. Þetta jafngildir 253 milljörðum íslenskra króna. Bankinn birtir uppgjör sitt fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins á næstu dögum og er reiknað með því að það verði nokkuð verra en á sama tíma í fyrra.

Glitnir hækkaði í Kauphöllinni í dag

Átta félög hækkuðu í Kauphöllinni í dag. Þeirra mest hækkuðu bréf í Century Aluminum Company eða um 3.23%. Atlantic Petroleum hækkaði um 1,73% og FL Group um 1,42%.

Verð á hrísgrjónum rýfur 1.000 dollara múrinn

Verð á hrísgrjónum til útflutnings frá Tælandi, helstu birgðastöðvar hrísgrjóna í heiminum, fór í fyrsta sinn yfir 1000 Bandaríkjadali tonnið í dag er kaupendur kepptust um að tryggja sér nægan forða.

Icelandair flugmenn fljúga fyrir Air Finnland

Ellefu flugmenn hjá Icelandair munu fá launalaust leyfi hjá félaginu til þess að fljúga fyrir finnska flugfélagið Air Finnland nú í sumar. Þetta kemur fram í fréttabréfi FÍA, félagi íslenskra atvinnuflugmanna. „Munu þeir allflestir fara í flugstjórasæti á B757 vélum Air Finnland,“ segir í fréttabréfinu.

FL Group og Glitnir skjótast upp í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í FL Group skaust upp um þrjú prósent skömmu eftir upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag. Gengi bréfa í Glitni hækkaði sömuleiðis um rúm tvö prósent. Viðskiptadagurinn byrjaði rólega en einungis var hreyfing á gengi Existu og Straums.

Krónan styrkist í upphafi dags

Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst um 0,23 prósent frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði í dag og stendur gengisvísitalan í rúmum 158 stigum. Gengið styrktist um 0,44 prósent í gær.

Glitnir í Noregi gefur út sérvarin skuldabréf

Glitnir í Noregi lauk í dag útgáfu sérvarinnar skuldabréfa fyrir sjö milljarða norskra króna, jafnvirði 109 milljarða íslenskra. BN Boligkreditt AS, dótturfélag Glitnis, gefur skuldabréfið út en kaupendur eru norskir fagfjárfestar. Bankinn segir fjármögnun tryggða fyrir starfsemi Glitnis í Noregi út þetta ár og hluta af næsta ári.

Samdráttur á föstu verði

Á síðasta ári nam verðmæti útfluttra sjávarafurða 127 milljörðum króna, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Verðmætaaukningin er 2,8 prósent frá fyrra ári. Sé framleiðslan hins vegar mæld á föstu gengi dróst hún saman um 2,3 prósent.

Eini íslenski bankinn á ráðstefnu UBS

Forstjórar sjötíu banka kynntu starfsemi sína. Forstjóri KaupþinHreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, kynnti Kaupþing á fjölmennri ráðstefnu fyrir alþjóðlega fjárfesta sem risabankinn UBS stendur fyrir og fer fram í New York.gs boðar innrás í Sviss.

Kópavogur grípur til aðgerða vegna lóða í Vatnsendahverfi

Kópavogsbær hyggst endurskoða lóðakjör í bænum. Bæjarráð Kópavogs samþykkti fyrir helgi að endurskoða kjör skuldabréfa og staðgreiðsluafslátt vegna lóða sem bærinn hefur úthlutað í Vatnsendahlíð. Ákveðið verður á næstu vikum hvernig kjörum verður breytt.

Átak til að fá fólkið aftur til Póllands

Stjórnvöld í Póllandi hafa hrundið af stað átaki til að fá fólk sem farið hefur til starfa erlendis, að snúa aftur heim. Stjórnvöld þar eystra hafa látið útbúa bækling sem til stendur að dreifa í Bretlandi.

Bankahólfið: Hógværir

Misjafnt er hversu umsvifa­miklir stjórnendur og stjórnarmenn fjármálastofnana eru í lántökum innan þeirra bankastofnana sem þeir starfa hjá. Sem dæmi námu útistandandi lán til bankastjóra og framkvæmdastjóra Landsbankans í lok mars um 158 milljónum króna.

Milljarðar í vasa Björgólfsfeðga

Samson Global Holdings, félag í eigu þeirra feðga Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thor Björgólfssonar, fékk í gær greidda tæpa 146,4 milljón hluti í Straumi-Burðarási í arð vegna afkomunnar á síðasta ári. Markaðsverðmæti hlutanna miðað við gengi bréfa í Straumi í gær nam rúmum 1,7 milljörðum íslenskra króna.

Icahn vill skipta út stjórninni í Yahoo!

Bandaríski milljarðamæringurinn Carl Icahn er sagður vera að undirbúa herferð sem miðar að því að skipta út stjórninni í Yahoo! í kjölfar þess að fyrirtækið hafnaði umleitunum Microsoft sem vildu kaupa félagið.

Hætta á frekari veikingu krónunnar

Greiningardeild Kaupþings telur hættu á frekari veikingu krónunnar vegna skerts vaxtamunar og mikils viðskiptahalla. Þetta kemur fram í sérstakri umfjöllun greiningardeildarinnar um gengismál.

Jakob Hansen var gestur Sindra

Jakob Hansen, sérfræðingur hjá SPRON Verðbréfum, var gestur Sindra Sindrasonar í dag í þættinum Í lok dags. Þeir fóru yfir ástand og horfur á verðbréfamörkuðum.

Neysla heimilanna dregst saman um 10%

Miðað við þær vísbendingar sem nú liggja fyrir bendir allt til þess að einkaneysla hafi vaxið á 1 ársfjórðungi 2008. En skjótt skipast veður í lofti og framundan er tveggja ára samdráttur í einkaneyslu sem mun nema allt að 10%.

Róleg opnun í kauphöllinni

Viðskiptin fóru rólega af stað í kauphöllinni í morgun og hefur úrvalsvísitalan hækkað um 0,05 stig.

Kjöltudans með hádegismatnum í fjármálahverfi London

Stærsti nektardansstaður Bretlands, For Your Eyes Only, opnaði nýlega nýjan stað í fjármálahverfi London. Það ku færast í aukana að stressaðir verðbréfasalar og bankamenn horfi á súlumeyjar og kaupi jafnvel kjöltudans í hádegismatarhléum sínum.

Sjá næstu 50 fréttir