Fleiri fréttir

Enginn verði ríkisfangslaus

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna kynnti í gær metnaðarfulla herferð gegn ríkisfangsleysi. Stefnt verði að því að innan áratugar verði enginn maður ríkisfangslaus.

Vígasveitir pynta börn

Mannréttindasamtök segja fjölda barna hafa orðið fyrir pyntingum og misþyrmingum á Kúrdasvæðunum í norðanverðu Sýrlandi, fyrst af hálfu hersveita Assadstjórnarinnar og síðan af hálfu vígasveita Íslamska ríkisins.

Repúblikönum spáð góðu gengi

Milljónir Bandaríkjamanna ganga að kjörborðinu í dag þegar kosið er um fulltrúa í fulltrúadeild og öldungadeild þingsins. Líklegt þykir að óvinsældir Bandaríkjaforseta komi til með að bitna á frambjóðendum demókrata.

Saksóknarar í máli Pistorius áfrýja

Saksóknarar segja dóminn yfir Oscar Pistorius hafa verið "hneykslanlega léttvægan“, en svo kann að fara að honum verði sleppt eftir tíu mánuði.

Bandaríkjamenn kjósa til þings

Milljónir Bandaríkjamanna búa sig nú undir að ganga að kjörborðinu en kosið er um fulltrúa í fulltrúadeild og öldungadeild þingsins í dag. Repúblikanar stjórna nú fulltrúadeildinni og ekkert bendir til þess að það breytist.

Drónaflug yfir orkuverum skelfir Frakka

Fjöldi tilvika óútskýrðs og ólöglegs yfirflugs dróna (ómannaðra smáflugvéla) yfir tugum kjarnorkuvera í Frakklandi hafa hrundið af stað sérstakri rannsókn yfirvalda öryggis- og varnarmála þar í landi.

Fór á barinn á flugvélinni

Ástralskur karlmaður bíður nú ákæru eftir að hafa ekið og lagt vængjalausri flugvél sinni fyrir utan bar í smábæ í vesturhluta Ástralíu.

Merkel varar Cameron við

Þýska blaðið Der Spiegel hefur eftir heimildum innan úr þýsku ríkisstjórninni að Angela Merkel kanslari hafi varað David Cameron forsætisráðherra Breta við með harðorðum hætti á dögunum.

Heitasta tímabil á jörðinni í 1.400 ár

Draga verður skipulega úr notkun jarðefnaeldsneytis eins og olíu og gass og helst hætta alfarið notkun þess fyrir næstu aldamót ef það á að takast að afstýra varanlegum breytingum á loftslagi heimsins.

Sjá næstu 50 fréttir