Mount hetja Chelsea í naumum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. vísir/Getty

Eitt mark skildi Chelsea og Fulham að þegar liðin mættust í nágrannaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Chelsea voru án sigurs í þremur leikjum í röð í deildinni þegar kom að leiknum og því gríðarlega mikilvæg stig í húfi fyrir Frank Lampard og lærisveina hans.

Leikurinn var jafn og spennandi en á lokamínútum fyrri hálfleiks fékk Antonee Robinson að líta rauða spjaldið fyrir glæfralega tæklingu á Cesar Azpilicueta.

Chelsea gekk illa að nýta sér liðsmuninn en á 78.mínútu fann Mason Mount leiðina í mark Fulham þegar hann nýtti sér mistök Alphonse Areola í marki Fulham.

Reyndist það eina mark leiksins og kærkominn 0-1 sigur Chelsea staðreynd.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira