Markalaust í Lundúnum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Leiðindi.
Leiðindi. vísir/Getty

Ekkert mark var skorað þegar Arsenal og Crystal Palace áttust við í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Einu stigi munaði á liðunum í 12. og 14.sæti deildarinnar þegar kom að leik kvöldsins en Arsenal hafði unnið þrjá leiki í röð þegar kom að leiknum í kvöld.

Óhætt er að segja að leikur kvöldsins hafi verið bragðdaufur en Arsenal var þó nær því að skora mark.

Allt kom fyrir ekki og markalaust jafntefli niðurstaðan.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira