Fleiri fréttir

Moss og Miller í hár saman

Kate Moss og Sienna Miller voru staddar í brúðkaupi sameiginlegs vinar í London um helgina. Það eitt og sér þykir varla frásögu færandi en þegar þegar ótæpilega mikið magn af áfengi var komið inn fyrir þeirra varir hitnaði verulega í kolunum og úr varð ærlegt stelpurifrildi.

Garðar Thór og Diddú æfa fyrir stórtónleika í London

Garðar Thór Cortes og Diddú eru þessa stundina að leggja lokahönd á undirbúning fyrir stórtónleika í Barbican Centre í London sem haldnir verða annað kvöld. Garðar Thór er fyrsti Íslendingurinn sem heldur tónleika í þessum tónleikasal sem er talinn einn sá besti í heimi.

Clooney og kærastan komin á ról eftir mótorhjólaslys

Hjartaknúsarinn George Clooney og nýja kærastan Sarah Larson eru strax risin upp af sjúkrabeðinu eftir mótorhjólaslys sem þau lentu í síðastliðinn föstudag. Þau mættu að minnsta kosti galvösk á frumsýningu nýjustu myndar Clooneys, Michael Clayton, í New York í gær.

Útvarpsstjörnur á skólabekk

Morgunhaninn Heimir Karlsson sem flestir kannast við úr Íslandi í bítið og eins úr íþróttaþættinum 442 er sestur á skólabekk ásamt kollega sínum Kristjáni Frosta Logasyni sem lengi hefur verið útvarpsmaður á X-inu. Þeir félagar skráðu sig báðir í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands í haust og hafa byrjað önnina með miklum trukki.

Timberlake með flestar tilnefningar til evrópsku MTV-verðlaunanna

Söngvarinn Justin Timberlake hefur fengið flestar tilnefningar til evrópsku MTV-verðlaunanna, eða alls fjórar. Þau Amy Winehouse, Avril Lavingne, Beyonce, Fall Out Boy, Linkin Park, My Chemical Romance, Nelly Furtado og Rihanna eru öll með þrjár tilnefningar.

Prins Jóakim reykir tvo pakka á dag

Prins Jóakim hinn danski reykir nú tvo pakka af sígarettum á dag. Sígaretturnar eru sérframleiddar fyrir prinsinn hjá Skandinavisk Tobakskompagni og fær hann þær í pökkum sem merktir eru einkennismerki hans og undirskrifinni H.K.H. Prins Joachim. Að sjálfsögðu er einnig hin hefðbundna aðvörun um hve heilsuspillandi sígarettur eru á pökkunum.

Tyson aftur á leið í fangelsi

Mike Tyson fyrrum heimsmeistari í þungavikt í hnefaleikum er aftur á leið í fangelsi. Í þetta sinn fyrir kókaín-neyslu og að hafa haft kókaín undir höndum. Tyson kvaðst sekur af þessum gælpum við fyrirtöku málsins í dag hjá héraðsdómi í Arizona. Hann gæti fengið meir en fjögurra ára dóm.

Aguilera kaupir hús Osbourne hjónanna

Ozzy Osbourne og eiginkona hans Sharon hafa selt hús sitt í Beverly Hills þar sem raunveruleikaþættirnir um fjölskylduna voru teknir upp. Það var ólétta poppstjarnan Christina Aguilera sem keypti af þeim húsið á tæplega 750 milljónir íslenskra króna.

Berst fyrir Bobby í Bandaríkjunum

Einkaþjálfarinn Raul Rodriguez, sem um tíma var áberandi í íslensku þjóðlífi en er nú búsettur í Los Angeles, vinnur nú hörðum höndum að því að hreinsa skáksnillinginn og íslenska ríkisborgarann Bobby Fischer af öllum sökum svo að hann geti heimsótt sitt gamla föðurland.

Hamskiptin frumsýnd á fimmtudag

Hamskiptin eftir Franz Kafka verða frumsýnd á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu á fimmtudaginn næstkomandi. Um er að ræða nýja íslenska uppfærslu á sýnungu leikhópsins Vesturports sem frumsýnd var í Lyric Hammersmith leikhúsinu í London í fyrra og hlaut góðar viðtökur.

Efstir á óskalistanum

Í hverri viku koma út nýir tölvuleikir fyrir leikjatölvurnar. Sumir vekja litla athygli, en öðrum hafa leikjaáhugamenn beðið eftir árum saman. Fréttablaðið skoðaði þá þrjá leiki sem eru efstir á óskalistanum fyrir Nintendo Wii, Playstation 3og Xbox.

Goody viðurkennir að hafa verið háð megrunarpillum

Breska Big Brother stjarnan Jade Goody viðurkennir að hafa um langt skeið verið háð megrunarpillum en hún hefur lengi átt í baráttu við aukakílóin. Goody missti tugi kílóa eftir að hún varð fræg fyrir þátttöku sína í Big Brother árið 2002 en hefur eftir það ýmist blásið út eða skroppið saman.

Salma Hayek orðin léttari

Leikkonan Salma Hayek og unnusti hennar Francois-Henri Pinault hafa eignast litla dóttur sem hefur fengið nafnið Valentina Paloma Pinault. Að sögn Cari Ross, upplýsingafulltrúa parsins, heilsast móður og barni vel.

Victoria Beckham með verstu brjóstaskoruna

Lýtalæknirinn, Patrick Mallucci, hefur lagst í rannsóknir á bestu og verstu brjóstaskorunni og komist að þeirri niðurstöðu að módelið Caprice Bourret skarti fegursta barminum á meðan Victoria Beckham þykir bera þann versta.

Pete hittir pabba sinn á ný

Dóphausinn Pete Doherty sem nú er staddur á Clouds House meðferðarstofnuninni í Wiltshire fékk pabba sinn nýlega í heimsókn en þeir feðgar hafa ekki hisst í um þrjú ár.

Raunveruleikaþáttum í Kína settar skorður

Kínversk stjórnvöld hafa sett raunveruleikaþáttum í sjónvarpi ströng skilyrði. Almenningskosningar í gegnum internet, síma eða símaskilaboð hafa verið bannaðar. Þá þurfa keppendur að vera heilbrigðir og þroskaðir og kynnar keppninnar mega ekki gefa hvor öðrum undir fótinn né vera með niðrandi athugasemdir.

Franskir áhrifamenn votta Marceau virðingu sína

Eftir að franski látbragðsleikarinn Marcel Marceau lést á laugardag hafa franskir áhrifamenn keppst um að votta honum virðingu sína. Þar fer Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti fremstur í flokki. Hann hefur lýst aðdáun sinn á listamanninum og segir hann hafa komið sviðslistinni á stig fullkomnunar.

Sverrir vinnur með Grammy-verðlaunahafa

Íslenski upptökustjórinn og Grammy-verðlaunahafinn Husky Höskulds hefur fallist á að hljóðblanda fyrstu sólóplötu Sverris Bergmann sem væntanleg er eftir áramót. Tónlistarmaðurinn er búinn að taka upp í Englandi og hyggst leggja lokahöndina á upptökurnar í hljóðveri Sigur Rósar á allra næstu dögum.

Owen Wilson á batavegi eftir sjálfsvígstilraun

Leikarinn geðþekki, Owen Wilson, er á batavegi samkvæmt ofurbloggaranum Perez Hilton. Hann eyddi gærdeginum í sólbaði og á brimbretti í Malibu í félagsskap eldri bróður síns, Andrew. Prerez segir að leikarinn líti vel út miðað við hversu stutt sé liðið frá því að hann reyndi sjálfsvíg. Perez segir að Wilson hafi ákveðið að fara ekki í meðferð vegna fíkniefnavanda síns en hafi ráðið áfengisráðgjafa sem mun veita honum félagsskap þegar fjölskyldan er fjarri.

Dóttir Brynjólfs fær vænan bita

Kristjana Thors Brynjólfsdóttir hefur tekið við verkefnum hjá Skjá einum sem Björn Þ. Sigurðsson fyrrverandi sjónvarpsstjóri sinnti áður. Björn lét af störfum á föstudag. Athygli vekur að Kristjana er dóttir Brynjólfs Bjarnasonar forstjóra Símans, móðurfélags Skjás eins.

Clooney rifbeinsbrotnaði í bifhjólaslysi

George Clooney braut rifbein og hlaut nokkrar skrámur í bifhjólaslysi á föstudaginn. Slysið varð þegar Clooney reyndi að taka fram úr bíl. Ekki vildi betur til en svo að bíllinn ók beint á leikarann geðþekka og Sarah Larson, vinkonu hans, sem var aftan á hjólinu. Stan Rosenfield, talsmaður Clooneys segir að hann hafi það ágæt, en finni fyrir sársauka og þurfi að taka smá tíma til að jafna sig. Nýjasta mynd Clooneys, Michael Clayton, verður frumsýnd vestanhafs í næsta mánuði.

Noel Gallagher eignast barn

Noel Gallagher, söngvari Oasis, eignaðist annað barn sitt í dag. Unnusta hans, Sara MacDonald, ól í morgun dreng sem þau nefndu Donovan Rory MacDonald Gallagher.

Jón Gnarr gaf gleraugun sín til góðgerðarmála

Jón Gnarr gaf gleraugun sín til uppboðs sem þátturinn Frá A til J á Rás 2 stendur fyrir. Jón var gestur þáttarins í gær. Gleraugun sem um ræðir notaði hann í gamanleiknum Ég var einu sinni nörd og í Fóstbræðrum, sem sýndir voru á Stöð 2. Hér er því á ferðinni hið eiginlega vörumerki Jóns til margra ára.

Skjár einn: Sjónvarpsstjórinn hættur

“Það var sameiginleg ákvörðun mín og Brynjólfs Bjarnasonar, forstjóra Símans, að þetta væri besta niðurstaðan,” segir Björn Þórir Sigurðsson sem í dag lét af störfum sem sjónvarpsstjóri Símans.

Aðdáandi snýst til varnar fyrir Britney

Chris nokkur Crocker verður að teljast til hörðustu aðdáenda Britney Spears. Heimagert myndband þar sem hann hágrætur yfir því hvernig fólk og fjölmiðlar níðast á Britney Spears hefur farið eins og eldur í sinu um netið og hafa nú þegar milljónir manna skoðað það.

Jolie segist bara hafa sofið hjá fjórum

Í viðtali við breska tímaritið Cosmopolitan segist Angelina Jolie einungis hafa sofið hjá fjórum mönnum um ævina og þar af hafi hún verið gift tveimur. Eflaust á fólk bágt með að trúa því þar sem hún er talin með kynþokkafyllstu konum heims.

Paris nældi í sænskan túrista

Hótelerfinginn Paris Hilton hefur í gegnum tíðina verið bendluð við leikara, rokkstjörnur og aðra mikils metna menn en nú hefur hún nælt í sænska unglingspiltinn Alexander Väggö von Zweigbergk sem þrátt fyrir háfleygt eftirnafn er hvorki ríkur né frægur. Það sem drengurinn mun þó hafa til brunns að bera er guðdómlegt útlit.

Stjörnur prýddu góðgerðartískusýningu í London

Í gær fór fram góðgerðartískusýningin Fashion For Relief í London. Sýningin var sú síðasta á tískuvikunni í London og miðaði að því að safna fé til styrktar þeim sem urðu illa úti í flóðunum sem gengu yfir Bretland í sumar.

Richards vill ekki að dætur „hennar“ dvelji yfir nótt hjá Sheen

Bandaríska leikkonan Denise Richards hefur óskað eftir því fyrir dómi að dætur hennar og fyrrum eiginmanns hennar Charlie Sheen þurfi ekki að dvelja hjá föður sínum yfir nótt. Richards segir stúlkurnar streitast á móti þegar þær eiga að fara til pabba síns og að þær komi oft heim í miklu uppnámi.

Þursaflokkurinn og Caput í Laugardalshöll

Hinn íslenzki Þursaflokkur og Caput hópurinn munu þann 23. febrúar næstkomandi leiða saman hesta sína og halda tónleika í Laugardalshöll, en um þær mundir fagnar Þursaflokkurinn 30 ára afmæli sínu.

Söngvari Stereophonics særður eftir slagsmál

Kelly Jones, söngvari velsku hljómsveitarinnar Stereophonics, dvelur nú á sjúkrahúsi eftir að til handalögmála kom á milli hans og öryggisvarðar fyrir utan næturklúbb í London. Jones sem hlaut djúpan skurð á hendi hafði fyrr um kvöldið komið fram á Vodafone Live tónlistarverðlaunin á Earls Court og heimsótti að þeim loknum næturklúbbinn Amika.

Snoop Dogg dæmdur fyrir vopnavörslu

Rapparinn Snoop Dogg játaði sig í gær sekan af ákæru um að hafa haft hættuleg vopn undir höndum. Hann var dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi og til að gegna 160 klukkustunda samfélagsþjónustu.

Birgitta Haukdal sendir frá sér sólóplötu

Sólóplata með Birgittu Haukdal er væntanleg í verslanir í byrjun nóvember. Þetta er í raun fyrsta sólóplata hennar ef frá er talin barnaplatan Perlur sem kom út árið 2004. Vignir Snær Vigfússon, samstarfsfélagi Birgittu í Írafári, stýrir upptökum.

Úrslit Rock Star ekki fyrirfram ákveðin

Úrslit raunveruleikaþáttarins Rock Star voru ekki fyrirfram ákveðin að sögn Guðmundar Magna Ásgeirssonar, söngvara. Hann segir rangt eftir honum haft á Vísi fyrr í dag að hann hafi talið hið gagnstæða.

Stefán Eiríksson dregur sig í hlé

Stefán Eiríksson lögreglustjóri ætlar að draga sig í hlé frá einu umfangsmesta fíkniefnamáli Íslandssögunnar - til að mæta í Eymundsson í Austurstræti og lesa upp kafla úr eftirlætis glæpasögunni sinni klukkan hálf-fimm í dag. Tilefnið er upphaf „Glæpafaraldurs" í Eymundsson, sem er verkefnið sem er ætlað að fá fólk til að lesa meira. Stefán mun svo að öllum líkindum snúa sér aftur að löggæslustörfum fljótlega að upplestri loknum.

Hafdís Huld prýðir forsíðu London tourdates

Hin geðþekka söngkona Hafdís Huld er á forsíðu nýjasta tölublaðs London tourdates með fyrirsögninni: Hafdís Huld Madonna with banjo. Blaðinu er dreift frítt á tónleikastöðum og verslunum í London og í því er að finna upplýsingar um þá tónleika sem eru í boði í borginni hverju sinni.

Prince tróð óvænt upp á tískusýningu

Poppgoðsögnin Prince kom gestum á tískusýningu Matthew Williamson, á tískuvikunni í London, á óvart í gær þegar hann hóf upp raust sína og söng lagið U Got the Look. Prince sat í fyrstu á fremsta bekk en tók síðan upp míkrafón og hóf að syngja í sætinu.

Lohan hjónadjöfull

Stephanie Allen, eiginkona hins 39 ára Tony Allen úr hljómsveitinni Dead Stays Alive, segir Lindsay Lohan hafa eyðilagt hjónaband þeirra. Þau Tony og Lohan eru sögð hafa stundað kynlíf á salerni meðferðarstofnunar í Utah sem bæði hafa dvalið á um skeið. Stephanie hefur í kjölfarið hent bónda sínum út en þau eiga saman átta mánaða tvíbura.

Timberlake opnar sig um Britney

Söngvarinn Justin Timberlake hefur rofið þögnina um fyrrum kærustu sína Britney Spears. Síðan þau hættu saman árið 2002 hefur hann lítið tjáð sig um samband þeirra. Nýlega kom hann fram hjá í spjallþætti Opruh Winfrey og féllst á að svara nokkrum spurningum um Spears sem ekki hefur átt sjö dagana sæla að undanförnu.

George Michael segist aldrei ætla taka HIV próf

George Michael sagði í viðtali sem tekið var við hann fyrir heimildamynd sem Stephen Fry hefur gert í samstarfi við BBC2 sjónvarpsstöðina að hann ætli aldrei aftur að gangast undir HIV rannsókn. Fry var ósáttur við þessa afstöðu Michael's og ákvað sjálfur að taka próf fyrir framan myndavélarnar.

Amy vann til verðlauna en klúðraði um leið

Amy Winehouse hlaut í gær verðlaun sem besti kvenlistamaður ársins á tveimur tónlistarverðlaunahátíðum sem fram fóru í London. Söngkonan tók sjálf við verðlaununum á Mobo verðlaunahátíðinni (Music of Black Orgin) sem haldin var á O2 leikvanginum. Hún tók einnig tvö lög af nýjustu plötu sinni Back to Black.

Sjá næstu 50 fréttir