Áhöfnin á Halastjörnunni snýr aftur eftir 25 ára hlé 29. ágúst 2009 06:00 áhöfnin á halastjörnunni Ari Jónsson, Gylfi Ægisson og Hemmi Gunn skipa hljómsveitina Áhöfnin á Halastjörnunni sem leikur á Kringlukránni í kvöld. fréttablaðið/arnþór
Áhöfnin á Halastjörnunni, sem er skipuð þeim Gylfa Ægissyni, Hemma Gunn og Ara Jónssyni, hélt sjaldgæfa tónleika á Kringlukránni í gærkvöldi og ætla þeir félagar að endurtaka leikinn í kvöld. Á efnisskránni eru slagarar á borð við Stolt siglir fleyið mitt og Ég hvísla yfir hafið. „Fyrir 25 árum komum við í eina skiptið fram opinberlega í Búðardal. Síðan gerðum við ekkert í málinu fyrr en eftir minningartónleikana hjá Rúnari Júl, sem var útgerðarmaður og skipstjóri," segir Hemmi Gunn um endurkomu Áhafnarinnar á Halastjörnunni á Kringlukránni í kvöld. „Við tókum létta æfingu fyrir tveimur mánuðum í Keflavík til að kanna hvort endurkoma væri möguleg og það reyndist vera. Þetta byggist allt á léttum anda. Gylfi er svo ótrúlega skemmtileg týpa, svo „orginal"." Áhöfnin æfði saman á fimmtudaginn og að sögn Hemma var hlegið stanslaust í tvo tíma. „Þetta eru lög sem allir þekkja. Það er svo mikill aragrúi góðra laga sem kallinn hefur samið," segir hann og útilokar ekki að sveitin haldi áfram að spila. „Ef þetta gengur vel ætlum við að halda því opnu því við höfum svo mest gaman af þessu sjálfir." Stutt er síðan Áhöfnin atti kappi við Sigur Rós í spurningarþættinum Popppunkti á Rúv þar sem léttleikinn var að sjálfsögðu í fyrirrúmi. „Þeir höfðu rosalega gaman af þessu," segir Hemmi um Sigur Rós. „Þetta er sá þáttur sem hefur verið mest „dánlódaður" úr Ríkissjónvarpinu, úti um allan heim. Við viljum meina að það sé út af okkur," segir hann og skellihlær. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira