Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Markavandræði Liverpool á einni mynd: Versti markaþurrkurinn í fimmtán ár Það þarf að fara alla leið aftur til marsmánaðar árið 2005 til að finna verra gengi Liverpool liðsins fyrir framan mark mótherjanna. 18.1.2021 13:31
Roy Keane segir að Liverpool sé búið að missa neistann Liverpool tókst ekki að vinna Manchester United á heimavelli sínum í gær og er því áfram þremur stigum á eftir erkifjendum sínum. Liverpool er í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir leiki helgarinnar. 18.1.2021 09:31
Everton staðfestir að hafa ekkert borgað fyrir James Everton hefur staðfest að hafa ekki borgað krónu fyrir James Rodriguez er hann skipti til félagsins í sumar. Kólumbíumaðurinn gekk í raðir Everton í sumar eftir sex ára veru hjá Real Madrid. 17.1.2021 23:31
Auðvelt hjá City sem nálgast toppliðið Manchester City lenti í engum vandræðum með Crystal Palace á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. City vann að endingu 4-0 sigur. 17.1.2021 21:15
Maguire segir að United hefði átt sigurinn skilið Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, segir að United hafi átt stigin þrjú skilið gegn Liverpool á útivelli í stórleik umferðarinnar í enska boltanum. 17.1.2021 19:32
Ekki gerst hjá Liverpool í fjögur ár Liverpool gerði í kvöld markalaust jafntefli við topplið Manchester United. Liverpool er án sigurs í síðustu fjórum deildarleikjum. 17.1.2021 19:13
Markalaust á Anfield Staðan er eins á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir að Liverpool og Manchester United gerðu markalaust jafntefli á Anfield í kvöld er erkifjendurnir mættust. 17.1.2021 18:22
Gæti verið refsað fyrir að gefa treyjuna sína Varnarmaður Chelsea, Thiago Silva, gæti átt yfir höfði sér refsingu fyrir að gefa starfsmanni á Cravan Cottage, heimavelli Fulham, treyjuna sína í gær. 17.1.2021 17:46
Tottenham ekki í vandræðum með botnliðið Tottenham átti ekki í teljandi vandræðum með botnlið ensku úrvalsdeildarinnar þegar Sheffield United fékk lærisveina Jose Mourinho í heimsókn á Bramall Lane í dag. 17.1.2021 15:46
Forsætisráðherra spáir Liverpool sigri í toppslagnum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er mikill stuðningsmaður Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hún spáir sínum mönnum eins marks sigri í toppslagnum á móti Manchester United í dag. 17.1.2021 14:07
Þrír leikmenn Man Utd komast í sameiginlegt lið Carragher Stærsti leikur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni fer fram á Anfield í dag þar sem Englandsmeistarar Liverpool fá topplið ensku úrvalsdeildarinnar, Manchester United í heimsókn. 17.1.2021 14:00
Maddison kippti Dýrlingunum niður á jörðina Southampton eygði þess von að fylgja eftir fræknum sigri á Liverpool með því að leggja Leicester að velli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og jafna þar með Leicester að stigum. 16.1.2021 21:54
Mount hetja Chelsea í naumum sigri Eitt mark skildi Chelsea og Fulham að þegar liðin mættust í nágrannaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag. 16.1.2021 19:25
Jói Berg spilaði hálfleik í tapi - Brighton lagði Leeds Tveir leikir fóru fram samtímis klukkan 15 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 16.1.2021 16:50
Markasúpa í fyrsta sigurleik Stóra Sam með WBA Það rigndi inn mörkunum er Sam Allardyce stýrði WBA til sigurs í fyrsta sinn eftir að hafa tekið við liðinu í síðasta mánuði. WBA hafði betur gegn Wolves, á útivelli, 2-3 eftir að hafa verið 2-1 undir í leikhlé. 16.1.2021 14:23
Klopp gefur lítið fyrir ummæli Solskjær Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, gefur lítið fyrir ummæli Ole Gunnars Solskjær, stjóra Man. United, að það kæmi á óvart ef að United myndi ná að vinna ensku meistarana á þeirra heimavelli á morgun. 16.1.2021 13:01
Samkomulag í höfn við Arsenal og Özil á leið til Fenerbache Mesut Özil er á leið frá Arsenal eftir að hafa verið í frystinum á þessari leiktíð. Þetta staðfestir David Ornstein, blaðamaður á miðlinum The Atletic í dag, en skiptin hafa legið í loftinu. 16.1.2021 12:01
Ferguson elskaði Henderson og sér eftir því að hafa ekki keypt hann Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóri Manchester United, segir það hafi verið mistök af sinni hálfu að festa ekki kaup á Jordan Henderson er Ferguson var stjóri Man. United og Henderson var á mála hjá Sunderland. 16.1.2021 10:31
Solskjær segir það óvænt vinni United á Anfield Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, segir að það yrði óvænt úrslit ef toppliðið muni sækja þrjú stig á Old Trafford á sunnudaginn er liðin mætast í toppslag. Flautað verður til leiks klukkan 16.30 á Anfield á morgun. 16.1.2021 09:31
María Þórisdóttir á leið til Manchester United Norska landsliðskonan María Þórisdóttir er á leið frá Englandsmeisturum Chelsea til Manchester United. 15.1.2021 15:58
Rooney endanlega hættur og stýrir Derby næstu árin Wayne Rooney hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Derby County til frambúðar, eða til sumarsins 2023. Hann hefur endanlega lagt skóna á hilluna eftir magnaðan feril sem leikmaður. 15.1.2021 14:13
Sir Alex hefur þekkt Marcus Rashford síðan strákurinn var sjö ára Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, sendi framherjanum Marcus Rashford flotta kveðju í gærkvöldi. 15.1.2021 13:01
Rashford segir Mourinho hafa kennt sér að fá víti Umræða um vítaspyrnur er óhjákvæmileg í aðdraganda stórleiks Liverpool og Manchester United á sunnudaginn – liðanna sem nú eru efst í ensku úrvalsdeildinni. Marcus Rashford segir Jose Mourinho hafa hjálpað sér að fá oftar víti. 15.1.2021 09:31
„Liverpool menn verða stressaðir“ Manchester United getur náð sex stiga forskoti á Liverpool með sigri í toppslag liðanna um helgina og gömul Liverpool kempa segir að leikmenn Liverpool séu nú í svolítið nýrri stöðu miðað við undanfarin misseri. 15.1.2021 08:31
„Ekki hægt að banna mönnum að fagna mörkum“ Pep Guardiola, stjóri Man City, skilur vel nýjustu tilmæli ensku úrvalsdeildarinnar en sér ekki fram á að leikmenn geti sleppt því að fagna mörkum. 15.1.2021 07:01
Markalaust í Lundúnum Ekkert mark var skorað þegar Arsenal og Crystal Palace áttust við í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 14.1.2021 21:59
Pep Guardiola bað sína menn um að hlaupa minna og allt fór að ganga betur Knattspyrnustjórar pressa vanalega á það að leikmenn þeirra hlaupi sem mest inn á vellinum en einn sá besti í boltanum fór aftur á móti í þveröfuga átt á þessu tímabili. 14.1.2021 13:31
Sakar Jürgen Klopp um hræsni Gamli dómarinn Mark Clattenburg var ekki hrifinn af orðum knattspyrnustjóra Liverpool á dögunum. 14.1.2021 09:31
Frá Man. City til Heimis og nú í það að æfa með utandeildarliði á fjórum árum Það eru innan við fjögur ár síðan Wilfried Bony var á mála hjá einu besta fótboltaliði í heimi; Manchester City. Nú æfir hann með utandeildarliðinu Newport County til að halda sér í formi. 13.1.2021 23:01
Tottenham missteig sig gegn nýliðunum Tottenham og Fulham gerðu 1-1 jafntefli í kvöld í leik sem átti að fara að fara fram milli jóla og nýárs en var frestað vegna kórónuveirusmita hjá Fulham. 13.1.2021 22:08
City marði Brighton Manchester City er komið upp í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Man. United og á leik til góða, en City vann 1-0 sigur á Brighton í kvöld. 13.1.2021 19:52
Gary Neville biðst afsökunar á lýsingunni í leik Man. Utd og Burnley Gary Neville, sparkspekingur og lýsari hjá Sky Sports, baðst afsökunar í gær á lýsingu sinni í leik Manchester United gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. 13.1.2021 19:00
Fáir þekkja einn af þeim sex sem hefur „lifað“ allan Klopp-tímann hjá Liverpool Jürgen Klopp hefur byggt upp nýtt lið á Anfield og fjöldi leikmanna hafa bæði komið og farið síðan hann tók við. Það eru því ekki margir sem hafa verið hjá félaginu alla hans knattspyrnustjóratíð. 13.1.2021 13:30
Bæði United-liðin á toppnum Bæði karla- og kvennalið Manchester United eru á toppnum í sínum deildum. 13.1.2021 12:30
Solskjær: Gætum ekki mætt á Anfield á betri tíma Ole Gunnar Solskjær er búinn að koma liði Manchester United á toppinn í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í langan tíma og næst á dagskrá er heimsókn til Englandsmeistara Liverpool um næstu helgi. 13.1.2021 09:31
„Ég er alltaf ánægður þegar við vinnum“ Paul Pogba var eðlilega í skýjunum með sigur Manchester United á Turf Moor í kvöld þar sem liðið lagði Burnley 0-1. Sigurinn lyfti Man Utd á topp ensku úrvalsdeildarinnar. Franski miðjumaðurinn ræddi við Sky Sports eftir leik. 12.1.2021 23:00
Pogba skaut Manchester United á topp ensku úrvalsdeildarinnar Franski miðjumaðurinn Paul Pogba tryggði Man United 1-0 sigur á Burnley í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Þar með er liðið komið með þriggja stiga forystu á Liverpool á toppi deildarinnar. 12.1.2021 22:15
Everton heldur í við toppliðin með góðum sigri á Wolves Everton vann 2-1 útisigur á Wolves í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Sigurmarkið skoraði miðvörðurinn Michael Keane á 77. mínútu leiksins. 12.1.2021 22:00
Rautt spjald og vítaspyrna er Sheffield vann loks sigur Sheffield United vann sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni er liðið lagði Newcastle United 1-0 á heimavelli í kvöld þökk sé marki Billy Sharp úr vítaspyrnu í síðari hálfleik. 12.1.2021 19:55
Liverpool lætur þjálfara aðalliðsins fara Þjálfari kvennaliðs Liverpool hefur verið látin taka poka sinn eftir slakt gengi á leiktíðinni. Liðið leikur í B-deild ensku kvennaknattspyrnunnar eftir fall á síðustu leiktíð. 12.1.2021 18:01
Leikmaður Cardiff með krabbamein Sol Bamba, leikmaður enska B-deildarliðsins Cardiff City, hefur greinst með krabbamein og er í meðferð vegna þess. 12.1.2021 14:01
Mo Salah með fallegasta markið fjórða mánuðinn í röð Mohamed Salah er ekki aðeins að skora mörg mörk fyrir Liverpool á leiktíðinni því mörg af þessum mörkum hans eru líka mjög falleg mörk. Það sést vel á kosningu á flottustu mörkum mánaðanna á tímabilinu. 12.1.2021 10:30
Skalli Dawson afgreiddi utandeildarliðið West Ham er komið í 32 liða úrslitin eftir 1-0 sigur á utandeildarliðinu Stockport County. Sigurmarkið kom innan við tíu mínútum fyrir leikslok á Edgely Park í kvöld. 11.1.2021 21:55
85 milljóna punda Declan Rice á lista Chelsea og Man. United Enski landsliðsmaðurinn Declan Rice, sem leikur hjá West Ham, er á óskalista stórliðanna Chelsea og Manchester United. 11.1.2021 20:45
Dregið í enska bikarnum: Man. United og Liverpool mætast Dregið var í 32 liða úrslit enska bikarsins en við sama tækifæri var einnig dregið í 16 liða úrslit bikarsins. 64 liða úrslitin klárast með leik Stockport og West Ham síðar í kvöld. 11.1.2021 19:24