Fleiri fréttir

Gróa á Leiti á hvíta tjaldinu

Kvikmyndin Easy A gæti, miðað við söguþráðinn, heitið Gróa á Leiti enda fjallar myndin um áhrifamátt lyga- og kjaftasagna í unglingasamfélagi.

Keppt til úrslita í Leiktu betur

„Þetta leikhússport er rosa mikið „költ“,“ segir Bryndís Ingvarsdóttir, einn af skipuleggjendum Leiktu betur keppninnar í ár. Úrslit keppninnar verða annað kvöld.

Metallica vaknar til lífsins

Rokkararnir í Metallica ætla að byrja að semja efni á sína tíundu hljóðversplötu á næsta ári. Tvö ár eru liðin síðan Death Magnetic kom út en á henni mátti greina afturhvarf til fyrri verka sveitarinnar.

Tvær íslenskar heimildarmyndir frumsýndar

Tvær íslenskar heimildarmyndir verða frumsýndar um helgina. Gnarr, heimildarmynd Gauks Úlfarssonar um Besta flokks framboð Jóns Gnarr og félaga, hefur þegar vakið mikla athygli og deilur. Gaukur fylgir þar eftir lygilegri velgengni framboðsins sem hægt og bítandi varð stærsta stjórnmálaaflið í Reykjavík með ólíkindatólið Jón Gnarr fremstan í flokki.

Óvænt upprisa leikarans Gíós

„Ég myndi auðvitað segja að þetta væri aðalhlutverkið. Sem það er náttúrulega ekki. En ég fæ að segja nokkrar setningar og Baltasar sýndi mér mikla þolinmæði á tökustað," segir Guðjón Pedersen, fyrrverandi leikhússtjóri Borgarleikhússins.

Páll Óskar stundum alveg á túr í myndatökunum

Páll Óskar og listamaðurinn Oddvar Örn hófu samstarf fyrir nokkrum árum í kjölfarið á Gay Pride í Reykjavík. Afrakstur samstarfsins má berja augum í Smáralind á laugardaginn, en þá hefst sýningin Páll Óskar eftir Oddvar. hirðljósmyndari Oddvar og Páll Óskar hafa unnið saman síðustu ár. Oddvar lætur Pál meðal annars bregða sér í hlutverk gagnkynhneigðs handboltakappa, skáta og pitsusendils.

Plötusnúðar á námskeiði

Plötusnúðanámskeið verður haldið í Tónlistarskóla Akureyrar á laugardaginn. Farið verður yfir öll mikilvægustu atriði plötusnúðatækninnar og hentar námskeiðið vel fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í faginu.

Denzel hinn mikli

Denzel Washington er einn af merkilegustu og fremstu svörtu leikurunum í sögu Hollywood og verður eflaust minnst í sömu andrá og Sidney Poitier, sem ruddi brautina upp á silfurtjaldið fyrir þeldökka Bandaríkjamenn.

Ósáttur Oplev

Neils Arden Oplev, leikstjóri upprunalegu myndanna um tölvuþrjótinn Lisbeth Salander sem finna má í bókum Stiegs Larsson, er ósáttur við að Hollywood skuli vera að endurgera myndirnar sínar.

Rihanna horfir til framtíðar

Rihanna gefur eftir helgi út sína fimmtu plötu, Loud. Söngkonan hefur engan áhuga á að endurgera hina vinsælu Good Girl Gone Bad sem kom út 2007.

Magnað hvað rauður varalitur breytir miklu

Meðfylgjandi má sjá leikkonuna Kate Hudson meðal annars færir söngkonunni Fergie verðlaun fyrir hönd Glamour tímaritsins þar sem konur sem náð hafa árangri á heimsmælikvarða voru verðlaunaðar. Kate var stórglæsileg í síðkjól eins og sjá má í myndasafni. Þá má greinilega sjá hvað rauði varaliturinn gerir mikið fyrir hana.

Án fata barnshafandi

Ofurfyrirsætan Miranda Kerr, 27 ára, situr fyrir í W tímaritinu. Eins og sjá má í myndasafni er Miranda barnshafandi en hún á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, leikaranum Orlando Bloom. Mér líður alveg eins og mér leið áður en ég varð hálaunuð fyrirsæta. Eina sem hefur breyst eru aðstæðurnar og nú er fleira fólk sem ég umgengst," sagði Miranda.

Léttklæddar stelpur á FM957

Leitin að Sloggi stelpunni 2010 stendur nú yfir á útvarpsstöðinni FM 957. Á meðfylgjandi myndum má sjá keppendurna, sem eru tíu talsins, klædda í Sloggi nærföt. Flettu í gegn um myndirnar og veldu svo Sloggi stelpuna 2010 hér.

Órafmögnuð og mjúk partí

„Þetta er orðinn fastur liður og einn af okkar stærstu viðburðum á hverju ári," segir Heiðar Austmann, dagskrárstjóri FM 957. Hin árlegu Eldhúspartí hefja göngu sína á fimmtudagskvöld á skemmti- og veitingastaðnum Austur. Þar koma fram Friðrik Dór, Blaz Roca, Bjarki og félagarnir Steindi Jr. og Ásgeir.

Hætti sem vallarvörður og ákvað að gera gamanþætti

„Ég var svolítið svekktur með þá og fannst þeir fara illa með mig. Ég ákvað hins vegar að horfa fram á veginn, segja upp vallarstjórastarfinu á Vodafone-vellinum og fara í skóla til að læra sjálfur hvernig á að skrifa handrit,“ segir Gestur Valur Svansson leikstjóri.

Hrafninn hefur menninguna til flugs

„Kiljan er elítu-þáttur þar sem er djúpt tekið á málunum og bækurnar gagnrýndar. Þátturinn okkar heitir Segðu mér frá bókinni þinni. Hver rithöfundur hefur sex mínútur til að segja frá verkinu sínu og kynna sig,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, sjónvarpsstjóri ÍNN.

Talandi íslenskur hundur segir „I LOVE YOU"

Sveinn Ásgeir Árnason hárskeri á rakarastofunni Hárbær Laugavegi 168 er eigandi Hjörleifs, 3 ára, sem er hreinræktaður Chihuahua hundur. Það sem merkilegt þykir er að Hjörleifur syngur hástöfum I LOVE YOU með eiganda sínum eins og sjá má í myndskeiðinu. Það var bara núna í sumar sem Hjörleifur byrjaði að syngja. Þá var verið að spila á harmonikku og hann byrjaði allt í einu að syngja," útskýrði Sveinn Ásgeir sem raular með Hjörleifi eins og sjá má.

Eplavikan í Kvennó 90 ára

„Það verður fullt um að vera og nánast allir nemendur taka þátt,“ segir Sindri Már Hjartarson, formaður skólafélags Kvennaskólans í Reykjavík en í þessari viku heldur skólinn upp á 90 ára afmæli Eplavikunnar.

Tímabært að gefa út best of-plötu hérna heima

Barði Jóhannsson og hljómsveit hans, Bang Gang, hafa gefið út þrjár plötur, sem allar hafa hlotið góðar viðtökur. Nú er komin út Best of Bang Gang sem inniheldur lög af plötunum þremur ásamt ábreiðuplötu þar sem Páll Óskar og Dikta eru á meðal flytjenda.

Upplýsingafulltrúi BSRB hinn nýi Randver

„Ég er örugglega ekki eini maðurinn sem hefur hugsað eitthvað í þessa veru. Ég er ekki farinn að ljúga að sjálfum mér að þeir hafi afritað þetta viljandi,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, kynningarfulltrúi BSRB.

Þessum skvísum leiddist ekki

Finlandia Vodka Cup var haldið á NASA á fimmtudaginn síðasta í samstarfi við Barþjónaklúbb Íslands. Um var að ræða stærstu barþjónakeppni sem haldin hefur verið á Íslandi. Fjöldi fólks fylgdist með 43 barþjónum framreiða flotta drykki. Sigurvegarar voru Eyrún Huld Gísladóttir frá Silfur, Hreinn Hjartarson frá Silfur og Daníel Óli Þorláksson frá Veitingarstaðnum LAVA.

Hættulegt að setja sér markmið

Það er hálfsúrrealískt að koma nýr inn á bókamarkaðinn, segir Óskar Hrafn Þorvaldsson blaðamaður og fyrrverandi fréttastóri Stöðvar 2 og Vísis. Fréttablaðið sagði frá því á laugardaginn að aldrei áður hafi verið gefin út jafn mörg íslensk skáldverk og nú. Alls eru 85 íslensk skálverk skráð í Bókatíðindi þetta árið og er það um tólf titlum meira en metárið 2007.

Útgáfupartý Sigríðar Klingenberg

Frábær stemning var í Mál og menningu á Laugaveginum í gærdag þar sem Sigríður Klingenberg kynnti nýju bókina sína Orð eru álög - leiðarvísir að lífsgleði. Sigríður áritaði, las upp úr bókinni og gaf gestum álagasteina sem vöktu mikla lukku nærstaddra.

Spiderman frestað

Frumsýningu Spiderman-söngleiksins á Browadway eftir Bono og The Edge úr U2 hefur verið frestað. Söngleikurinn átti að hefjast í New York 14. nóvember en núna hefur uppfærslunni verið frestað um að minnsta kosti viku. Samkvæmt fregnum vestanhafs eru æfingarnar ekki komnar nógu langt á veg til að Spiderman geti farið á fjalirnar. Svo gæti meira að segja farið að söngleikurinn verði ekki frumsýndur fyrr en í desember eða snemma á næsta ári. Bono og The Edge sömdu tónlistina við söngleikinn en hafa ekki tekið þátt í æfingaferlinu.

Konur hafa mikinn áhuga á kynlífi og karlmönnum

„Við ætlum að búa til stelpupartý. Þar sem stelpur eru með stelpum og ekkert er bannað,“ segir Hlín Einarsdóttir, ritstjóri vefmiðilsins Bleikt.is, sem opnar á næstu vikum.

Góðar sögur í útgáfuteiti

Hið árlega bókaflóð sem skellur yfirleitt í bókabúðum um jólin er farið að láta á sér kræla og nýjar íslenskar bækur prýða nú glugga velflestra bókabúða. Bókaforlagið Sögur hélt veglegt útgáfuteiti í Eymundsson við Skólavörðustíg þar sem rithöfundar komu við og lásu uppúr verkum sínum við góðar undirtektir gesta og gangandi. Þá eldaði kokkalandsliðið uppúr nýjustu

Bræður á topplista

Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir gera það báðir gott í poppinu og eiga lög á vinsælarlistum. „Ég held að salan á plötunni gangi bara mjög fínt,” segir Friðrik Dór Jónsson sem á dögunum gaf út plötuna Allt sem þú átt, en hún er í 3. sæti á Tónlist.is. Það er ekki aðeins

Ásdís Rán mætir í saumaklúbba landsins

„Ég næ yfirleitt ekki að svara öllum þeim fyrirspurnum sem ég fæ í pósthólfið mitt og ákvað því að bjóða upp á svona þjónustu til að gefa konum kost á að hitta mig persónulega og spyrja mig ráða,“ segir Ásdís Rán fyrirsæta en

Vill leiðrétta mistökin

Leikarinn Sam Worthington vonar að mistökin sem voru gerð í hasarmyndinni Clash of the Titans verði leiðrétt í framhaldinu sem er væntanlegt. Hinn ástralski Worthingtonlék Perseus í fyrri myndinni. Hún fékk slæma dóma gagnrýnenda, en góða aðsókn eigi að síður. „Fyrri myndin var rökkuð niður en græddi samt hálfan milljarð dollara. Þegar við búum til næstu mynd ætlum við að leiðrétta mistökin úr þeirri fyrri. Ég vil til dæmis breyta Perseusi. Aðalstjarnan á ekki að vera nauðasköllótt.“

Dóttirin í forgang

Leikkonan Jessica Alba vill ekki yfirgefa dóttur sína, Honor Marie, til að leika í kvikmynd nema hún sé handviss um að myndin verði góð. Alba á hina tveggja ára dóttur með eiginmanni sínum Cash Warren.

Nýtt og gott tímabil að hefjast í lífi Karls Gústavs

„Þessi stormur í kringum bókina er nýr og góður kafli í lífi konungsins. Það kæmi mér ekki á óvart ef Karl Gústaf verði laus og liðugur áður en langt um líður,“ segir Sigríður Klingenberg spámiðill.

Morr dreifir nýrri plötu Miri

Útgáfufyrirtækið Kimi Records ætlar að dreifa fyrstu plötu hljómsveitarinnar Miri, Okkar, í Evrópu undir merkjum þýsku útgáfunnar Morr. Svipaður háttur hefur verið hafður á með plötur hljómsveitanna FM Belfast og Benna Hemm Hemm, sem eru báðar á mála hjá Kimi.

Stórglæsilegt bíó

Sambíóin opnuðu nýtt bíó í Egilshöll sem er talið vera með þeim glæsilegustu í Evrópu. Góðir gestir mættu í opnunarhófið sem var haldið á fimmtudagskvöld. Eftir hófið var gamanmyndin Due Date sýnd og var góður rómur gerður að ræmunni og hinum glænýju bíósölum.

Ný plata frá Aguilera

Söngkonan Christina Aguilera vill ekki vera eftirbátur Britney Spears því hún er líka að undirbúa nýja plötu. Fyrr á þessu ári gaf Aguilera út sína fjórðu hljóðversplötu, Bionic, sem fékk dræmar viðtökur. Innan við milljón eintök seldust, sem er það lélegasta á ferli söngkonunnar. „Núna langar mig að

Lína Rut, Harpa og Una heiðraðar

Meðfylgjandi myndir voru teknar á svokölluðu Listakvöldi Baileys 2010 sem haldið var í gærkvöldi á Maritime museum í Grandagarði. Þrjár íslenskar listakonur, Lína Rut, Harpa Einarsdóttir og Una Hlín Kristjánsdóttir, sem skarað hafa fram úr og sett mark sitt á tísku og tíðaranda með dugnaði og listrænni sýn undanfarið ár voru heiðraðar.

Loksins saman á tónleikum

Tónlistarmennirnir og vinirnir Gylfi Ægisson, Rúnar Þór og Megas stigu á svið í Austurbæ þar sem þeir fluttu lög af plötu sinni MS GRM. Samvinna þessara þriggja landsþekktu, en í leiðinni gjörólíku manna sem höfðu aldrei komið fram saman á tónleikum fyrr, tókst vel og svo virðist sem þetta óvenjulega

Hundelt með barnið í fanginu

Sandra Bullock, 46 ára, hélt þéttingsfast utan um son sinn, Louis, í gær á hlaupum um götur New York borgar. Sandra hefur verið hundelt af ljósmyndurum allan sólahringinn eftir að hún skildi við mótorhjólaframleiðandann Jesse James og ættleiddi Louis. Framhjáhald James kom eins og elding úr heiðskíru lofti stuttu eftir að Bullock vann Óskarsverðlaun fyrir besta leik síðasta vor og skildu þau í kjölfarið eftir fimm ára hjónaband. „Louis er níu mánaða gamall og Sandra nýtur þess að sinna honum en nú er kominn tími til að verða ástfangin að hennar mati," er haft eftir nánum vini Söndru sem sagði jafnframt að Sandra lætur oftar til leiðast að kíkja á næturlífið í fylgd vina í Hollywood þar sem hún skoðar úrvalið.

Handboltinn er þjóðaríþróttin

Þorsteinn Joð Vilhjálmsson skiptir yfir í handboltann. Hann verður ekki í vandræðum með að finna álitsgjafa enda næstum annar hver maður verið atvinnumaður í íþróttinni.

Goðsagnakennd Mínusmynd sýnd á ný

Heimildarmynd um harðkjarnasveitina Mínus verður fyrsta mynd stofnkvölds kvikmyndaklúbbsins Arnarhreiðursins, sem hefur aðsetur í Bíó Paradís. Myndin þótti það umdeild á sínum tíma að hún átti aldrei að koma fyrir augu almennings og er því sveipuð eins konar goðsagnakenndum ljóma. Myndin verður sýnd á miðvikudag klukkan 20.30.

Frægri Benz-bifreið stolið

Bíl kvikmyndagerðarmannsins Heimis Sverrissonar var stolið fyrir utan heimili hans á Njálsgötu á miðvikudaginn var. Bíllinn er grænn Benz af árgerðinni 1979 og því um antíkgrip að ræða.

Kaldhæðin örlög Stefáns Karls

„Þetta er mjög kaldhæðið og í raun bara ömurlegt. En svona er bara þessi bransi og það verða bara Skype-jól í ár,“ segir Stefán Karl Stefánsson leikari.

Myndskeið á ógnarhraða

Almenningsútvarp Bandaríkjanna, National Public Radio, sýndi fyrir skömmu beint á netinu frá tónleikum Jónsa úr Sigur Rós í hinu sögufræga Wiltern Theater í Los Angeles. Þetta var í fyrsta skipti sem NPR sýndi beint frá

Svitna til góðs á Hressleikum

„Við ætlum að reyna að ná tvö hundruð manns á leikana. Við búumst fastlega við því að við náum því,“ segir Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri líkamsræktarstöðvarinnar Hress.

Pollapönk fagnar plötu

Hljómsveitin Pollapönk heldur útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 14. nóvember og er miðasalan hafin á Midi.is. Tilefnið er útgáfa plötunnar Meira Pollapönk sem kom út í sumar. Þar er meðal annars að finna hið vinsæla lag 113 vælubíllinn. Pollapönk er skipuð leikskólakennurunum Haraldi F. Gíslasyni og Heiðar Erni Kristjánssyni sem hafa oft verið kenndir við rokksveitina Botnleðju. Með þeim í hljómsveitinni eru Arnar Þór Gíslason og Guðni Finnsson úr Ensími.

Sjá næstu 50 fréttir