Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nasri á leiðinni til Manchester City? Það er nóg að gerast í herbúðum Manchester City og samkvæmt enskum fjölmiðlum hafa forráðamenn liðsins náð samningum við franska leikmanninn Nasri sem hefur leikið með Arsenal undanfarin misseri. Kaupverðið er sagt vera um 19 milljónir punda eða 3,5 milljarðar kr. 6.7.2011 10:30
Framtíð Modric hjá Tottenham er óljós - Chelsea vill fá hann Samkvæmt frétt Sky Sports þá mun Luca Modric leikmaður Tottenham funda með forráðamönnum liðsins í dag en hann hefur óskað eftir því að félagið taki tilboði Chelsea sem vill fá króatíska landsliðsmanninn í sínar raðir. Modric er 25 ára gamall og hann hefur staðið undir væntingum hjá Tottenham frá því hann var keyptur frá Zagreb árið 2008. 6.7.2011 10:00
Molde í efsta sæti undir stjórn Ole Gunnar Solskjær Ole Gunnar Solskjær fyrrum leikmaður Manchester United hefur byrjað gríðarlega vel sem þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Molde. Solskjær tók við liðinu í vetur eftir að hafa náð frábærum árangri sem þjálfari varaliðs Manchester United. Molde er sem stendur í efsta sæti deildarinnar að loknum 15 umferðum en á síðustu fjórum árum hefur það lið orðið norskur meistari sem var í efsta sæti á þessum tímapunkti í deildinni. 6.7.2011 09:30
Aston Villa hafnaði tilboði Liverpool í Stewart Downing Stewart Downing leikmaður Aston Villa er eftirsóttur og forráðamenn Aston Villa hafa því sett háan verðmiða á enska landsliðsmanninn. Enskir fjölmiðlar greinar frá því í dag að Liverpool hafi boðið 15 milljónir punda eða rétt um 2,7 milljarða kr. í leikmanninn en því tilboði hefur Aston Villa hafnað. 6.7.2011 09:00
Stórlax úr Víðidalnum Við sögðum frá 101 cm laxi sem veiddist í Víðidalnum fyrir helgi og okkur bárust þessar myndir um helgina. Það er stórlaxaveiðimaðurinn Helgi Guðbrandsson sem brosir sínu blíðasta fyrir okkur með laxinum á þessum myndum. 6.7.2011 07:00
Góð veiði í vötnunum Vatnaveiðin er á fullu þessa dagana og margir að gera fína veiði. Af vefnum hjá Veiðikortinu eru fréttir af mönnum sem hafa verið að gera fína veiði í Úlfljótsvatni og í Þingvallavatni. 6.7.2011 06:49
Veiðin að glæðast í Soginu Veiðin í Soginu hefur farið hægt af stað, en nú berast þær fréttir að laxinn sé mættur. Veiðimenn í Ásgarði tóku tvo laxa á sunnudag við Frúarstein og í gær landaði slyngur veiðimaður þremur löxum af Ystunöf. 6.7.2011 06:42
Styttist í opnun Setbergsár Árnefnd Setbergsár vinnur nú hörðum höndum að undirbúningi opnun árinnar. Áin opnar þann 15.júlí næstkomandi. Miklar lagfæringar hafa verið gerðar á veiðihúsinu, sem satt best að segja var orðið dálítið þreytt. 6.7.2011 06:40
Ferguson húðskammaði Ryan Giggs Enska slúðurblaðið Daily Star greinir frá því að Ryan Giggs leikmaður Manchester United hafi fengið hárblásarameðferðina hjá Alex Ferguson fyrir æfingu liðsins í gær. Giggs yfirgaf æfingasvæðið meðan liðsfélagar hans voru enn að hita upp. 5.7.2011 23:30
Anna Björg sá um ÍBV í 2-0 sigri Fylkis Heil umferð fór fram í Pepsideild kvenna í fótbolta í kvöld þar sem að 2-0 sigur Fylkis gegn ÍBV bar hæst gegn. Valur heldur áfram sigurgöngu sinni í deildinni með 3-1 sigri gegn KR. Á Akureyri voru skoruð sex mörk þar sem Þór/KA lagði Þrótt 4-2. Breiðablik vann sinn fyrsta leik undir stjórn Ólafs Brynjólfssonar sem tók við þjálfun liðsins nýverið en Blikar lögðu Aftureldingu á útivelli 3-0. Stjarnan sýndi styrk sinn með 3-1 sigri gegn botnliði Grindavíkur. 5.7.2011 21:43
Mourinho íhugar að setja Casillas af sem fyrirliða Jose Mourinho fer sjaldnast troðnar slóðir og portúgalski knattspyrnustjórinn hjá Real Madrid er sagður vilja gera breytingar sem gætu valdið titringi í herbúðum liðsins. Spænska íþróttablaðið Marca greinir frá því að Mourinho ætli að taka fyrirliðabandið af markverðinum Iker Casillas en Mourinho telur að það sé betra fyrir liðið að útileikmaður sé fyrirliði. 5.7.2011 21:15
Golfskóli Birgis Leifs: Sláðu boltann úr torfufari Kylfingar lenda oft í því að fá ekki góða legu á boltann þrátt fyrir að vera á braut. Birgir Leifur Hafþórsson sýnir í þessum kafla m.a. aðferð til þess að slá boltann úr torfufari. 5.7.2011 20:30
Leikmenn Arsenal skutu Englendingum í átta liða úrslit á HM Ellen White og Rachel Yankey tryggðu Englendingum 2-0 sigur gegn Japan á heimsmeistaramóti kvenna í fótbolta í dag í Þýskalandi. Englendingar eru þar með komnir í átta liða úrslit keppninnar líkt og Japan sem var fyrir leikinn búið að tryggja sér keppnisrétt á meðal átta bestu. 5.7.2011 20:09
Ólafur Björn lék frábært golf á EM - Ísland í góðri stöðu Ólafur Björn Loftsson lék frábært golf á fyrsta keppnisdegi Evrópumeistaramóts áhugamanna sem fram fer í Portúgal. Ólafur lék á 66 höggum eða 6 höggum undir pari og er hann í þriðja sæti í einstaklingskeppninni. Íslenska landsliðið er í 9. sæti af alls 20 þjóðum sem taka þátt á 4 höggum undir pari samtals. 5.7.2011 18:56
Framarar sömdu við Skotann Scott Robertsson Skoski leikmaðurinn Scott Robertson hefur samið við Fram og mun hann leika með liðinu út leiktíðina í Pepsi-deild karla. Robertson er 23 ára gamall og kemur frá Stirling Albion en hann hefur verið á reynslu hjá Fram í vikutíma. Frá þessu er greint á vef BBC. 5.7.2011 18:32
Konurnar byrjuðu illa á EM í Austurríki Íslenska kvennalandsliðið í golf lék ekki vel á fyrsta keppnisdeginum á Evrópumeistaramóti áhugakylfinga sem fram fer í Austurríki. Fimm bestu skorin af alls sex gilda í höggleiknum fyrstu tvo keppnisdagana og er Ísland í 17. sæti af allls 20 liðum. Samtals er Ísland á +17 höggum yfir pari en Danir eru í sérflokki í efsta sæti á -15. 5.7.2011 18:30
Mika Myllylä fannst látinn á heimili sínu Mika Myllylä, sem á sínum tíma var einn fremsti skíðagöngumaður heims, er látinn. Finninn, sem var 41 árs gamall, fannst á heimili sínu í Karelby í dag en ekki er talið að rannsaka þurfi andlát hans sem morðmál. 5.7.2011 18:15
Tiger Woods verður ekki með á opna breska Tiger Woods hefur ákveðið að taka ekki þátt á opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer á Royal St. George's vellinum í næstu viku. Bandaríski kylfingurinn hefur ekkert keppt að undanförnu vegna meiðsla og í dag gaf hann það út að hann yrði ekki með á stórmótinu. 5.7.2011 17:30
Ástralar ósáttir við Harry Kewell Harry Kewell einn besti og dáðasti knattspyrnumaður Ástralíu hefur skapað sér óvæntar óvinsældir í heimalandinu. Allt leit út fyrir að Kewell ætlaði að ljúka ferlinum í áströlsku A-deildinni en nú virðist vera komið babb í bátinn. 5.7.2011 16:45
Alou Diarra til Marseille Franski miðjumaðurinn Alou Diarra hefur gengið til liðs við Marseille. Samingur Diarra er til þriggja ára en hann kemur til liðsins frá Bordeaux. 5.7.2011 16:00
Riise gæti farið í mál við Lilleström Norski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu Björn Helge Riise hefur krafið fyrrum félag sitt Lilleström um rúmar sex milljónir íslenskra króna. Krafan á uppruna sinn í samningi sem Riise gerði við Lilleström þegar hann gekk til liðs við félagið árið 2005. 5.7.2011 15:30
Mansell hrifinn af frammistöðu Vettel og lét ekki beinbrot stöðva sig Fyrrum Formúlu 1 ökumaðurinn og Bretinn Nigel Mansell er hrifinn af frammistöðu Sebastian Vettel og hvernig hann hefur náð tökum á nýjum dekkjum í Formúlu 1. Sjálfur varð Mansell meistari 1992 og lét ekki brotin bein í fæti stöðva sig frá takmarki sínu í titilslagnum á sínum tima. Mansell verður meðal dómara á breska kappakstrinum um næstu helgi. 5.7.2011 15:10
City ætlar ekki að flýta sér að selja Tevez Forráðamenn Manchester City segjast ekki þurfa að flýta sér að selja Carlos Tevez. Argentínumaðurinn sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann óskaði eftir því að fara frá félaginu. 5.7.2011 14:45
Ótrúlegur viðsnúningur þegar U17 landsliðið tapaði gegn Frökkum Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 17 ára og yngri beið lægri hlut gegn Frakklandi 3-2 á Norðurlandamóti stúlkna í Finnlandi í dag. Íslensku stúlkurnar voru 2-0 yfir í hálfleik og með undirtökin í leiknum. 5.7.2011 14:18
Steven Gerrard missir af æfingaferð Liverpool til Asíu Steven Gerrard fyrirliði Liverpool missir af æfingaferð enska úrvalsdeildarliðsins til Asíu. Forráðamenn Liverpool telja mikilvægara að Gerrard verði áfram í umsjón sjúkraliðsins á Anfield en hann er að jafna sig á meiðslum. 5.7.2011 14:15
Aron Einar sterklega orðaður við Cardiff Íslenski landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson gæti verið á leið til Cardiff City ef marka má velska fjölmiðla. Walesonline heldur því fram að Aron Einar gæti skrifað undir við nýtt félag innan 48 klukkustunda. 5.7.2011 14:00
Williams vann fyrsta og 100 sigurinn á Silverstone Williams liðið er á heimavelli á Silverstone brautinni eins og önnur Formúlu 1 lið, sem eru staðsett í Bretlandi. Níunda umferðin í Formúlu 1 verður á brautinni um helgina. Williams liðið vann sinn fyrsta sigur á brautinni árið 1979 og þann 100 í röðinni árið 1997. 5.7.2011 13:59
Coentrao til Real Madrid á 30 milljónir evra Benfica hefur samþykkt boð frá Real Madrid í portúgalska vinstri bakvörðinn Fabio Coentrao. Kaupverðið er talið vera 30 milljónir evra eða sem nemur um fimm milljörðum íslenskra króna. Landsliðsmaðurinn portúgalski á eftir að semja um kaup og kjör auk þess sem hann þarf að gangast undir læknisskoðun. 5.7.2011 13:30
Chile vann Mexíkó - Jafnt hjá Úrúgvæ Tveir leikir fóru fram í Suður-Ameríku bikarnum í knattspyrnu í gærkvöldi. Chile vann sigur á Mexíkó 2-1 eftir að hafa lent marki undir en Úrúgvæ náði aðeins jafntefli 1-1 gegn Perú. 5.7.2011 13:00
Sigurgeir Árni á leið til Kristiansund HK Fyrirliði Íslandsmeistara FH í handknattleik, Sigurgeir Árni Ægisson, er á leið til norska félagsins Kristiansund HK. Þjálfari liðsins er Íslendingurinn Gunnar Magnússon en auk þess leikur Akureyringurinn Jónatan Magnússon með liðinu. 5.7.2011 11:31
U19 landslið Íslands steinlá gegn Hollandi Landslið Íslands skipað leikmönnum 19 ára og yngri beið lægri hlut 20-12 gegn Hollendingum á Opna Evrópumótinu í handknattleik sem fram fer í Gautaborg. Íslenska liðið leiddi í hálfleik 9-7. 5.7.2011 10:58
Hasan Salihamidzic til Wolfsburg Bosníumaðurinn Hasan Salihamidzic er genginn til liðs við þýska félagið Wolfsburg. Salihamidzic kemur til liðsins á frjálsri sölu en samningur hans við Juventus var ekki endurnýjaður. 5.7.2011 10:45
Scholes gerir lítið úr fallegum fótbolta Arsenal Paul Scholes sem nýverið lagði skóna á hilluna eftir farsælan feril með Manchester United segist vonast til þess að Samir Nasri gangi til liðs við félagið frá Arsenal. Hann segir lítinn tilgang í að spila fallegan fótbolta ef það skilar engum árangri. 5.7.2011 10:15
Nærveru Jovanovic hjá Liverpool ekki lengur óskað Serbinn Milan Jovanovic leikmaður Liverpool hefur fengið þau skilaboð frá félaginu að krafta hans sé ekki lengur óskað. Jovanovic kom til félagsins á frjálsri sölu síðastliðið sumar en fékk fá tækifæri með Liverpool eftir að Rafa Benitez var látinn taka pokann sinn. 5.7.2011 09:45
Peter Ridsdale kaupir Plymouth Argyle Allt bendir til þess að Peter Ridsdale muni kaupa enska knattspyrnufélagið Plymouth Argyle fyrir eitt breskt pund. Félagið hefur átt í fjárhagslegum erfiðleikum undanfarin misseri og fór í greiðslustöðvun í mars síðastliðnum. 5.7.2011 09:00
Kolbeinn fetar í fótspor Van Basten "Ég tel Ajax vera eitt stærsta félag í Evrópu og jafnvel í heiminum. Þetta er stórt tækifæri fyrir mig að spila fyrir svona sögufrægt félag,“ segir Kolbeinn Sigþórsson. Kolbeinn skrifaði undir fjögurra ára samning við hollensku meistaranna í gær en kaupverðið er talið vera um fjórar milljónir evra. 5.7.2011 09:00
Björn Bergmann stendur sig í vinnunni Björn Bergmann Sigurðarson, leikmaður U21 árs landsliðs Íslands, stendur sig vel í vinnunni hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lilleström. Björn Bergmann er í fjórða sæti á lista yfir þá sem hafa fengið hæstu einkunn að meðaltali í leik í deildinni og hann er í efsta sæti á stoðsendingalistanum. 5.7.2011 07:00
Rory McIlroy er með frábært æfingasvæði í bakgarðinum Norður –Írinn Rory McIlroy hefur vakið gríðarlega athygli frá því hann sigraði á opna bandaríska meistaramótinu í golfi á dögunum. Hinn 22 ára gamli kylfingur veit vart aura sinna tal eftir velgengnina undanfarin ár og hann hefur látið útbúa magnað æfingasvæði í bakgarðinum á heimili sínu. 4.7.2011 23:48
Carlos Tevez vill fara frá Manchester City Argentínski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Carlos Tevez, gaf í kvöld út þá yfirlýsingu að hann vilji yfirgefa herbúðir enska bikarmeistaraliðsins Manchester City. Í stuttri yfirlýsingu sagði framherjinn að hann vilji vera nær dætrum sínum sem eru búsettar í Argentínu. 4.7.2011 22:12
Rafael van der Vaart vonast til þess að Modric verði kyrr Hollenski landsliðsmaðurinn Rafael van der Vaart telur að liðsfélagi hans Luka Modric hjá enska liðinu Tottenham sé ekki á höttunum eftir hærri launum fari hann frá Tottenham í sumar. Hinn 25 ára gamli Modric kom flestum á óvart þegar hann sagðist vilja fara frá liðinu en Tottenham hefur þegar hafnað 22 milljóna punda tilboði í króatíska miðjumanninn. 4.7.2011 23:30
Uppselt á 23 af alls 26 keppnisgreinum á ÓL í London Miðasalan fyrir Ólympíuleikana í London á næsta ári gengur framar vonum og er nánast uppselt á alla viðburðina. Alls hafa verið seldir 3,5 milljónir miða og aðeins er hægt að fá miða á þrjár greinar. Fótbolta, blak og grísk-rómverska glímu. 4.7.2011 22:30
Ólafur afhenti Rússum sigurverðlaunin Rússar fögnuðu sigri á Evrópumeistaramótinu í körfuknattleik kvenna en úrslitaleikurinn fór fram í gær. Rússar og Tyrkir áttust við í úrslitaleiknum og þar höfðu Rússar betur 59-42 og var sigur þeirra aldrei í hættu. Ólafur Rafnsson forseti FIBA Europe og forseti Íþrótta – og ólympíusambands Íslands afhenti sigurvegurunum verðlaunin í leikslok en mótið fór fram í Póllandi. 4.7.2011 21:15
Kvennalandsliðið í golfi hefur keppni á EM í Austurríki Íslenska kvennalandsliðið í golfi hefur leik á morgun á EM sem fram fer í Austurríki. Alls hafa 20 þjóðir keppnisrétt á þessu móti og fyrstu tvo keppnisdagana er keppt í höggleik. Að því loknum er þjóðunum skipt í þrjá riðla eftir skori – og holukeppni ræður úrslitum um lokastöðuna á síðustu tveimur keppnisdögunum. 4.7.2011 20:30
Ronaldo æfur yfir fölsku viðtali í Sunday Mirror Portúgalski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Cristiano Ronaldo, er ekki sáttur við enska dagblaðið Sunday Mirror sem birti viðtal við hann s.l. sunnudag. Ronaldo skrifaði á Twitter samskiptasíðuna að viðtalið væri uppspuni frá rótum og hann hafi aldrei farið í viðtalið. 4.7.2011 19:45
Golfskóli Birgis Leifs: Takturinn er mikilvægur Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur og Íslandsmeistari í golfi, fer hér yfir hve mikilvægt það er að vera með góðan takt í golfsveiflunni. Birgir sýnir æfingar sem flestir kylfingar geta nýtt sér en þær eru úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. 4.7.2011 19:00