Fleiri fréttir

Undirfatafyrirsæta Sloggi valin

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Sloggi keppni FM957 sem fór fram á Café Oliver á laugardaginn. Það var frábær mæting og skemmtileg stemning allt kvöldið og þegar hefur verið tekin ákvörðun að gera þetta að árlegum viðburði hér eftir," sagði Kalli Lú útvarpsmaður spurður út í viðburðinn. Sloggi stúlkan 2010 var valin Thelma Dögg Ingadóttir.

Fékk ráð hjá Beyonce

Gwyneth Paltrow leitaði ráða hjá Beyonce Knowles áður en hún steig á svið og söng lag úr kvikmynd sinni Country Song á amerísku kántrý-verðlaunahátíðinni sem fram fór á dögunum. Í samtali við Access Hollywood sagðist Paltrow ekki hafa getað sofið nóttina áður en hún kom fram en með því að læra tækni hjá Knowles hafi hún getað róað taugarnar. „Ég er svo heppin að geta leitað til svona frábærra listamanna,“ segir Paltrow.

Ferðast búrkuklædd með pílagríma til Mekka

„Hér er allt frábrugðið öllu því sem maður er vanur,“ segir Ásdís Svava Hallgrímsdóttir, fyrrverandi fegurðardrottning, sem um þessar mundir flýgur með pílagríma til Mekka. Ásdís Svava, sem keppti fyrir Íslands hönd í Ungfrú

Fékk rúma milljón í styrk

„Það er ekki hægt annað en vera ánægður með styrkinn. Þetta er svakalegur heiður. Núna get ég loksins keypt mér almennilegan trompet,“ segir trompetleikarinn efnilegi Baldvin Oddsson.

Ótvírætt aðdráttarafl George Clooney

George Clooney hefur að eigin sögn breytt ítalska smábænum Laglio, sem stendur við Como-vatnið, í hálfgerðan Clooney-skemmtigarð. Þetta kemur fram í viðtali við bandaríska leikarann í breska blaðinu OK!.

Íslenskur Hellisbúi þýddur á mandarín

„Ég er algjörlega að fíla þetta. Mér finnst reyndar leiðinlegt að skilja þetta tungumál ekki,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari. Leikgerð hans og Rúnars Freys Gíslasonar upp úr einleiknum Hellisbúinn hefur verið þýdd yfir á kínversku og verður frumsýnd á næsta ári. Að sögn Jóhannesar voru alþjóðlegir rétthafar verksins himinlifandi með breytingarnar sem þeir tveir gerðu á verkinu en leikgerð er þegar eitthvað er fært til í leikverki, atriðum breytt eða einhverjum bætt við.

Syngur með 8 ára dóttur

Tólf jólalög sem eru öll í sérstöku uppáhaldi hjá söngkonunni Regínu Ósk eru á nýrri jólaplötu hennar sem nefnist Regína Ósk…um gleðileg jól. Þetta er fjórða sólóplata hennar og inniheldur hún ný íslensk jólalög í bland við

Franskir rokkarar til Íslands

Þungarokkssveitirnar Changer og hin franska L"esprit du clan spila á tvennum tónleikum í Hellinum og á Sódómu 19. og 20. nóvember. Hljómsveitin Angist hitar upp.

Rekur hótel á slóðum Sopranos-fjölskyldunnar

„Til að byrja með var ég sérlegur aðstoðarmaður Jarls Haugedal en svo var ég gerður að hótel­stjóra,“ segir Magnús Guðbergur Jónsson. Hann er nú hótelstjóri á lúxusíbúðahótelinu NYC-JC sem er á besta stað í Jersey. Frá hótelinu er útsýni yfir alla skýjakljúfana á Manhattan og Frelsisstyttuna og segir Magnús þetta vera einstakt, að horfa yfir Hudson-ána og yfir til New York. „Þeir sem eru staddir í New York sjá ekki þetta.“

Rachel Weisz með Batman og Bond

Rachel Weisz þykir líklegust til að hreppa hið eftirsóknarverða aðalkvenhlutverk í næstu Batman-mynd bandaríska leikstjórans Chris Nolan. Þetta kemur fram á afþreyingarvefnum Contactmusic.com.

Aðstoða fræga ítalska stjörnu

Hrefna Hagalín og Kristín Bára Haraldsdóttir reka saman framleiðslufyrirtækið Krúnk og aðstoða ítalskt tökulið við tökur á tónlistarmyndbandi með einni stærstu poppstjörnu Ítala.

Sætu stelpurnar í naglaskólanum

Meðfylgjandi myndir voru teknar í nýjum naglaskóla sem ber heitið Magnetic naglaskólinn, en hann er einn af skólum heildsölunnar Beautyworld sem er í eigu Guðrúnar Möller. Þá má sjá kennara skólans sýna listir sínar og upplýstu áhugasamar konur um gæði og nýjungar varanna frá Magnetic. Magnetic naglaskólinn á Facebook.

Fimm börn með fimm konum

Rapparinn Lil Wayne er nýsloppinn úr fangelsi en er nú á leiðinni í réttarsalinn á ný. Á meðan hann sat inni steig nefnilega fram kona sem sagði rapparann hafa grngist við barni sem fæddist fyrir átta árum.

Elton veldur deilum í ESB

Góðgerðartónleikar Eltons John í Napólí á síðasta ári hafa ratað alla leið inn á Evrópuþingið. Svo virðist sem peningar skattgreiðanda hafi verið notaðir til að fjármagna tónleikana sem haldnir voru til styrktar AIDS. Þetta kemur fram í breska blaðinu The Times.

Frakkar gefa út umdeilda bók

Bókin Millennium, Stieg og ég eftir Evu Gabrielsson, fyrrverandi sambýliskonu sænska rithöfundarins Stiegs Larsson, kemur út í Frakklandi í janúar hjá forlaginu Actes Sud. Í bókinni fjallar Gabrielsson um 32 ára samband sitt og Larssons og hinn vinsæla Millennium-þríleik. Einnig ræðir hún um samskipti sín við fjölskyldu Larssons, sem hafa verið mjög stirð eftir dauða hans og spila peningar þar stærsta hlutverkið.

Íslensk dansmynd til Hollands

Íslenska dans-stuttmyndin Retrograde hefur verið valin á kvikmyndahátíðina Cinedans í Amsterdam í Hollandi sem fer fram 9. til 12. desember. Hátíðin er ein sú stærsta í Evrópu sem sérhæfir sig í dansi. Myndin verður einnig sýnd á smærri hátíð í Vínarborg í lok nóvember.

Grípandi tónlistarsamstarf

Söngkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir og tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen hafa leitt saman hesta sína og tekið upp lag saman. Lagið ber titilinn For your love og er skemmtilegt og dansvænt lag sem mun án efa slá í gegn.

Jessica grætur ekki Nick

Söngkonan Jessica Simpson segist ánægð fyrir hönd fyrrum eiginmanns síns, söngvarans Nicks Lachey, sem trúlofaðist nýverið kærustu sinni, þáttastjórnandanum Vanessu Minnillo.

Íslenska smjörið er galdurinn

Galdurinn við góðan smákökubakstur er að nota íslenskt smjör, segir Karl Viggó Vigfússon, framkvæmdastjóri íslenska kokkalandsliðsins. Hann hefur verið Ikea á Íslandi við þróun og framleiðslu á smákökudeigi úr fyrsta flokks íslensku hráefni. Verið er að setja deigið á markað nú fyrir jólin.

Puzzle fær góða dóma

Önnur plata Amiinu, Puzzle, hefur fengið góða dóma erlendis að undanförnu. Gagnrýnandi breska tónlistartímaritsins Mojo gefur plötunni fjórar stjörnur af fimm mögulegum í einkunn. Sömu sögu er að segja um dagblaðið The Independent sem gefur henni fjórar stjörnur og segir tónlistina fallega og fíngerða.

Randver snýr aftur í Spaugstofuna

„Það voru miklir fagnaðarfundir á tökustað. Eins og við var að búast,“ segir Karl Ágúst Úlfsson, liðsmaður Spaugstofunnar, en Randver Þorláksson snýr aftur í Spaugstofuna í kvöld þegar hann endurtekur eitt af frægustu hlutverkum þessa spéspegils, rónann Örvar. Randver var sem kunnugt er látinn fara þegar Spaugstofan var á RÚV en hinir fjórir, Karl, Sigurður Sigurjónsson, Pálmi Gestsson og Örn Árnason héldu áfram.

Sálin er trú sjálfri sér

Sálin og Stórsveit Reykjavíkur spila í Laugardalshöll í kvöld. Aðeins verður um þessa einu tónleika að ræða.

Dorrit er alltaf jafn ungleg

Sólveig Eiríksdóttir matreiðslumaður og Dorrit Moussaieff forsetafrú héldu létta sýnikennslu í matargerð á veitingastaðnum Gló í fyrrakvöld. Námskeiðið tengist alþjóðlegu athafnavikunni sem hefst í næstu viku og á meðal þess sem þær stöllur buðu upp á var fagurgrænn heilsudrykkur.

Sátt við aldurinn

Kim Kardashian segist vera sátt við að vera orðin þrítug. Henni finnst aldurinn ákaflega spennandi jafnvel þótt hún sé ekki enn gift og komin með börn eins og hún bjóst við.

Segir Perry ráða öllu

Breski gamanleikarinn Russell Brand kvæntist nýverið sinni heittelskuðu, söngkonunni Katy Perry. Hann virðurkenndi á dögunum að það væri eiginkona hans sem væri herrann á heimilinu og að hann réði engu. „Hún segir mér hvað ég má og má ekki gera. Ef hún segir mér að klæðast ekki ákveðinni skyrtu, þá hlýði ég.“

Tengdó höfðar mál

Tengdapabbi stjörnukokksins Gordons Ramsey, Chris Hutcheson, hefur höfðað mál á hendur honum. Og það þarf kannski ekki að koma neinum á óvart að ástæðan er peningar.

Carrey hræddur

Jim Carrey hætti við að leika þybbnu persónuna Curly í kvikmyndinni Three Stooges sökum þess að hann óttaðist að þyngdaraukningin myndi hafa varanleg áhrif á heilsu hans. Búið var að ráða Sean Penn og Benicio del Toro í myndina en nú er gerð hennar í miklu uppnámi. Carrey segist hafa óttast um líf sitt.

Glæsileiki hjá MTV

Hin árlegu evrópsku tónlistaverðlaun MTV voru veitt með pompi og pragt fyrr í vikunni. Að þessu sinni lá leið stjarnanna til Madríd á Spáni og kynnir kvöldsins var aðþrengda eiginkonan Eva Longoria, en hún notaði tækifærið og skipti þrettán sinnum um klæðnað við mikinn fögnuð áhorfenda.

Til Íslands í fjórða sinn

Áströlsku danstónlistarmennirnir í Pendulum stíga á svið á Nasa í kvöld á vegum Techno.is. Pendulum er að fylgja eftir sinni þriðju plötu, Immersion, sem kom út í maí.

Ánægð með ímyndina

Victoria Beckham kveðst ánægð með ímynd sína og er alveg sama þótt sumir haldi að hún sé leiðindabykkja, eins og hún orðar það sjálf í samtali við breska Cosmopolitan. Þessum fyrrverandi liðsmanni Spice Girls hefur tekist hvað best að viðhalda frægð sinni af stúlkunum í stúlknasveitinni og þykir mikil tísku­gyðja. Hins vegar virðast alltaf nokkrir hafa horn í síðu hennar og telja hana vera fúllynda kerlingu. „Þegar maður er búinn að vera svona lengi í kastljósinu þá verður manni alveg sama hvað fólki finnst. Ég lít alltaf út fyrir að vera einhver herfa á myndunum og það er bara fínt.“

Gripinn glóðvolgur

Daniel Radcliffe fékk ekki heitustu ósk sína uppfyllta þegar honum var tilkynnt að hann fengi ekki eitt af þeim gulleggjum sem notuð voru í Harry Potter and the Goblet of Fire. Honum var nefnilega tilkynnt að eggið yrði gefið á safn. Breski leikarinn, sem senn kveður Harry Potter-æðið, vildi eiga eggið til minningar um vinnu sína.

Með ferna jólatónleika

Sigga Beinteins heldur í desember sína árlegu jólatónleika í nokkrum kirkjum landsins. Á tónleikunum syngur Sigga falleg jólalög í bland við lög af plötum sínum. Að þessu sinni koma fram með Siggu góðir gestir og kórar.

Norðmenn stela Laundromat-hugmynd Frikka

„Litasamsetningarnar og áferðin eru til að mynda eins og það er alveg augljóst hvaðan þeir fengu hugmyndina. Mér finnst samt undarlegast að þeir skyldu ekki finna norska heitið á þvottakaffihúsi og nefna það eftir því,“ segir Friðrik Weisshappel, eigandi tveggja Laundromat Café-staða í Kaupmannahöfn. Hann hefur fengið óvænta samkeppni í kaffihúsabransanum því fyrir fimm mánuðum var opnað Café Laundromat á besta stað í Ósló. Miðað við heimasíðu norska staðarins, laundromat.no, er augljóst hvaðan fyrirmyndin er komin.

Útgáfuboð Gissurar tenórsöngvara

Meðfylgjandi myndir voru teknar í útgáfuboði Gissurar Páls Gissurarsonar tenórsöngvara sem fram fór í húsgagnaverslun Pennans við Hallarmúla í gærkvöldi. Spurður út í nýju plötuna sem ber heitið Ideale sagði Gissur: „Eftir að hafa búið í sjö ár á Ítalíu og tileinkað mér ítalska menningu fannst mér kominn tími til að kynna hana fyrir Íslendingum. Ég held að það sé ekki of mikið sagt að platan sé ítölsk sól í íslensku skammdegi". Facebooksíða Gissurar.

Áhugi karla á kynlífi minnkar um fertugt

Kynlífssérfræðingurinn Tracey Cox er stödd hér á landi til að kynna nýjustu bók sína, Lostaleiki. Daðurdrottningin Tobba Marinós hefur lengi haft mætur á Tracey og því ákvað Fréttablaðið að sameina þessar tvær drottningar og ræddi við þær um karlmenn, kynlíf og íslenska deitmenningu.

Ekkert venjulegt víbradorapartý

Það hefur vart farið framhjá mörgum að sálfræðingurinn og rithöfundurinn Tracey Cox er stödd hér á landi. Á meðfylgjandi myndum má sjá Tracey ásamt fjölmörgum íslenskum konum sem kynntu sér kynlífstæki og bækur Tracey á veitingahúsinu Sólon í gær.

Útgáfupartý Tobbu Marínós

Á meðfylgandi myndum má sjá glaða gesti sem mættu í Eymundsson á Skólavörðustíg í gær til að fagna útgáfu bókarinnar Dömusiðir eftir Tobbu Marínós. Gestum var boðið upp á Cosmopolitan-drykki og skemmtilegheit. „Ég hef hug á að skella mér í háa hæla, blása á mér hárið og sturta í mig veigum og láta eins og flón - auðvitað að Dömusið. Það myndi gleðja mitt meikaða hjarta ef þú sæir þér fært að sturta í þig með mér," skrifaði Tobba í boðskortið á viðburðinn.

Skrifar hrylling í fæðingarorlofi

„Ég skrifaði fyrsta uppkastið í sumar, þá kasólétt og maður er jú aldrei viðkvæmari en einmitt þá. En bókin fjallar líka um konur og maður er aldrei meiri kona en með nýfætt barn,“ segir Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona.

Mamma hefði brosað

„Ég er bara mjög ánægður með þetta,“ segir rapparinn Ástþór Óðinn. Hann lenti í þriðja til þrettánda sæti í evrópsku lagakeppninni I-Mego með lag sitt Mamma. Mörg hundruð lög voru send í keppnina og lag Ástþórs, sem er bæði sungið á íslensku og ensku, var valið úr þeim hópi. „Þetta kom mér á óvart. Ég hlustaði á hin lögin og þau voru virkilega góð.“

Aðdáandi ógnar Gaga

Söngkonan Lady Gaga hefur fengið nálgunarbann sett á brjálaðan aðdáanda sem sendi henni óhugnanlegt bréf. Þar skrifar rússneski neminn Anastasia Obukhova að draumur hennar sé að deyja með Gaga.

Eldheitt samband

Breska leikkonan Rachel Weisz hefur sagt skilið við barnsföður sinn, leikstjórann Darren Aron­ofsky, en parið hefur verið saman í níu ár og á saman soninn Henry.

Stefnir í uppseld Réttarhöld

„Miðasalan hefur gengið mjög vel og það stefnir allt í að það verði uppselt á frumsýninguna,“ segir Olga Margrét Cilia, formaður Stúdentaleikhússins, en á laugardaginn frumsýnir leikhópurinn verkið Réttarhöldin eftir Franz Kafka.

Gerðu verk eftir fyrirmælum á Kaffivagninum

Átta stúlkur sem setið hafa námskeiðið Sýningagerð og sýningastjórnun setja upp sýningu í dag en þær leituðu til almennings eftir hugmyndum að verkum sem þær síðan framkvæmdu. Á námskeiðinu voru bæði nemendur í listfræði við Háskóla Íslands og nemendur Listaháskóla Íslands.

Trylltur með klikkað fótaflæði

Í meðfylgjandi myndskeiði segir Stella Rósenkranz frá danska dansaranum Sonny Petersen sem kemur frá Los Angeles til að halda námskeið hér á landi um helgina. „Hér er hip hop. Það gerast ekki tæknilega flóknari dansarnir en þetta í hip hop-i. Stjórnin á líkamanum er ótrúleg og samt svo áreynslulaust," sagði Stella og sýndi okkur myndband með Sonny. Sjá hér (Youtube) „Hér er house dans. Þetta er svo skemmtilegur stíll. Sjúklega erfið fótavinna og maður svitnar endalaust! Það skapast líka geðveik stemmning í þessum tímum, gjörsamlega tryllt," sagði hún. Sjá hér (Youtube). Skráning er í s. 553 0000 í World Class og námskeiðið fer fram í World Class í Laugum.

Sjá næstu 50 fréttir