Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Var 120 kíló þegar hún ákvað að fara í hjáveituaðgerð Elísabet Stefánsdóttir var 120 kíló og innan við 1,60 á hæð þegar hún ákvað að fara í hjáveituaðgerð. Eftir aðgerðina og óteljandi daga í ræktinni er Elísabet nú helmingi léttari eða 60 kg. Rætt var við Elísabetu í Íslandi í dag í þætti kvöldsins. 31.8.2009 20:54
Ísland í dag: Kona missti helming líkamsþyngdar sinnar Í þætti kvöldsins kynnumst við ungri konu sem þjáðist af offitu en þrátt fyrir að vera undir 160 á hæð var hún 120 kg þegar hún ákvað að gera eitthvað í sínum málum. Hún byrjaði að æfa, fór í hjáveituaðgerð, hélt áfram að æfa og er í dag aðeins 60 kg. Við heyrum sögu hennar og tölum við Þórdísi Kjartansdóttur lýtalækni sem hleypti okkur jafnframt inn á skurðstofu til sín þar sem hún framkvæmdi svokallaða svuntuaðgerð á konu, en sú aðgerð er oft framkvæmd í framhaldi af hjáveituaðgerð. Fylgist því með Íslandi í dag hér eftir smá stund. 31.8.2009 15:13
Barnastjarna barnsfaðir Michael Jackson Talið er að raunverulegur faðir sonar Michael Jacksons, Blankett (e. teppi) sé barnastjarnan Macaulay Culkin. Þessu heldur The Sun fram og hefur eftir nafnlausum heimildarmanni. Þá á Jackson einnig dótturina Paris og svo soninn Michael. 31.8.2009 15:04
Ásdís Rán meikar það með Apple „Þetta er mitt stærsta verkefni hingað til og hefur verið í þróun síðustu mánuði, segir Ásdís Rán sem heldur nú úti sérstöku VIP bloggi í samvinnu við Apple. „Verkefnið er nú orðið að veruleika og er komið í loftið world wide," segir Ásdís og heldur áfram: „Ég vann þetta í samvinnu við Apps N' Ads í Danmörku og Apple Int. App-ið er dagatal með um 30 af mínum bestu myndum frá sirca síðustu 2 árum með því fylgir svo sérstakt VIP blog með daglegum færslum, þ.e.a.s í hvert skipti sem þú opnar dagatalið færðu nýja mynd og twitter blog færslu frá mér," útskýrir Ásdís. „The IceQueen Official app kostar 4.99 dollara og er hægt að downlóda úr ITune búðinni," segir Ásdís en hér er linkurinn. „Ég er semsagt fyrsta modelið sem nýti mér þessa tækni frá Apple og er reiknað með að þetta sé bara fyrsta IceQueen applicationið sem fer í loftið af mörgum. Það er bara vonandi að það gangi upp til enda og að fólk downlódi þessu! Þetta er rosalega stór dagur í lífi mínu og vonandi getið þið nú öll glaðst með mér," segir hún ánægð. „Það er að vísu einn galli í þessu og það er að íslendingar eiga erfitt með að versla þetta á netinu nema þá með erlendum kortum því að ITunes búðin er víst ekki kominn ennþá á Íslandi." 31.8.2009 14:09
Sjónvarpskokkur stýrir þrautakóngi í Argentínu „Mér líst vel á þetta, hef horft á þættina með öðru auganu en krakkarnir mínir hafa skemmt sér konunglega yfir þessu," segir Friðrika Hjördís Geirsdóttir sem verður kynnir í íslensku útgáfunni af Wipeout eða Þrautakóngi. Wipeout eru að verða eitt helsta æðið í sjónvarpsbransanum um allan heim en sjónvarpsstöðvar frá yfir tuttugu löndum hafa gert slíka þætti. 31.8.2009 00:01
Busavígsla og busaskemmtun FG 2009 Busavígslan í FG fór fram þann 27.ágúst síðastliðin og fór hún mjög vel fram. 30.8.2009 17:03
Fyrrverandi Iceland andlitið getur ekki hætt fíkniefnaneyslu Kerry Katona, fyrrverandi andlit Iceland verslunarkeðjunnar, segist alls ekki geta hætt vímuefnanotkun þrátt fyrir að fíknin sé að gera út af við líf hennar. „Ég bara get ekki hætt,“ hefur News of the World eftir Kerry. Mikið hefur gengið á í lífi Katona að undanförnu en hún sást opinberlega neyta fíkniefna og var myndskeið birt af neyslunni. Þrátt fyrir þrýsting frá ástvinum sínum neitar hún að fara í meðferð. 30.8.2009 17:37
Kelly Preston enn í miðju sorgarferli Kelly Preston hefur ákveðið að tjá sig ekki um andlát 16 ára gamals sonar hennar á ráðstefnu sem haldin er í Kalíforníu í október. 29.8.2009 17:57
Geta sturtað í sig ís í Hveragerði Blómstrandi dagar fara fram í Hveragerði um helgina. Af því tilefni er árlegur Ísdagur Kjörís haldinn en fyrirtækið heldur upp á 40 ára afmæli sitt í ár og því hefur verið lagt enn meira í dagskrá Ísdagsins en venja hefur verið. 29.8.2009 13:10
Föðurland vort hafið Í gær var ný samsýning opnuð í Hafnarborg helguð hafinu í myndlist. Sýningin nýtur stuðnings Hafnarfjarðarhafnar sem nú fagnar 100 ára afmæli sínu. 29.8.2009 06:00
Gordon hættir ekki að tala um lundann Breski sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsay virðist hafa orðið hugfanginn af dvöl sinni í Vestmanneyjum og ekkert síður af hinum íslenska lunda. Hann getur hreinlega ekki hætt að tala um fuglinn og eyjarnar í erlendum fjölmiðlum. Ramsay var þannig í viðtali við spjallþáttastjórnandann Jimmy Kimmel og ræddi þar um hvernig hann hefði veitt lundann, rifið úr honum hjartað og borðað það hrátt. Fuglinn hefði síðan verið grillaður og borinn fram með fersku gúrkusalati. 29.8.2009 06:00
Æfa Húmanimal á ensku „Ég og vinir mínir sem settum upp sýninguna Húmanimal í Hafnafjarðarleikhúsinu síðasta vor stöndum nú í ströngu við að æfa sýninguna upp á ensku,“ segir Álfrún Helga Örnólfsdóttir leikkona. Tilefni þess að hópurinn ræðst í að æfa sýninguna á ensku er þátttaka þeirra á LÓKAL-leiklistarhátíðinni sem fer fram dagana 3. til 6.september næstkomandi, en Húmanimal hlaut einróma lof gagnrýnenda og níu tilnefningar til Grímunnar 2009. 29.8.2009 06:00
Afslappað par Leikarinn Orlando Bloom og kærasta hans, ástralska fyrirsætan Miranda Kerr, skemmtu sér saman á tónleikum hljómsveitarinnar Kings of Leon á dögunum. 29.8.2009 06:00
Áhöfnin á Halastjörnunni snýr aftur eftir 25 ára hlé Áhöfnin á Halastjörnunni, sem er skipuð þeim Gylfa Ægissyni, Hemma Gunn og Ara Jónssyni, hélt sjaldgæfa tónleika á Kringlukránni í gærkvöldi og ætla þeir félagar að endurtaka leikinn í kvöld. Á efnisskránni eru slagarar á borð við Stolt siglir fleyið mitt og Ég hvísla yfir hafið. 29.8.2009 06:00
Ljósið vekur mikla athygli Nýtt myndband við lag tónlistarmannsins Ólafs Arnalds, Ljósið, hefur vakið gríðarlega athygli víða um heim, sérstaklega á meðal grafískra hönnuða. 29.8.2009 06:00
Íslensk stelpa opnar Lomo-verslun í London Hadda Hreiðarsdóttir mun opna sérstaka Lomography-verslun í miðborg London ásamt sambýlismanni sínum, Adam Scott. Verslunin, sem verður opnuð 10. september og heitir Lomography Gallery Store, London, verður fyrsta sérhæfða Lomography-verslunin í London. 29.8.2009 06:00
Sonur Rúnars Júl spilar með GCD á Ljósanótt „Þetta væri ekki hægt nema vegna þess að partur af Rúnari er með okkur,“ segir Bubbi Morthens. Rokksveitin GCD ætlar að koma saman á Ljósanótt í Keflavík 4. september til að heiðra minningu fyrrum félaga síns Rúnars Júlíussonar sem lést á síðasta ári. Yfirskrift viðburðarins verður „Óður til Rúnars“. 29.8.2009 05:45
Loksins skilin Leikarinn Eddie Cibrian er nú endanlega skilinn við eiginkonu sína til sjö ára, Brandi Glanville. Upp komst um ástarsamband Cibrians og mótleikkonu hans, söngkonunnar LeAnn Rimes, fyrir stuttu en þau léku saman í sjónvarpsmyndinni Northern Lights. 29.8.2009 05:30
Hnefaleikar hjálpuðu til Leikarinn Mickey Rourke kennir sjálfum sér um að hafa verið fjarri sviðsljósinu í rúman áratug. „Það er betra að vinna ekki heldur en að vinna og vera á sama tíma öllum gleymdur. Ég var núll og nix í tólf til þrettán ár. 29.8.2009 05:15
Túnfiskís í boði Árleg íshátíð á vegum Kjöríss í Hveragerði verður haldin í dag. Hátíðin er haldin í tengslum við Blómstrandi daga í Hveragerði en verður stærri í sniðum en venjulega vegna fjörutíu ára afmælis Kjöríss. 29.8.2009 05:00
Sinfónískir áhugamenn Þær eru ekki margar sinfóníuhljómsveitirnar sem starfa í landinu. Tvær þeirra eru skipaðar atvinnumönnum, tvær áhugafólki, önnur ungum hljóðfæraleikurum og hin fullnuma tónlistarfólki sem starfar sem áhugamenn. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna var stofnuð 1990 og hefur starfað óslitið síðan. Hljómsveitina skipa að jafnaði fjörutíu til sextíu manns. Hún starfar frá september og fram í maí ár hvert. 29.8.2009 04:45
Menntamálaráðherra til Toronto „Íslenskir skattgreiðendur borga ekki krónu heldur borgar Norræna ráðherranefndin brúsann,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. 29.8.2009 04:30
Hreinskilin á nýrri plötu Næsta plata söngkonunnar Avril Lavigne, sem kemur út í nóvember, verður nokkuð öðruvísi en hennar síðustu verk. Lavigne leitaði inn á við til að finna rétta hljóminn, hrátt rokk verður í fyrirrúmi, knúið áfram af kassagítarspili. 29.8.2009 04:15
Thurman í Girl Soldier Uma Thurman hefur tekið að sér aðalhlutverkið í myndinni Girl Soldier sem Will Raee mun leikstýra. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum og fjallar um alræmda uppreisnarmenn í Úganda sem námu á brott yfir eitt hundrað skólastúlkur. 29.8.2009 04:00
Raquela tilnefnd Kvikmyndin The Amazing Truth About Queen Raquela hefur hlotið tilnefningu í ár til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Leikstjóri og handritshöfundur er Ólafur Jóhannesson, meðhöfundur er Stefan Schaefer og framleiðendur eru þeir Ólafur og Stefan ásamt Helga Sverrissyni og Arleen Cuevas. Alls eru fimm myndir tilnefndar, ein frá hverju Norðurlandi, og eru sigurverðlaunin 350.000 danskar krónur (um 8,7 milljónir íslenskra króna), sem skiptast á milli leikstjóra, handritshöfunda og framleiðenda. 29.8.2009 03:45
Eiki feiti slær í gegn í miðbænum „Við bjóðum upp á stóran salatbar, súpur og brauð, kaffi, deserta, ávaxtabar, ýmsar tegundir pastasalata og heitan mat í hádeginu. Í sumar höfum við líka verið með sérstakt tilboð þar sem við bjóðum upp á svokallað „all you can eat“-hlaðborð fyrir þúsund krónur,“ segir kokkurinn Eiríkur Friðriksson, betur þekktur sem Eiki feiti, en hann opnaði veitingastaðinn Feita tómatinn í kjallara Iðuhússins í júlí. 29.8.2009 03:15
Kirsten Dunst dottin í það Tímaritið National Enquirer greindi nýlega frá því að sést hefði til leikkonunnar Kirsten Dunst ofurölvi á skemmtistaðnum Tropicana Bar í Los Angeles. 29.8.2009 03:15
Teiknari á uppleið í Kaupmannahöfn Jón Kristján Kristinsson er ungur teiknari sem býr í Kaupmannahöfn og rekur þar fyrirtækið Framebender auk fjögurra annarra. 29.8.2009 03:00
Nýtt myndband GusGus frumsýnt Nýtt myndband hljómsveitarinnar Gus Gus við lagið Add This Song verður frumflutt hjá bresku útgáfunni af Myspace á mánudaginn. 29.8.2009 02:45
Börnin og dauðinn mætast Myndir af látnum börnum eru daglegur viðburður í vestrænum fjölmiðlum. Hungur, stríð, og slys tortíma þeim langt fyrir aldur fram. Nú stendur yfir í Þjóðleikhúsinu í samstarfi við ASSITEJ, samtök barnaleikhúsa, námskeið þar sem tekist er á við hvernig leikhúsið megni að ræða dauðann við börnin okkar. 29.8.2009 02:30
Fjölskrúðug og yndisleg múm Dómar um nýjustu plötu múm, Sing Along to Songs You Don’t Know, hafa verið að birtast í erlendum fjölmiðlum að undanförnu. Bestu dómana fær hún í breska tímaritinu Mojo, eða fimm stjörnur, en The Guardian gefur henni hins vegar þrjár stjörnur og tímaritið Q aðeins tvær af fimm mögulegum. 29.8.2009 02:15
Kínverji með fyrirlestur Kínverjinn Ni Bing, sem hefur mikið látið að sér kveða í tónleikahaldi og klúbbasenunni í Kína, hefur bæst í hóp þeirra sem halda fyrirlestur á ráðstefnunni You Are In Control sem fer fram í Reykjavík í september. 29.8.2009 02:15
Geir í rauða hverfinu í Mosó Öll hverfi Mosfellsbæjar verða skreytt mismunandi litum á hinni árlegu bæjarhátíð sem hófst í gær og lýkur á morgun. Litirnir verða bleikir, bláir, gulir og rauðir eftir því um hvaða hverfi er að ræða. 29.8.2009 02:00
Sundlaugapartý í Vesturbæ Vestubæingar eru nú á endaspretti söfnunnar fyrir nýju fiskabúri í anddyrir Vesturbæjarlaugarinnar. Mímir-Vináttufélag Vesturbæjar stendur að söfnuninni sem lýkur með veglegri fjölskylduhátíð í lauginni í dag. 29.8.2009 02:00
Mjólkar sig á Hverfisgötu í dag „Báðir synir mínir fæddust fyrir tímann og þurftu því að dvelja á vökudeild Barnaspítala Hringsins eftir fæðingu. Ég gat ekki tekið þá á brjóst og þurfti því að nota mjaltavél við það. Mér þótti þetta svolítið fjarstæðukennt en á sama tíma fannst mér þetta nokkuð myndrænt og mér datt í hug að nota þessa reynslu í gjörning,“ segir Katrín I. Jónsdóttir Hjördísardóttir listamaður, sem verður með allsérstakan gjörning á vinnustofu sinni við Hverfisgötu 61 í dag. 29.8.2009 01:30
Leita af dönsurum í Spiral „Við erum komin með skýra stefnu um hvað við ætlum að gera og erum að gera heildstæðara „lúkk“ fyrir hópinn,“ segir Unnur Gísladóttir framkvæmdastýra Spiral, fyrrum stúdentadansflokksins. 29.8.2009 01:15
Stofnar nýja söngleikjadeild „Það er skrítið að þetta skuli ekki vera komið fyrr miðað við vinsældirnar á þessu leiklistarlistarformi," segir Ívar Helgason, söngvari, leikari og dansari. Ívar mun sjá um nýja söngleikjadeild innan Söngskólans í Reykjavík í haust í fyrsta sinn og verða áheyrnarprufur haldnar 2. september. 29.8.2009 01:00
Kvíðir bleiuskiptingum Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian, sem á von á sínu fyrsta barni í desember, segist kvíða því einna mest að þurfa að skipta um bleiur. 29.8.2009 00:30
Foo Fighters með safnplötu Rokkararnar í Foo Fighters ætla að gefa út nýja safnplötu síðar á þessu ári. Platan nefnist einfaldlega Greatest Hits og kemur út 2. nóvember. Á henni verða lög af fjórtán ára ferli Dave Grohl og félaga auk að minnsta kosti tveggja nýrra laga. 29.8.2009 00:30
Elma Lísa á trúnó „Fatamarkaðurinn verður í Félagi íslenskra leikara að Lindargötu 6 fyrir aftan Þjóðleikhúsið," svarar Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona sem ætlar að selja notuð föt og fleira fínerí á morgun. „Markaðurinn byrjar klukkan ellefu á morgun og er opin til sex. Ég og Silja Hauks leikstjóri erum saman að halda þetta," segir Elma Lísa. Hvað ætlið þið að selja? „Fullt af alls konar dótir og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi þarna." Bara fyrir konur? „Nei það verða einhver strákaföt líka. Skór, töskur, glingur og góss og svo er opið hús í báðum leikhúsunum á morgun." „Það er rosa mikið að gera því bæði leikhúsinu verða með opin hús. Hjá okkur verða óvæntar uppákomur, heitt á könnunni og trúnóhorn - og það er ókeypis." Ferðu þá á trúnó? „Já ég get tekið hornið af og til og ráðlagt fólki," svarar hún hlæjandi. 28.8.2009 12:48
Fá lagahöfunda út úr skápnum Tónlistarhátíðin Melodica Acoustic Festival fer fram um helgina, en þetta mun vera í þriðja sinn sem hátíðin er haldin. 28.8.2009 06:00
Raul vill komast í raunveruleikasjónvarp Einkaþjálfarinn Raul Rodriguez, sem var nokkuð áberandi hér á landi um tíma, hefur fundið ástina að nýju. Sú heppna heitir Jorie McDonald og er sundfatafyrirsæta í Los Angeles. 28.8.2009 06:00
Kate Winslet kemur Kela í heimsfréttirnar „Við réðum sérstaka PR-manneskju fyrir ferð okkar út og hún sendi út litla fréttatilkynningu um að Kate talaði inn á myndina. Hún sagðist aldrei á ævinni hafa fengið önnur eins viðbrögð," segir Margrét Dagmar Ericsdóttir, móðir Kela, sólskinsdrengsins, og framleiðandi heimildarmyndarinnar um hann, Sólskinsdrengurinn. 28.8.2009 05:15
Q4U nýtur vinsælda í Berlín „Það er komið eitthvað Q4U-költ í Berlín og það veit enginn út af hverju," segir Gunnþór Sigurðsson, bassaleikari pönksveitarinnar Q4U. 28.8.2009 05:00
Maraþon í hversdagsleika Í gær fóru fyrstu Eðlileikarnir, maraþon í hversdagsleika, fram. 28.8.2009 04:00
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp