Fleiri fréttir

Pavel með risa þrefalda tvennu – Snæfell tapaði í Keflavík

Þrettándu umferð í Iceland Express deild karla í körfubolta lauk í kvöld með þremur leikjum. Grindavík lagði botnlið KFÍ á Ísafirði 74-64 og er Grindavík með 22 stig í öðru sæti deildarinnar. Íslandsmeistaralið Snæfells tapaði stórleik kvöldsins gegn Keflavík á útivelli og var sigur heimamanna öruggur 112-89. KR vann Hamar á heimavelli 97-87 og þar fór Pavel Ermolinskij á kostum í liði KR með magnaði þrefalda tvennu, 17 stig, 17 fráköst og 16 stoðsendingar.

Ólafur hitar upp - spilar líklega gegn Japan

Ólafur Stefánsson virðist ætla að láta á það reyna í kvöld hvort hann geti spilað vegna hnémeiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum gegn Ungverjalandi. Hann er mættur út á gólfið og tekur þátt í uphitun landsliðsins af fullum krafti.

Norðmenn unnu Austurríkismenn létt

Norðmenn komu sterkir til baka eftir tapið á móti Ungverjum og unnu sex marka sigur á Austurríki, 33-27, í öðrum leiknum í íslenska riðlinum í dag. Norðmenn hafa því fjögur stig eins og Ísland og Ungverjaland en strákarnir okkar eiga leik inni á móti Japan á eftir.

Roberto Carlos skoraði fyrsta "Ólympíumarkið" á ferlinum

Roberto Carlos er einn af mörgum úr heimsmeistaraliði Brasilíumanna frá 2002 sem er kominn heim til Brasilíu til þess að klára sinn glæsilega feril. Roberto Carlos leikur með Ronaldo hjá Corinthians en Ronaldinho samdi nýverið við Flamengo.

Dagur þekkir alla í Linköping

Gamli landsliðsfyrirliðinn, Dagur Sigurðsson, er mættur til Linköping og ætlar að fylgjast með næstu tveim umferðum í B-riðli HM.

Japanir búnir að vinna einn góðan sigur í dag

Ísland mætir Japan á HM í handbolta í kvöld en japanska þjóðin er þegar búin að fagna einum góðum sigri í dag. Japanir tryggðu sér nefnilega sæti í átta liða úrslitum Asíukeppninnar með 5-0 sigri á Sádí-Arabíu í dag.

Birmingham er hætt við að kaupa Robbie Keane

Enska úrvalsdeildarliðið Birmingham hefur hætt við að kaupa írska landsliðsmanninn Robbie Keane frá Tottenham en Tottenham var búið að samþykkja sex milljón punda tilboð Birmingham í framherjann.

Liverpool að reyna að fá Downing frá Aston Villa

Liverpool er að reyna að kaupa enska landsliðsvængmanninn Stewart Downing frá Aston Villa samkvæmt heimildum Skysports. Downing er markahæsti leikmaður Aston Villa á tímabilinu með fimm mörk og hefur verið með í öllum leikjum liðsins á leiktíðinni.

Babel fékk bara sekt fyrir twitter-myndina af Howard Webb

Ryan Babel, leikmaður Liverpool, var í dag dæmdur til þess að greiða tíu þúsund punda sekt fyrir að seta mynd af dómaranum Howard Webb í Manchester United búning eftir bikartap Liverpool á Old Trafford. Þetta gerir um 1,8 milljón íslenskra króna.

Ungverjar unnu Brassana með tólf marka mun

Ungverjar unnu öruggan tólf marka sigur á Brasilíu, 36-24, í fyrsta leik dagsins í riðli Íslands á HM í handbolta í Svíþjóð. Ungverjar hafa því unnið tvo leiki í röð síðan að þeir töpuðu fyrir íslenska landsliðinu í fyrsta leik.

Argentínumenn unnu Slóvaka sannfærandi

Argentínumenn fylgdu eftir góðum leik á móti Póllandi í gær með því að vinna sannfærandi fimm marka sigur á Slóvökum, 23-18, á HM í handbolta í dag. Argentínumenn eru því komnir með þrjú stig í sínum riðli og verða með í baráttunni um sæti í milliriðli.

Ótrúlegt korter sá um Japana

Ísland sýndi ótrúleg tilþrif á fyrsta stundarfjórðungnum gegn Japan í kvöld sem gaf tóninn fyrir yfirburðasigur. Lokatölur 36-22.

Kjelling líklega ekki með Noregi í kvöld

Noregur og Austurríki mætast í mjög mikilvægum leik í kvöld en þessi lið eru með Íslandi í riðli á HM í handbolta. Norðmenn verða líklega án síns besta manns, Kristian Kjelling.

Redknapp: Við höfum ekki efni á Andy Carroll

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir engar líkur á því að Tottenham kaupi Andy Carroll, framherja Newcastle, eins og hefur verið orðrómur um í ensku blöðunum. Carroll er núbúinn að framlengja við sitt æskufélag en ensku blöðin keppast engu að síður um að velta sér upp úr hugsanlegum kaupendum á þessum stóra og sterka framherja.

Áfall fyrir Dani: Mogensen ekki meira með á HM

Danir urðu fyrir áfalli í dag þegar í ljós kom að leikstjórnandi þeirra, Tomas Mogensen, spilar ekki meira á heimsmeistaramótinu. Mogensen meiddist í gær þegar Danir unnu Rúmena með 9 marka mun.

Ingimundur: Tökum Japan alvarlega

Varnarjaxlinn Ingimundur Ingimundarson hefur bitið á jaxlinn í fyrstu leikjum Íslands á HM enda bæði meiddur á ökkla og í nára.

Ákvörðun um Ólaf verður tekin rétt fyrir leik - verður á skýrslu

Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, verður á skýrslu í leiknum á móti Japan á HM í handbolta í kvöld en hann meiddist á hné í fyrsta leik liðsins á mótinu og var upp í stúku þegar liðið mætti Brasilíumönnum á laugardagskvöldið.

Konchesky og Poulsen eiga báðir möguleika hjá Kenny Dalglish

Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, segist eiga mikið verk fyrir höndum í að reyna að byggja upp sjálfstraust og orðspor margra af reyndari leikmanna liðsins. Hann nefndi sérstaklega bakvörðinn Paul Konchesky og danska miðjumanninn Christian Poulsen en Roy Hodgson keypti þá báða til liðsins.

Darren Bent á leið til Aston Villa fyrir 18 milljónir punda?

Guardian segir frá því að Steve Bruce, stjóri Sunderland og stjórnarformaðurinn Niall Quinn hafi samþykkt 18 milljóna tilboð Aston Villa í framherjann Darren Bent. Upphæðin gæti á endanum farið allt upp í 24 milljónir punda sem myndi vera hæsta upphæð sem Aston Villa hefur greitt fyrir leikmann.

Magnus Andersson: Japanir mjög hraðir

Austurríkismenn fengu á baukinn gegn Japan og af þeim leik þarf Ísland að læra. Fréttablaðið hitti Magnus Andersson, landsliðsþjálfara Austurríkis, í gær og spurði hann að því hvað bæri að varast hjá Japönum.

Eru PSV Eindhoven og Ajax að slást um Eið Smára?

Enska blaðið The Mirror segir frá því í morgun að hollensku liðin PSV Eindhoven og Ajax séu fremst í flokki í kapphlaupinu um að fá Eið Smára Guðjohnsen til sín en Stoke er tilbúið að selja íslenska framherjann í þessum félagsskiptaglugga.

Torres er viss um að Liverpool nái sér á strik

Spænski framherjinn Fernando Torres segir að Liverpool eigi eftir að ná sér á strik undir stjórn Kenny Dalglish. Liverpool hefur byrjað leiktíðina afar illa og er liðið 19 stigum á eftir erkifjendunum – Manchester United sem er á toppi deildarinnar með 45 stig.

Japanski "íþróttaálfurinn" er stórskytta sem Ísland þarf að gæta vel

Daisuke Miyazaki er einn áhugaverðasti leikmaður heimsmeistaramótsins hann er að mati Loga Geirssonar „japanski íþróttaálfurinn“. Logi sýndi skemmtileg myndbönd af Miyazaki í HM-þættinum Þorsteinn J. & gestir í gærkvöldi og Miyazaki er án efa einn besti alhliða íþróttamaðurinn á HM.

Guðjón Valur: Eins gott að við verðum á tánum

Guðjón Valur Sigurðsson stimplaði sig inn á HM með stæl gegn Brasilíu og það mun mikið mæða á honum gegn Japan í kvöld enda þurfa hornamenn íslenska liðsins að vera klókir gegn framliggjandi vörn Japana og Guðjón mun eflaust vera duglegur að hlaupa inn á línuna.

NBA: Clippers vann grannaslaginn gegn Lakers - fjórir sendir í "sturtu"

Það var óvenju lítið um að vera í NBA deildinni í körfubolta í gær en grannaslagur LA Clippers og LA Lakers stóð upp úr. Clippers, sem ávallt hefur verið litla liðið í LA, batt enda á sjö leikja sigurhrinu meistaraliðs LA Lakers með 99-92 sigri í Staple Center.

Guðmundur: Verðum vonandi með réttu svörin

Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari fagnar því að hafa fengið heilan aukadag til þess að undirbúa lið sitt fyrir leikinn gegn Japan í kvöld. Japanar hafa komið skemmtilega á óvart á HM og hreinlega pökkuðu Austurríki saman á laugardag. Það gerir ekki hvaða lið sem er.

Tólf leikir á HM í dag – tveir stórleikir í beinni útsendingu á Stöð 2 sport

Það er nóg um að vera á HM í handbolta í dag þegar þriðja umferðin í riðlakeppninni fer fram. Alls fara fram 12 leikir í dag og þar á meðal er leikur Íslands og Japan í B-riðli sem hefst kl. 20.30 og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 sport. Leikur Spánverja og Þjóðverja verður einnig sýndur og hefst hann 17.30 en þau eru bæði taplaus í A-riðli.

Guðjón Valur og Jae-Woo markahæstir á HM

Guðjón Valur Sigurðsson er markahæsti leikmaður HM ásamt Lee Jae-Woo frá Suður-Kóreu en þeir hafa báðir skorað 15 mörk í tveimur leikjum. Guðjón skoraði 11 mörk gegn Brasilíu. Alexander Petersson er á meðal 10 efstu en hann er með 12 mörk, Aron Pálmarsson er með 9.

Hans Lindberg: „Ég get ekki talað við þig á íslensku"

„Ég get ekki talað við þig á íslensku,“ sagði Hans Lindberg, leikmaður danska landsliðsins, á ágætri íslensku þegar blaðamaður Vísis náði tali af honum eftir níu marka sigur Dana gegn Rúmenum á Heimsmeistaramótinu í handbolta í gærkvöldi. Eins og margir vita er Hans af íslenskum ættum en hefur þó ávallt spilað fyrir danska landsliðið í handknattleik. Hann var nokkuð ánægður með leik danska liðsins í gær.

Ólafur: Var miklu betri í morgun

Það lá vel á landsliðsfyrirliðanum Ólafi Stefánssyni þegar Vísir hitti á hann á hóteli íslenska landsliðsins í Linköping í dag.

Bestu atriðin úr þætti Þorsteins J., sunnudagur

Það var margt í umræðunni í þættinum Þorsteinn J. & gestir í kvöld á Stöð 2 sport þrátt fyrir að Íslandi hafi ekki átt leik á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð. Í samantekt þáttarins má finna viðtal við Kára Kristjánsson línumann en nýliðinn fann líklega upp nýyrði í handboltamálið þegar hann lýsti austurrísku vörninni í leiknum gegn Japan. „Pödduflatir,“ sagði Kári.

Hlynur vill að strákarnir vinni gull

HM-teymi Vísis í Svíþjóð skellti sér á körfuboltaleik í Norrköping í dag og sá þá Hlyn Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson spila með Sundsvall Dragons gegn Norrköping Dolphins.

Dalglish heimtar ekki nýja leikmenn

Kenny Dalglish ætlar ekki að heimta peninga til leikmannaupa í janúar. Liverpool gerði jafntefli við Everton í dag og er sem fyrr um miðja deild.

Börsungar samir við sig

Barcelona vann enn einn leikinn í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Nú var það Malaga sem lá í valnum fyrir Börsungum, lokatölur 4-1.

Redknapp og Ferguson sáttir

Harry Redknapp og Sir Alex Ferguson voru báðir nokkuð sáttir með stigið eftir viðureign Tottenham og Manchester United í dag. Leiknum lauk með markalausu jafntefli.

Sjá næstu 50 fréttir