Handbolti

Hlynur vill að strákarnir vinni gull

Henry Birgir Gunnarsson í Norrköping skrifar

HM-teymi Vísis í Svíþjóð skellti sér á körfuboltaleik í Norrköping í dag og sá þá Hlyn Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson spila með Sundsvall Dragons gegn Norrköping Dolphins.

Þeir félagar hafa verið sjóðheitir í sænska körfuboltanum í vetur og fyrir leikinn í dag var liðið búið að vinna 13 leiki í röð. Sú sigurganga tók enda í dag gegn ríkjandi meisturum Dolphins en tapið var grátlegt og aðeins með einu stigi.

Þeir félagar stóðu báðir vel fyrir sínu og sérstaklega í lokafjórðungnum er þeir Sundsvall kom til baka og var næstum búið að landa sigri eftir að hafa verið 15 stigum undir eftir þrjá leikhluta.

"Það var ýmislegt sem klikkaði. Við klúðruðum mörgum skotum og margt í skipulaginu sem við gerðum kolvitlaust," sagði Hlynur og Jakob vildi ekki meina að það hefði verið of mikil pressa að hafa íslenska fjölmiðlamenn á staðnum.

Þeir voru báðir á leik Íslands og Brasilíu í gær og skemmtu sér konunglega. Hlynur vill sjá að liðið vinni gull á HM.

"Ég segi að við lendum í fyrsta sæti. Við erum búnir að ná í silfur og brons og við getum ekki stefnt á eitthvað lægra en það.

Það er fyrir löngu orðið frægt þegar Ólafur Stefánsson viðraði þá hugmynd við Hlyn fyrir ÓL í Peking að hann prófaði að spila vörn með handboltalandsliðinu. Hlynur hefur ekki enn útilokað að spila fyrir handboltalandsliðið.

"Ég er alltaf klár fyrir land og þjóð. Það eru Ólympíuleikar árið 2012 og þá verð ég með. Ég vil byrja á Ólympíuleikum. Ég mun spila með landsliðinu. Sjáðu til," sagði Hlynur.

Jakob hefur einnig trú á strákunum og segir augljóst að stemningin hjá liðinu sé góð.

"Ég hafði gaman af landsleiknum þó svo leikurinn hefði mátt vera jafnari og skemmtilegri. Þetta lítur vel út hjá strákunum og mér sýnist vera fín stemning í hópnum," sagði Jakob en þeir félagar eru nú í rútu á leið heim en Sundsvall er í átta tíma fjarlægð frá Norrköping.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×