Randver snýr aftur í Spaugstofuna 13. nóvember 2010 11:00 Bogi og Örvar, fyndnustu rónar landsins, verða sameinaðir á ný eftir að hafa verið stíað í sundur fyrir þremur árum. Randver Þorláksson birtist loksins aftur í Spaugstofunni eftir nokkurra ára fjarveru. „
Það voru miklir fagnaðarfundir á tökustað. Eins og við var að búast,“ segir Karl Ágúst Úlfsson, liðsmaður Spaugstofunnar, en Randver Þorláksson snýr aftur í Spaugstofuna í kvöld þegar hann endurtekur eitt af frægustu hlutverkum þessa spéspegils, rónann Örvar. Randver var sem kunnugt er látinn fara þegar Spaugstofan var á RÚV en hinir fjórir, Karl, Sigurður Sigurjónsson, Pálmi Gestsson og Örn Árnason héldu áfram. Randver hefur ekki birst í neinum gestahlutverkum fyrr en nú og því er um sögulegan viðburð að ræða. „Hann birtist í einum skets, sem er í svona tvær til þrjár mínútur. Okkur fannst kominn tími á að Bogi og Örvar myndu hittast aftur og okkur gafst tækifæri til þess nú.“ Spaugstofan hefur bryddað upp á þeirri nýbreytni að bjóða landsþekktum Íslendingum í þáttinn og hefur Jónínu Benediktsdóttur, Loga Bergmanni og fleirum brugðið fyrir sem þeim sjálfum. Karl segir hins vegar að nærvera Randvers hafi fyllt stjörnukvóta þáttarins. Randver sjálfur vildi gera sem minnst úr aðkomu sinni að þættinum. Og bætir því við að hann hafi ekki séð Spaugstofuna né Stöð 2 í nokkur ár. Hann hafi því ekki enn séð gömlu samstarfsfélagana í nýjum búningum. Sjálfur fékk Randver reyndar nýjan búning fyrir Örvar, rónavin sinn, enda urðu allir leikmunir eftir á gamla vinnustaðnum í Efstaleiti. Randver segist hafa tekið ágætlega í bón vina sinna en biður þó fólk um að gera sér ekki of miklar væntingar, hann sé í mýflugumynd og eigi erfitt með ímynda sér að þetta sé eitthvað sem þjóðin hafi beðið eftir. - fgg
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira