Fleiri
ÚPS Það lyftist brúnin á stjórnendum Boeing flugvélaverksmiðjunnar á fimmtudaginn. 21.10.2007 16:07 Ekkert bendir til sektar McCann hjónanna Fyrrverandi lögreglustjóri Lundúnaborgar segir í blaðagrein í dag að enginn möguleiki væri á því í Bretlandi að MacCann hjónin yrðu ákærð fyrir að hafa orðið dóttur sinni Madeleine að bana. 21.10.2007 15:26 Trylltist á veitingastað - myndband Gestir á veitingahúsi í Bandaríkjunum sáu þann kostinn vænstan að flýja þegar einn gestanna trylltist yfir því að tölvan hans virkaði ekki. 21.10.2007 13:33 Pólverjar kjósa þing Pólverjar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér þing - tveimur árum á undan áætlun. Skömmu fyrir hádegi höfðu um fimmtíu Pólverjar búsettir á Íslandi greitt atkvæði í Alþjóðahúsinu í Reykjavík. 21.10.2007 12:49 Ætluðu að myrða Ehud Olmert Hópur Palestínumanna lagði á ráðin um að myrða Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann fór í bílalest til þess að hitta Mahmoud Abbas forseta Palestínumanna í Jeríkó í ágúst síðastliðnum. 21.10.2007 11:50 Þjóðernissinnar sækja á í Sviss Kosið til þings í Sviss í dag og er þjóðernissinnum spáð mestu fylgi. 21.10.2007 10:18 Tyrkir gera stórskotaliðsárás á Írak Tyrkenski herinn hóf stórskotaliðsárás á Kúrdahéruð í Norður-Írak í morgun. 21.10.2007 10:10 Gorbachev orðinn krati -stofnar flokk Mikael Gorbachev setti í dag stofnfund nýrrrar hreyfingar Sambands jafnaðarmanna í Rússlandi. 20.10.2007 21:00 Fullur túristi stökk á krókódíl -ógurleg slagsmál Eftir tólf bjóra þótti Matt Martin tími til kominn að fá sér sundsprett. Matt er frá Newcastle í Bretlandi, en var í sumarfríi í Queensland í Ástralíu. 20.10.2007 20:49 Óttast stjórnarskipti Ráðamenn í Washington fylgjast uggandi með pólsku þingkosningunum á morgun. Verði sitjandi stjórn felld gætu áætlanir um eldflaugavarnarkefi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu verið í uppnámi. 20.10.2007 18:45 Blóðugt fjöldamorð í Kanada Kanadamenn eru sem þrumu lostnir eftir að sex blóðug og illa farin lík fundust í íbúð í háhýsi í bænum Surrey í Bresku Kólumbíu. Það er skammt frá Vancouver. 20.10.2007 15:47 Sjá næstu 50 fréttir
Tyrkir segjast leita allra leiða til að forðast innrás Tyrknesk yfirvöld hafa lýst því yfir að þau hyggist leita allra frirðsamlegra leiða til þess að koma í veg fyrir árásir kúrdískra aðskilnaðarsinna, áður en gripið verður til hernaðaraðgerða. 23.10.2007 07:00
Neyðarástand í Kaliforníu Gífurlegir skógar-eldar geisa nú í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum og hefur Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri lýst yfir neyðarástandi í sjö sýslum í suðurhluta ríkisins. 23.10.2007 04:00
Howard tapaði í kappræðum Forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, þótti bíða lægri hlut fyrir stjórnarandstöðuleiðtoganum Kevin Rudd í heitum sjónvarpskappræðum á sunnudaginn sem yfir 2,1 milljón Ástrala, eða tíu prósent þjóðarinnar, fylgdist með. 23.10.2007 03:45
Aukin pólitísk völd Hu eftir flokksþing kína, ap Forseti Kína, Hu Jintao, hefur seinna fimm ára kjörtímabil sitt með aukin pólitísk völd að loknu flokksþingi Kommúnistaflokksins í Kína. Hann hefur nú frjálsari hendur til að fást við vaxandi spennu vegna launamunar og til að auka fjárframlög til vanræktrar félagsþjónustu. 23.10.2007 03:00
Brynvagnar stefna að landamærunum Tyrkland, AP Tugir tyrkneskra brynvagna stefndu í gær að landamærunum að Írak. Á fjölmennum mótmælafundum í borgum landsins var þess krafist að tekið væri af hörku á uppreisnarmönnum Kúrda í kjölfar þess að í fyrradag féllu tólf hermenn í fyrirsát. 23.10.2007 03:00
Hundruð óeirðarseggja í palestínsku fangelsi Hundruð palestínskra fanga gerðu aðsúg að ísraelskum fangavörðum í Negev eyðimörkinni í suðurhluta Israel. Fimmtán Palestínumenn og 15 fangaverðir særðust í átökunum að sögn ísraelskra yfivalda. 22.10.2007 21:50
Karlmaður á þrítugsaldri syrgir níræða eiginkonu Argentínska parið Adelfe Volpes og Reinaldo Waveqche höfðu búið saman í nærri áratug þegar þau loks ákváðu að ganga í það heilaga í lok síðasta mánaðar. Nokkur aldursmunur var á þeim hjónum en Adelfe var 82 ára gömul en Reinaldo 24 ára. Aðeins nokkrum vikum eftir athöfnina lést Volpes. 22.10.2007 20:17
Discovery skotið á loft á morgun Geimskutlunni Discovery verður skotið á loft frá Flórídaskaga á morgun en för hennar heitið að alþjóðlegu geimstöðinni. Þar mun geimskutlan dvelja í fjórtán daga á meðan áhöfn hennar sinnir viðhaldi og endurbætum á geimstöðinni. 22.10.2007 19:47
Osama bin Laden hvetur múslima til að sýna samstöðu Arabíska sjónvarpsstöðin Al Jazeera sendi í dag út hljóðupptöku af Osama bin Laden, leiðtoga Al kaída samtakanna. Þar hvetur bin Laden herskáa múslima í Írak til að sameina krafta sína. 22.10.2007 18:49
Rússar opna leynilega flugstöð Rússar stunda þessa dagana viðamiklar heræfingar í lofti, meðal annars með sprengjuflugvélum sem hafa verið að fljúga meðfram Íslandi. Hinn háleynilegi herflugvöllur í sunnanverðu Rússlandi, þar sem miðstöð vélanna er, hefur ekki áður verið opnaður vestrænum fréttamönnum. 22.10.2007 18:45
Fundu 12 þúsund fornmuni á heimili ellilífeyrisþega Lögreglan í Feneyjum á Ítalíu lagði í morgun hald á nærri 12 þúsund fornmuni sem fundust á heimili ellilífeyrisþega þar í borg. Maðurinn hafði í mörg ár stundað ólöglegan fornleifauppgröft víða á Ítalíu. Elstu munirnir sem fundust á heimilinu voru nærri 3.600 ára gamlir. 22.10.2007 18:21
Tyrkir safna liði við landamæri Íraks Tyrkneskar hersveitir héldu í dag að landamærunum við Írak eftir hörð átök við kúrdíska skæruliða alla helgina. Erdogan forsætisráðherra Tyrklands segir þó að ekki verði ráðast inn í Írak fyrr en fullreynt væri að aðrar leiðir dygðu ekki til að binda enda á árásir skæruliða. 22.10.2007 17:44
Þjóðernissinnar taldir á undanhaldi Fréttaskýrendur segja að kosningarnar í Póllandi séu viðvörun til öfgaflokka í Mið- og Austur-Evrópu um að stuðningur við þá sé að minnka. 22.10.2007 17:40
SAS mismunar farþegum eftir kynþætti Sérstök kvörtunarnefnd í málefnum minnihlutahópa í Danmörku hefur komist að þeirri niðurstöðu að norræna flugfélagið SAS mismuni farþegum eftir menningarlegum bakgrunni þeirra. Félagið meinar fólki með ónorræn og óengilsaxnesk nöfn að nýta sér sjálfsafgreiðslu við innritun. 22.10.2007 16:05
Kínverjar skjóta geimkönnunarfari á loft Kínverjar hyggjast síðar í þessari viku skjóta á loft geimkönnunarfarinu, Change'e One, en því er ætlað rannsaka landslag og þykkt jarðefna á tunglinu. Reiknað er með því að könnunarfarið verði næstu tvö árin á sporbraut um tunglið. 22.10.2007 15:21
Einn látinn í skógareldum í Kaliforníu Að minnsta kosti einn er látinn og sautján slasaðir í miklum skógareldum í Kaliforníu. Töluverðar tafir hafa orðið á slökkvistarfi þar sem slökkvilið hefur þurft að snúa frá slökkvistörfum til að bjarga íbúum sem neituðu að yfirgefa heimili sín í gær. Ástandið snarversnaði í nótt og er orðið mun verra en slökkviliðsmenn hefðu getað ímyndað sér að sögn Bill Metcalf varðstjóra slökkviliðs sem berst við eldana. 22.10.2007 15:05
Vildu gera hryðjuverkaárás á Tívolíið í Kaupmannahöfn Hryðjuverkamennirnir í hinu svokallaða Vollmose-máli íhuguðu að koma fyrir sprengju í Tívolíinu í Kaupmannahöfn. Þetta kom fram við vitnaleiðslur í Eystri landsrétti í Danmörku í dag. Mennirnir höfðu einnig hugsað sér að koma fyrir sprengju á aðaljárnbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn. 22.10.2007 14:36
Átta tyrkneskra hermanna saknað Átta tyrkneskra hermanna er saknað eftir árás uppreisnarmanna Kúrda á tyrkneskar hersveitir í gær sem kostuðu 12 tyrkneska hermenn lífið. Yfirlýsing hersins í Tyrklandi þess efnis var birt í kjölfar þess að fréttastofa sem talin er tengjast uppreisnarmönnunum birti nöfn sjö þeirra sem saknað er. 22.10.2007 14:17
Þýskir lestarstjórar boða verkfall Reiknað er með miklum töfum á lestarsamgöngum í Þýskalandi næstkomandi fimmtudag og föstudag vegna boðaðs verkfalls þýskra lestarstjóra. Viðræður þeirra við þýska lestarfyrirtækið Deutsche Bahn hafa engan árangur borið. 22.10.2007 14:12
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Barak Obama sigraði í forkosningunum í Wisconsin í nótt og er þetta níundi sigur hans í röð í baráttunni um útnefninguna sem forsetaefni Demókrataflokksins. 22.10.2007 12:19
Kvenkyns sjóliðar skotnir til bana Tveir kvenkyns sjóliðar voru skotnir til bana í herstöð bandaríska flotans í Bahrain í morgun. Annar sjóliði liggur þungt haldinn af völdum skotsára. í yfirlýsingu frá flotanum kemur fram að ekki sé um hryðjuverk að ræða og að einungis sjóliðar hafi komið við sögu í skotárásinni. 22.10.2007 12:00
Stjórnarandstaðan sigraði í Póllandi Stjórnarandstaðan í Póllandi fór með sigur af hólmi í kosningum í landinu í gær. Núverandi forsætisráðherra landsins, Jaroslaw Kaczynski hefur viðurkennt ósigur sinn en flokkur hans Lög og regla fékk 32 prósent atkvæða í kosningunum. 22.10.2007 08:42
Cheney aðvarar Írani Dick Cheney sagði í ræðu sem hann hélt í Virgíníu í gær að Íranir stæðu í vegi fyrir því að friður kæmist á í Mið Austurlöndum og að heimurinn gæti ekki staðið hjá og horft upp á ríkið koma sér upp kjarnavopnum. 22.10.2007 08:24
Þúsundum minka sleppt í Danmörku Tvö þúsund minkar fengu frelsið í nótt þegar brotist var inn í minnkabú í nágrenni Holsterbro í Danmörku og búrin opnuð. Minnkarnir sjást nú fara um í hópum í nágrenninu og hamast menn nú við að fanga dýrin á ný. 22.10.2007 08:11
Skógareldar í Malíbú ógna glæsivillum Miklir skógareldar geysa nú í Malibu í Californíu í Bandaríkjunum. Tugir húsa hafa orðið eldinum að bráð og þúsundir hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín. 22.10.2007 08:06
Lést þegar óðir apar réðust á hann Aðstoðarborgarstjórinn í Delhí á Indlandi lést af völdum höfuðáverka þegar hann féll fram af svölum á heimili sínu er hann reyndi að verjast árásum apanna sem gerðu aðsúg að honum. Yfirvöld í Delhi hafa lengi reynt að stemma stigu við apaplágunni sem herjað hefur á borgina en aparnir brjótast inn í hús og musteri og fara um ruplandi og rænandi og hræða fólk. 22.10.2007 07:54
Tamíl tígrar gera loftárás Uppreisnarmenn úr röðum Tamíl tígra á Sri Lanka gerðu loftárás á herflugvöll á norðurhluta eyjarinnar í nótt. 22.10.2007 07:45
Tyrkir undirbúa aðgerðir Tyrkneskir leiðtogar hafa heitið því að beita öllum ráðum til þess að berja niður Kúrdíska vígamenn eftir bardaga síðustu daga. Að minnsta kosti 12 tyrkneskir hermenn féllu í árás á aðfararnótt sunnudags. 22.10.2007 07:43
Charles var eina ást Díönu Charles var stóra og eina ástin í lífi Díönu prinsessu, að sögn náinnar vinkonu hennar. Hún elskaði hann til síðasta dags og hefði aldrei dottið í hug að giftast Dodi Al-Fayed. 21.10.2007 22:15
Bóksalinn í Kabúl höfðar mál gegn Seierstad Bóksalinn í Kabúl hafnaði í dag tilboði norsku blaðakonunnar og rithöfundarins Åsne Seierstad um fimm milljóna króna greiðslu vegna bókarinnar sem hún skrifaði með hann sem fyrirmynd. 21.10.2007 20:44
Kona í fyrsta sinn formaður UMFÍ Helga Guðrún Guðjónsdóttir var einróma kjörin formaður Ungmennafélags Íslands á þingi þess sem lauk á Þingvöllum í dag. 21.10.2007 20:07
Leggið þið niður vopn eða farið þið Jalal Talabani forseti Íraks krafðist þess í dag að Kúrdar leggi niður vopn eða yfirgefi landið ella. 21.10.2007 19:48
Þjóðernissinnar unnu sigur í Sviss Þjóðernissinnar eru nú stærsti flokkurinn á svissneska þinginu. Þeir fengu 28,8 prósent atkvæða samkvæmt fyrstu tölum í kosningunum sem fram fóru í dag. 21.10.2007 17:53
Eredda dekkjavekkstaðið? Austurríski ökumaðurinn var svo drukkinn að hann treysti sér ekki til þess að skipta um dekk þegar sprakk á bílnum hans. 21.10.2007 17:27
Ekkert bendir til sektar McCann hjónanna Fyrrverandi lögreglustjóri Lundúnaborgar segir í blaðagrein í dag að enginn möguleiki væri á því í Bretlandi að MacCann hjónin yrðu ákærð fyrir að hafa orðið dóttur sinni Madeleine að bana. 21.10.2007 15:26
Trylltist á veitingastað - myndband Gestir á veitingahúsi í Bandaríkjunum sáu þann kostinn vænstan að flýja þegar einn gestanna trylltist yfir því að tölvan hans virkaði ekki. 21.10.2007 13:33
Pólverjar kjósa þing Pólverjar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér þing - tveimur árum á undan áætlun. Skömmu fyrir hádegi höfðu um fimmtíu Pólverjar búsettir á Íslandi greitt atkvæði í Alþjóðahúsinu í Reykjavík. 21.10.2007 12:49
Ætluðu að myrða Ehud Olmert Hópur Palestínumanna lagði á ráðin um að myrða Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann fór í bílalest til þess að hitta Mahmoud Abbas forseta Palestínumanna í Jeríkó í ágúst síðastliðnum. 21.10.2007 11:50
Þjóðernissinnar sækja á í Sviss Kosið til þings í Sviss í dag og er þjóðernissinnum spáð mestu fylgi. 21.10.2007 10:18
Tyrkir gera stórskotaliðsárás á Írak Tyrkenski herinn hóf stórskotaliðsárás á Kúrdahéruð í Norður-Írak í morgun. 21.10.2007 10:10
Gorbachev orðinn krati -stofnar flokk Mikael Gorbachev setti í dag stofnfund nýrrrar hreyfingar Sambands jafnaðarmanna í Rússlandi. 20.10.2007 21:00
Fullur túristi stökk á krókódíl -ógurleg slagsmál Eftir tólf bjóra þótti Matt Martin tími til kominn að fá sér sundsprett. Matt er frá Newcastle í Bretlandi, en var í sumarfríi í Queensland í Ástralíu. 20.10.2007 20:49
Óttast stjórnarskipti Ráðamenn í Washington fylgjast uggandi með pólsku þingkosningunum á morgun. Verði sitjandi stjórn felld gætu áætlanir um eldflaugavarnarkefi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu verið í uppnámi. 20.10.2007 18:45
Blóðugt fjöldamorð í Kanada Kanadamenn eru sem þrumu lostnir eftir að sex blóðug og illa farin lík fundust í íbúð í háhýsi í bænum Surrey í Bresku Kólumbíu. Það er skammt frá Vancouver. 20.10.2007 15:47