Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrjátíu láta lífið í sprengingu á Indlandi Að minnsta kosti þrjátíu létu lífið eftir að sprengja sprakk í kvikmyndahúsi í Punjab héraði á Indlandi í gær. Mörg hundruð manns voru í kvikmyndahúsinu og greip um sig mikil skelfing þegar sprengjan sprakk. 15.10.2007 07:06
Byssurnar tala og leiðtogar deila í Írak Á fjórða tug manna hefur látið lífið í ofbeldisverkum í Írak nú um helgina, þegar múslimar um allan heim fagna lokum Ramadan föstumánaðarins. 14.10.2007 18:19
Höggmyndir fluttar niður Akropolishæð Tvö þúsund og fimm hundruð ára gamlar styttur voru í dag fluttar af Akropolis hæð í Aþenu niður að safni sem verður þeirra framtíðarheimili. 14.10.2007 18:17
Ferðamenn drukknuðu í tælenskum helli Sex evrópskir ferðamenn voru meðal átta manna sem létu lífið í Tælandi í dag þegar vatn flæddi skyndilega inn í helli sem þeir voru að skoða. Bresk kona komst lífs af. 14.10.2007 18:16
Stuðningur við íhaldsmenn ekki verið meiri í 15 ár Gordon Brown á ekki sjö dagana sæla þessa dagana. Hann tilkynnti nýverið að ekki yrði boðað til kosninga í haust og túlkuðu gagnrýnendur það á þann vega að hann væri ekki nógu afgerandi stjórnmálamaður. Íhaldsmenn voru fljótir til að segja að forsætisráðherrann þyrði einfaldlega ekki í kosningar þar sem hann væri ekki viss um sigur. Ef sá ótti var fyrir hendi virðist hann hafa átt við nokkur rök að styðjast, ef marka má nýja könnun í Sunday Telegraph þar sem Íhaldsflokkurinn í Bretlandi nýtur stuðnings 43 prósenta. Þetta er besti árangur flokksins í heil 15 ár. 14.10.2007 15:54
Ráðist á forseta Þýskalands Forseti Þýskalands Horst Koehler varð fyrir árás í dag þegar hann kom af verðlaunaafhendingu á bókamessunni í Frankfurt. 44 ára gamall maður frá Rúmeníu sem búsettur er í Þýskalandi vatt sér að forsetanum og greip í jakkaboðunga hans áður en lífverðir forsetans náðu að yfirbuga hann. 14.10.2007 14:13
Howard boðar til kosninga í Ástralíu John Howard forsætisráðherra Ástralíu boðaði í dag til þingkosninga, sem verða haldnar 24. nóvember. Howard er 68 ára og hefur verið við völd í ellefu ár. 14.10.2007 12:24
Átök harðna í Kólumbíu Átök fara nú harðnandi milli stjórnarhersins og skæruliða FARC hreyfingarinnar, sem hefur reynt að bylta stjórn Kólumbíu í fjóra áratugi. Í gær féllu sex skæruliðar og þrír hermenn særðust í átökum í héraði, sem annars er helst þekkt fyrir mikla kókaínframleiðslu. 14.10.2007 12:22
Rice svartsýn á árangur Condoleeza Rice sagðist við upphaf fjögurra daga ferðar um Miðausturlönd efast um árangur af ferðinni. Hún ætlar að reyna að fá Ísraela og Palestínumenn til að fallast á umræðugrundvöll fyrir friðarráðstefnu sem halda á í Bandaríkjunum í næsta mánuði. 14.10.2007 12:20
Opnað fyrir netið en andófsmenn lokaðir inni Stjórnvöld í Búrma hafa nú opnað fyrir netsamband í landinu og stytt útgöngubann sem hefur verið í gildi síðan mótmæli gegn þeim voru í hámarki fyrir tveimur vikum. 14.10.2007 09:48
Hillary Clinton með mikið forskot Hillary Clinton mælist nú með 21 prósenta forskot á næsta keppinaut sinn í hinu mikilvæga New Hampshire fylki fyrir útnefningu demokrataflokksins í Bandaríkjunum. 14.10.2007 09:47
Hamfaraflóð á ferðamannastöðum á Spáni Að minnsta kosti tveir hafa látið lífið í óveðri á helstu ferðamannastöðum Spánar. Rigningavatn hefur flætt um götur bæja og fresta hefur orðið flug- og ferjusamgöngum. 13.10.2007 19:16
Spenna á landamærum Tyrklands og Íraks Condoleeza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna skoraði á Tyrki í dag að láta ekki verða af fyrirhugaðri árás á kúrdíska skæruliða yfir landamærin við Írak. Þúsundir skærliða á vegum Verkamannaflokks Kúrdistans, eða PKK, hafast við í fjöllunum á landamærum Íraks og Tyrklands. 13.10.2007 19:15
Grátbiður lögreglu um að hreinsa nafn sitt Robert Murat, maðurinn sem fyrstur féll undir grun í Madeleine málinu grátbiður portúgölsku lögregluna um að hreinsa hann af grunsemdum um að vera viðriðin hvarf Madeleine McCann. Murat hefur í fimm mánuði verið með stöðu grunaðs í málinu án þess að hann hafi verið handtekinn eða ákærður vegna málsins. Þrátt fyrir fjölmiðlabann sem sett var á hann á sínum tíma kom Murat fram í viðtali við BBC. „Það hafa liðið fimm mánuðu, sparifé mitt er uppurið og mamma hjálpar mér eins og hún getur en það er erfitt," segir Murat sem býr hjá móður sinni í grennd við hótelið sem McCann fjölskyldan gisti á. 13.10.2007 15:59
Flugskeytaárás á Gaza Ísraelsher gerði flugskeytaárás á Gaza landræmuna í morgun með þeim afleiðingum að einn maður lét lífið og fimm særðust. Maðurinn sem féll var vopnaður Hamas-liði, en meðal þeirra sem særðust var ungur drengur. 13.10.2007 15:19
Gassprenging í Úkraínu lagði byggingu í rúst Íbúðabygging í Úkraínu skemmdist í gassprengingu í morgun. Sex létust og fjölmargir slösuðust og óttast björgunarmenn að tala látinna eigi eftir að hækka. 13.10.2007 11:35
Hu styrkir sig Varaforseti Kína, Zeng Tsínghong, lætur af embætti á þingi kínverska kommúnistaflokksins í næstu vikuk, að sögn heimildarmanna Reuters. 13.10.2007 09:39
Sendifulltrúi dæmdur fyrir peningaþvætti Rússneskur sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum var í gærkvöldi dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir peningaþvætti. Sendifulltrúinn, Vladimir Kuznetsov, var formaður fjárlaganefndar hjá Sameinuðu þjóðunum. 13.10.2007 09:38
Rice ræðir mannréttindi í Rússlandi Condolezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna fundaði í morgun með mannréttindafrömuðum í Rússlandi og hét þeim aðstoð við að vernda einstaklinga gegn "ofurvaldi ríkisins," eins og hún orðaði það. 13.10.2007 09:36
Hrói höttur á reiðhjóli Tuttugu og sex ára gamall laganemi við háskólann í Árósum vinnur með náminu við það að stela reiðhjólum. 12.10.2007 21:45
Bush vill frelsa fangana á Kúbu George Bush sagði í ræðu í Miami í dag að senn sæi fyrir endann á stjórnartíð hins grimma einræðisherra á Kúbu. Castro er bæði gamall og veikur og því ekki óeðlilegt að búast við að hann safnist til feðra sinna á næstu áratugum eða svo. Castro er búinn að lifa ansi marga Bandaríkjaforseta sem hafa villjað hann feigan. Forsetinn hafði mörg orð um þær breytingar sem alþjóðasamfélagið vildi sjá á Kúbu eftir Castro. Meðal annars sagði hann að þjóðir heims yrðu að krefjast þess að föngum á Kúbu yrði sleppt. 12.10.2007 21:00
Skömm að Nóbelsverðlaunum Gore Danski umhverfisverndargagnrýnandinn Björn Lomborg segir að það sé til skammar að Al Gore hafi fengið friðarverðlaun Nóbels fyrir umhverfisverndarstefnu sína. 12.10.2007 20:30
Stjórnmálamaðurinn sem missti stjórn á sér (myndband) Bandaríski stjórnmálamaðurinn James Oddo missti gersamlega stjórn á sér í viðtali við útsendara norsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2. 12.10.2007 17:49
Tyrkir ögra samskiptum við Bandaríkjamenn Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra Tyrkja sagði í dag að viðkvæm staða á milli Bandaríkjanna og Tyrklands myndi ekki aftra Tyrkjum að ráðast yfir landamærin til Íraks til atlögu gegn uppreisnarmönnum Kúrda. Hann sagði Tyrki tilbúna að fórna góðum samskiptum við Washington ef það væri nauðsynlegt. 12.10.2007 16:56
Skelfilegt aðgerðarleysi gegn mæðradauða Sérfræðingar hafa fordæmt skelfilegt aðgerðarleysi gegn mæðradauða í heiminum. Hálf milljón kvenna deyr árlega af barnsförum eða á meðgöngu samkvæmt læknaritinu Lancet. Þá verða 10 – 20 milljónir kvenna fyrir fötlun. Lítið hefur breyst í þessum efnum í 20 ár. Óöruggar fóstureyðingar sem framkvæmdar eru árlega telja 20 milljónir. Þær eru stór orsakavaldur í mæðradauða. 12.10.2007 16:13
Fé til höfuðs fjöldamorðingja Stjórnvöld í Serbíu hafa lagt eina milljón evra, um áttatíu og fimm milljónir króna, til höfuðs hershöfðingjanum Ratko Mladic. 12.10.2007 15:40
Ríkasti maður Noregs í nokkra tíma Norska ráðgjafanum og fjárfestinum Harald Dahl brá heldur en ekki í brún þegar hann las í norskum fjölmiðlum að hann væri ríkasti maður Noregs og ætti litla hundrað milljarða. Þetta kannaðist hann einfaldlega ekki við. 12.10.2007 14:43
„Ég er Al Gore“ „Ég er Al Gore, og ég var næsti forseti Bandaríkjanna,“ hefur friðarverðlaunahafi Nóbels gjarnan sagt í kynningu á sjálfum sér. Gore hlaut friðarverðlaunin í ár ásamt alþjóðlegri nefnd Sameinuðu þjóðanna um loftlagsmál. Verðlaunin voru veitt fyrir að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar að heiminum af völdum loftslagsbreytinga. 12.10.2007 14:34
Eldri borgari sofnaði á rauðu Svissneska lögreglan var kölluð út til að vekja eldri borgara sem sofnaði við stýrið á rauðu ljósi í Bottmingen í Sviss. Urs Maurer sem er 78 ára stoppaði eins og lög gera ráð fyrir á þegar hann sá rautt ljós. Á meðan hann beið eftir grænu varð hann svo svefndrukkinn að hann sofnaði. Aðrir ökumenn reyndu árangurslaust að flauta og banka á rúðuna til að vekja hann. 12.10.2007 12:57
Fagnar ákvörðun Nóbelsnefndarinnar Achim Steiner, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, fagnar ákvörðun Nóbelsnefndarinnar að veita Al Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, og alþjóðlegri nefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál friðarverðlaun Nóbels þetta árið. Verðlaunin fá Gore og nefndin fyrir framlag sitt í loftlagsmálum. 12.10.2007 12:52
Tyrkir kalla sendiherra frá Bandaríkjunum Stjórnvöld í Tyrklandi hafa kallað sendiherra sinn í Washington tímabundið heim til viðræðna. Það er gert vegna andstöðu við ákvörðun bandaríska þingsins um að skilgreina morð Tyrkja á Armönum árið 1915-1917 sem þjóðarmorð. Ályktun þess efnis var samþykkt af utanríkismálanefnd þingsins og fer þaðan til atkvæðagreiðslu hjá fulltrúaráðinu. 12.10.2007 11:50
Öryggisráðið harmar aðgerðir í Búrma Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur gert yfirlýsingu sem harmar aðgerðir herstjórnarinnar í Búrma gegn mótmælendum í landinu. Kínverjar beittu fyrst neitunarvaldi gegn yfirlýsingu sem gerð var af Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakklandi. Þeir drógu síðan andstöðu sína til baka og þykir það merki um breytta afstöðu Kínverja gegn herforingjastjórninni í Búrma. 12.10.2007 11:30
Heimspekingurinn Sri Chinmoy látinn Indverski heimspekingurinn Sri Chinmoy sem tilnefndur var til friðarverðlauna Nóbels lést á heimili sínu í New York í gær. Hann varð andlegur leiðtogi þúsunda manna um heim allan fyrir trú sína á innri frið og samkennd milli landa. Chinmoy var tilnefndur til verðlaunanna fyrir þrotlaust starf fyrir Sameinuðu þjóðirnar í 30 ár. 12.10.2007 10:56
Putin varar Bandaríkin við eldflaugakerfi Vladimir Putin forseti Rússlands segist ekki styðja áform Bandaríkjamanna um eldflaugavarnarkerfi í Evrópu. Með því yrðu möguleikar Rússa til að bregðast við hernaðaruppbyggingu í nágrannalöndum sínum í Evrópu að engu. Putin lýsti þessu yfir við upphaf fundar með Condoleezzu Rice utanríkisráherra Bandaríkjanna og Robert Gates varnarmálaráðherra. 12.10.2007 10:23
Sjö létust í flugslysi í Kólumbíu Sjö létust þegar lítil flugvél brotlenti í Bogota höfuðborg Kólumbíu í gærkvöldi, nokkrum mínútum eftir flugtak frá El Dorado flugvellinum. Fimm manns voru um borð í vélinni sem var af gerðinni King 200. Tveir létust á heimilum sínum á jörðu niðri en vélin skemmdi nokkur hús þegar hún hrapaði niður á íbúðahverfi. 12.10.2007 09:36
Spáir hjónaböndum við vélmenni Breskum vísindamanni hefur verið veitt doktorsgráða fyrir ritgerð sem spáir hjónaböndum milli vélmenna og manna í framtíðinni. Það var háskólinn í Maastricht í Hollandi sem veitti David Levy PhD gráðuna fyrir lokaritgerð sem bar heitið "Intimate Relationships with Artificial Partners," eða náin sambönd við tilbúna félaga. 12.10.2007 09:11
Al Gore og loftlagsnefnd SÞ fá friðarverðlaun Nóbels Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og alþjóðleg nefnd Sameinuðu þjóðanna um loftlagsmál, fá friðarverðlaun Nóbels í ár. Þetta var tilkynnt í Osló nú rétt í þessu. 12.10.2007 09:05
Móðgaði Chavez og fær ekki að syngja Hinum vinsæla spænska söngvara Alejandro Sanz hefur verið meinað að halda tónleika á leikvangi í Caracas vegna ummæla sem hann lét falla um Hugo Chavez forseta Venesúela. 12.10.2007 08:04
Madonna með 7 milljarða kr. samning Madonna mun á næstunni undirrita risasaming upp á rúma 7 milljarða króna við tónleikafyrirtækið Live Nation. Samhliða mun hún hætta samstarfi sínu við plötuútgáfuna Warner Music Group 12.10.2007 08:02
Toppfundur í Moskvu Condolezza Rice utanríkisráðherra og Robert Gates varnarmálaráðherra Bandaríkjanna eru nú í Moskvu þar sem þeir munu hitta rússneska samráðherra sína á fundi síðar í dag. 12.10.2007 07:59
SAS enn í vandræðum með Dash-vélarnar SAS-flugfélagið hefur enn ekki bitið úr nálinni hvað erfiðleika með Dash-vélar félagsins varðar. Það verður æ erfiðara fyrir SAS að sannfæra farþega sína um að óhætt sé að ferðast með þessum vélum. 12.10.2007 07:55
Önnur eldsprengjuárás í Albertslund Önnur árás með Molotov-kokteilum, eða eldsprengjum, var gerð á lögreglustöðina í Albertslund, einu úthverfa Kaupmannahafnar í nótt. Að þessu sinni munaði mjóu að allt færi í bál og brand því ein eldsprengjan braut ytra byrði á rúðu að skrifstofu varðstjórans. 12.10.2007 06:58
15 konur og börn féllu í loftárás í Írak Loftárás Bandaríkjahers norður af Bagdad varð 15 konum og börnum að bana auk þess sem 19 uppreisnarmenn féllu í árásinni. Talsmenn hersins sögðu frá þessu í dag en árásinni var beint að mönnum sem grunaðir voru um að leiða starf Al Kaída í landinu. 11.10.2007 21:33
Lét græða eyra á handlegginn Ástralskur listamaður sem hefur látið græða eyra á framhandlegg sinn í nafni listarinnar hefur vakið upp deilur. Stelios Arcadiou er fæddur á gríska hluta Kýpur og er 61 árs. Hann segir auka eyrað gert úr brjóski og mótað á rannsóknarstofu. Það er eftirmynd af venjulegu eyra. Skurðlæknar settu spurningamerki við hvort slík aðgerð ætti rétt á sér vegna þess að ekki hafi verið læknisfræðileg þörf á henni. 11.10.2007 16:54
Þrír látnir í sprengingu á Indlandi Að minnsta kosti þrír eru látnir og 20 slasaðir eftir sprengju við mosku í Rajasthan héraði á Indlandi. Sprengjan sprakk fyrir utan Dargah Sharif helgiskrínið í Amjer borg rétt eftir að daglegt hlé var gert á föstu Ramadan mánaðar sem senn er á enda. Að minnsta kosti 500 manns voru inni í helgidómnum þegar sprengjan sprakk samkvæmt heimildum CNN. 11.10.2007 16:43
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent