Menntamálaráðherra til Toronto 29. ágúst 2009 04:30 Á leið til Norður-Ameríku Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, mun kynna íslenskar og norrænar kvikmyndir á vegum norrænu ráðherranefndarinnar. „
Íslenskir skattgreiðendur borga ekki krónu heldur borgar Norræna ráðherranefndin brúsann," segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Hún er á leið til Toronto á kvikmyndahátíðina þar í borg til að kynna og veita norænni kvikmyndagerð brautargengi. Íslendingar eru í forsæti fyrir norrænu ráðherranefndina í ár og var Katrín beðin um að mæta á vegum hennar til Toronto. „Já, til að sýna að stjórnvöld styddu nú rækilega við bakið á norænni kvikmyndagerð. Enda skilst mér að það sé mjög mikið af merkilegum myndum frá Norðurlöndunum þetta árið," segir Katrín. Og það má til sanns vegar færa; Anti-Christ eftir Lars von Trier, The Good Heart eftir Dag Kára og svo auðvitað Sólskinsdrengurinn í leikstjórn Friðriks Þórs þar sem Kate Winslet verður sögumaður. Katrín viðurkennir að hún hafi aldrei komið vestur um haf, verandi vinstra megin í hinu pólitíska litrófi hefur Norður-Ameríka ekkert heillað neitt sérstaklega. Þetta sé því í raun tímamótaferð í hennar lífi. Og svo skemmtilega vill til að menntamálaráðherra verður að öllum líkindum í loftinu þann 11. september, þegar öryggisgæsla verður í hámarki enda dagsetningin meitluð í stein vegna árásanna á Tvíburaturnanna fyrir átta árum. „Já, þetta verður hressandi," segir Katrín sem viðurkennir þó að hún sé spennt fyrir Kanadaferðinni. „Mér skilst að þarna séu sóknarfæri fyrir norræna kvikmyndagerð, að koma henni á framfæri við hinn vestræna heim og það er bara gaman að fá að taka þátt í því."
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira