Lífið

Moss og Miller í hár saman

Moss getur verið hörð í horn að taka
Moss getur verið hörð í horn að taka MYND/Getty

Kate Moss og Sienna Miller voru staddar í brúðkaupi sameiginlegs vinar í London um helgina. Það eitt og sér þykir ekki frásögu færandi en þegar ótæpilega mikið magn af áfengi var komið inn fyrir þeirra varir hitnaði verulega í kolunum og úr varð ærlegt stelpurifrildi.

Moss var mætt á undan Miller ásamt nýja kærastanum Jamie Hince og bestu vinkonunni Sadie Frost, sem eins og flestir vita á heilan sæg af börnum með Jude Law fyrrverandi kærasta Miller. Millir mætti svo á svæðið með Rhys nokkur Ifan í eftirdragi sem er gamall vinur Moss. Sá var alveg grunlaus um að hann yrði bitbein tveggja fallegustu kvenna Bretlands seinna um kvöldið.

 

Þetta er maðurinn sem tvær fallegustu konur Bretlands rifust um...MYND/Getty

Illt augnaráð gekk á milli fegurðardísanna allt kvöldið þar til upp úr sauð. Moss gekk upp að Miller og sakaði hana um að hafa fyrir löngu stolið stílnum hennar en að nú væri hún farin að ræna vinum hennar. Miller svaraði með klámfenginni þrumuræðu.

Þá gerðist hið óvænta. Engin önnur en Sadie Frost gekk á milli og bað spúsurnar vinsamlegast um að bera virðingu fyrir því að þær væru staddar í brúðkaupi. Frost hefur þó ekki verið neitt sérstaklega vinveitt í garð Miller í gegnum tíðina og hafði hún ekki miklar mætur á henni á meðan hún og Law voru saman. Frost og Moss hafa auk þess keppst um að baktala Miller yfir ófáum vínglösum og reitti athyglin sem hún fékk fyrir klæðaburð sinn þær stöllur sérstaklega til reiði.

 

Miller er þekkt fyrir tískuvitund sína, líkt og Moss, og hafa margir tekið sér hana til fyrirmyndarMYND/Getty

Atvikið hafði augljóslega mikil áhrif á Miller en hún sást keðjureykjandi með símann límdan við eyrað í öllum pásum við tökur á nýjustu mynd sinni Hippie Hippie Shake daginn eftir. Þá sást Rhys koma á mótorhjóli sínu og veita leikkonunni andlegan stuðning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.