Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stærsta dauða svæði hafsins sem fundist hefur Vísindamenn hafa uppgötvað nærri 10 þúsund fermílna dautt hafsvæði í Mexíkóflóa. Um er að ræða það stærsta sinnar tegundar sem fundist hefur. Lífvana eða dauð hafsvæði eru einskonar eyðimerkur hafsins. Svæðin eru of súrefnissnauð til að fiskar og önnur sjávardýr geti þrifist þar. 4.8.2007 16:38
Ford innkallar bíla vegna galla í hraðastýringu Ford bílaframleiðandinn hyggst innkalla allt að 3.6 milljónir bíla, pallbíla, sendibíla og jepplinga, eftir að galli fannst í rofa sem stýrir sjálfvirkri hraðastýringu. Rofinn er talinn tengjast brunum sem tilkynnt hefur verið um í vélum bílanna. Innköllunin nær til fjölda tegunda sem framleiddar voru á árunum 1992 til 2002. Þar á meðal eru gerðirnar Ford Explorer og F 150, sem hafa verið seldar hér á landi. Þetta er í sjötta sinn sem fyrirtækið innkallar bíla vegna galla tengdum hraðastýringu. 4.8.2007 15:03
Teves verður ekki með á morgun Argentínumaðurinn Carlos Teves verður ekki kominn með leikheimild á morgun þegar Manchester United mætir Chelsea í árlegum leik deildar- og bikarmeistaranna í ensku knattspyrnunni. 4.8.2007 14:46
Færri létust en talið var í fyrstu Mun færri létu lífið en óttast var þegar brú yfir Mississippi fljót hrundi síðaðsliðinn miðvikudag með þeim afleiðingum að tugir bíla féllu átján metra niður í fljótið. 4.8.2007 14:13
Nautgripaflutningar bannaðir vegna Gin- og klaufaveiki Yfirvöld í Bretlandi hafa bannað allan flutning á búfénaði í kjölfar þess að gin og klaufaveiki greindist á bóndabæ nærri Guildford í Surrey fyrir utan London. Um 60 dýr reyndust smituð af sjúkdómnum, sem olli mikilli skelfingu í Bretlandi árið 2001. 4.8.2007 10:01
Kjósa aðrar aðgerðir gegn mengun Bæjarstjórn Garðabæjar hefur ákveðið að láta kolefnisjafna þær bifreiðir sem sveitarfélagið rekur. Fulltrúar annarra sveitarfélaga hyggjast ekki fylgja fordæmi Garðbæinga. 4.8.2007 10:00
Ókeypis heróín handa dönskum fíklum? Meirihluti danskra þingflokka vilja gera tilraun með að gefa langt leiddum heróínsjúklingum ókeypis heróín. Markmiðið er að draga úr ofneyslu, vændi og götuglæpum. Hugmyndin er að langt leiddir fíknefnaneytendur geti komið á sjúkrahús tvisvar til þrisvar í viku og fengið heróínskammt undir eftirliti heilbrigðisstarfsfólks. 3.8.2007 22:38
Bandarískur hermaður dæmdur í fimmtán ára fangelsi Bandarískur hermaður, Lawrence G. Hutchins III, var í dag dæmdur í fimmtán ára fangelsi í Kaliforníu í Bandaríkjunum fyrir morð á óbreyttum íröskum borgara. Morðið var framið þegar bandarískir hermenn voru að leita að uppreisnarmanni í Írak. 3.8.2007 20:55
Bush boðar til loftslagsráðstefnu George W. Bush Bandaríkjaforseti ætlar að boða til alþjóðlegrar ráðstefnu um loftslagsmál. Ráðstefnan verður haldin í Washington í næsta mánuði og hefur Bush boðið Sameinuðu þjóðunum, Evrópusambandinu og fimmtán stærstu efnahagsríkjum heims á hana. 3.8.2007 20:11
Knútur í megrun Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera frægur og hefur ísbjörninn Knútur fengið að kynnast því. Þessi heimsfrægi ísbjörn hefur nú verið sendur í megrun. 3.8.2007 19:29
Yfirfullum bát hvolfdi við strendur Sierra Leone Að minnsta kosti 65 manns er saknað eftir að bát hvolfdi í stormi við strendur Sierra Leone aðfararnótt föstudags. Lögregla á svæðinu telur að um 85 manns hafi verið um borð en báturinn, sem flutti meðal annars hrísgrjón og pálmolíu, hafði ekki leyfi fyrir svo mörgum farþegum. 3.8.2007 19:05
Belgíska lögreglan leitar manns vegna hvarfs Madeleine Belgíska lögreglan hefur dreift teikningu af manni sem talinn er hafa verið í fylgd með Madeleine McCann á veitingastað í landinu á laugardag. Barnasálfræðingur taldi manninn og konu sem með honum var hegða sér grunsamlega og taldi stúlkubarn í fylgd þeirra líkjast Madeleine, sem leitað hefur verið að í þrjá mánuði. 3.8.2007 19:04
Fjórðungur bandarískra brúa úreltur Einn til viðbótar hefur fundist látinn eftir brúarslysið í Minneapolis-borg í Bandaríkjunum og er tala látinna þá komin í fimm. Það tók tuttugu björgunarmenn heilan dag að ná líkinu úr rústum brúarinnar. Samkvæmt gögnum bandaríska samgönguráðuneytisins er um fjórðungur bandarískra brúa talinn úreltur. 3.8.2007 18:45
Bandarísk hjón eignast sitt sautjánda barn Hin bandaríska Michelle Duggar eignaðist í gær sitt sautjánda barn. Dóttirin Jennifer fæddist í Arkansas eina mínútu yfir tíu og gekk fæðingin hratt og vel fyrir sig. Hún hún tók ekki nema 30 mínútur enda móðirin í góðri æfingu. Hún hefur verið þunguð 11 ár af lífi sínu. 3.8.2007 17:50
Málverk ranglega eignað Van Gogh Málverk sem hefur alla tíð verið eignað listmálaranum Vincent van Gogh er alls ekki úr smiðju meistarans. Þrálegar skoðanir hollenskra sérfræðinga á verkinu leiddu til þessarar niðurstöðu. Ekki er vitað hver málaði. 3.8.2007 17:34
Það ætti að kalla þetta nauðgunarströndina Enn einni sænskri stúlku hefur verið nauðgað á Sunny Beach í Búlgaríu. Barsmíðar, rán, nauðganir og jafnvel morð eru nánast daglegt brauð á þessari strönd, sem er mikið sótt af ungum Norrænum ferðamönnum. Illvirkjarnir nást aldrei. Norsk ferðaskrifstofa leyfir þeim sem vilja að breyta um áfangastað sér að kostnaðarlausu. 3.8.2007 16:40
Kínverjar leggja innflutningsbann á sjávarafurðir frá Indónesíu Ríkisstjórn Kína hefur sett innflutningsbann á fisk og aðrar sjávarafurðir frá Indónesíu eftir að þungmálmar og önnur óæskileg efni fundust í nokkrum vörum. Kvikasilfur og kadmín voru meðal málmanna sem fundust. 3.8.2007 16:38
Fréttamaður laug í beinni útsendingu Einn af stjörnufréttamönnum danska sjónvarpsins hefur orðið uppvís að því að ljúga í beinni útsendingu. Fréttastjóri hans segir málið mjög alvarlegt. Hann hefur veitt fréttamanninum skriflega áminningu og sent hann í þriggja mánaða launalaust frí. Fréttamaðurinn hefur viðurkennt sekt sína og segist harmi sleginn yfir heimsku sinni. 3.8.2007 15:51
Fimmtán ára gömul stúlka grunuð um morð Fimmtán ára gömul stúlka frá Newcastle var handtekin í Bretlandi í dag, grunuð um að hafa stungið 18 ára gamla konu til bana. Atvikið varð í Wallsend, rétt fyrir miðnætti í gær. Maður á fertugsaldri og kona á þrítugsaldri hafa einnig verið yfirheyrð vegna málsins og leitað er fleira fólks. 3.8.2007 15:06
Engin ganga til heiðurs Hess Æðsti dómstóll í Bæjaralandi hefur staðfest bann bæjarstjórnarinnar í smábænum Wunsiedel við því að farin verði minningarganga á dánardægri nazistaforingjans Rudolfs Hess. Hess var jarðsettur þar eftir að hann framdi sjálfsmorð 17. ágúst árið 1987. Hann hafði þá setið í stríðsglæpafangelsi bandamanna í Spandau í 46 ár. 3.8.2007 14:52
Bjargað úr bráðri lífshættu í annað sinn á ævinni Marcelo Cruz bjargaðist giftusamlega úr bráðri lífshættu í annað sinn á ævi sinni þegar Minneapolis brúin hrundi í vikunni. Fyrir sjö árum taldi lögreglan í Norður-Karolínu Cruz af eftir að hann hafði orðið fyrir skoti í vopnuðu ráni. Hann hélt lífi en lamaðist frá mitti. 3.8.2007 14:01
Ein af ráðgátum Titanic slyssins leyst Ein af stærstu ráðgátum Titanic slyssins er nú loksins leyst. Búið er að bera kennsl á eins árs dreng sem fannst látinn á reki í sjónum sex dögum eftir að skipið sökk árið 1912. Hann var breskur, og hét Sidney Leslie Goodwin. Talið er að 1512 manns hafi farist með Titanic, en aldrei hefur tekist að negla niður ákveðna tölu. 3.8.2007 13:15
Ítölsk mamma kvartar yfir „litla" stráknum sínum Sikileysk móðir tók húslykilinn af syni sínum, skrúfaði fyrir vasapeningana hans og keyrði hann á lögreglustöð bæjarins þegar hann kom of seint heim eitt kvöldið. Þetta væri ekki frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að „litli strákurinn" er á sjötugsaldri. 3.8.2007 12:20
Skyggni í Mississippi á aðeins 30 sentímetrar Leit kafara að fórnarlömbum í rústum brúarinnar yfir Mississippi ána var í nótt frestað, vegna hættulegra aðstæðna. Skyggni í ánni nemur aðeins um þrjátíu sentímetrum. Samkvæmt gögnum bandaríska samgönguráðuneytisins er um fjórðungur bandarískra brúa talin úreltur. 3.8.2007 12:19
Rússar vilja auka viðbúnað sinn á Miðjarðarhafinu Yfirmaður rússneska flotans segir að Rússar eigi að láta meira til sín taka á Miðjarðarhafinu. Ummælin hafa vakið nokkra athygli í ljósi þess að Rússland liggur hvergi að hafinu og því ekki ljóst hvar rússneskur Miðjarðarhafsfloti ætti að hafa bækistöð. 3.8.2007 09:57
Frakkar selja Líbýu eldflaugar Líbýumenn og Frakkar hafa gert með sér vopnasölusamning sem gerir ráð fyrir því að Líbýa kaupi franskar eldflaugar sem ætlað er að granda skriðdrekum. Þetta mun vera fyrsti vopnasamningurinn sem vestrænt ríki gerir við Líbýu eftir að viðskiptabanni á landið var aflétt árið 2004. 3.8.2007 08:47
Líkamsleifar seldar til galdraiðkunar Yfirvöld í Mósambík hafa handtekið þrjá aðila vegna meintrar aðildar þeirra að viðskiptum með líkamshluta. Málið tengist morðum og limlestingum á sjö konum og einu barni í Cabo Delgado héraðinu sem framin voru í vikunni. 2.8.2007 23:26
Tilræðismaður lést af völdum brunasára Kafeel Ahmed, annar mannanna tveggja sem keyrði bíl á flugstöðvarbygginguna í Glasgow þann 30. júní síðastliðinn, lést í kvöld af völdum sára sinna. Að sögn talsmanna lögreglunnar í Starthclyde brenndist maðurinn mjög illa þegar kviknaði í bílnum og var hann með brunasár á yfir 90% af líkamanum þegar hann var handtekinn. 2.8.2007 22:43
Talibanar samþykkja að ræða örlög suður-kóresku gíslanna Talibanarnir sem hafa 21 suður-kóreskan gísl í haldi hafa samþykkt að hitta suður-kóreska embættismenn augliti til auglitis til að ræða örlög gíslanna sem þeir haf haft í haldi í tvær vikur. Staðsetning fundarins hefur ekki verið ákveðin en talibanarnir neituðu að hitta embættismennina þar sem Nato hersveitir væru staðsettar. 2.8.2007 20:26
Bandaríska þingið samþykkir hertar siðareglur Bandaríska þingið samþykkti í dag að herða siðareglur þingmanna með það að markmiði að minnka áhrif þrýstihópa á þingið. Frumvarpið var samþykkt níu mánuðum eftir að Demókratar náðu völdum í bandaríska þinginu í kjölfar hneykslismála sem mörg snertu Repúblikana. 2.8.2007 19:51
Krónprinsinn í Lególandi Friðrik krónprins Danmerkur heimsótti í vikunni Lególand ásamt konu sinni Mary og börnum. 2.8.2007 19:44
Rússar reyna að eigna sér svæði undir norðurpólnum Rússar urðu í dag fyrstir til að komast á kafbáti á hafsbotninn undir norðurpólnum. Tilgangur ferðarinnar var að eigna sér svæðið, en þar er möguleiki á að finna bæði olíu og gas. Utanríkisráðherra Kanada finnst lítið til ferðarinnar koma. 2.8.2007 19:35
Bjargaði lífi mæðgna Íslenskur karlmaður bjargaði lífi mæðgna þegar brú yfir Mississippifljót í Minneapolis í Bandaríkjunum gaf sig á háannatíma í gærkvöldi. Tugir bíla voru á brúnni þegar hún brast og myndaðist skelfingarástand þegar fólkið reyndi að koma sér úr bílum sínum og synda í land. 2.8.2007 19:25
Skipt um óþéttan loka í Endeavour Bandaríska geimferðastofnunin NASA tilkynnti á miðvikudaginn að skipta ætti um óþéttan loka í geimferjunni Endeavour. Áætlað er að skjóta ferjunni á loft næsta þriðjudag. 2.8.2007 15:31
Dánartalan hækkar Fleiri lík hafa fundist í kjölfar þess að brú hrundi í Minneapolis í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Staðfest hefur verið að fjóri séu látnir en Reuters fréttastofan hefur eftir lögreglustjóranum í borginni að fleiri hafi fundist látnir á slysstaðnum. Hann vildi þó ekki segja hve mörg lík hefðu fundist til viðbótar. 2.8.2007 13:22
Lögreglustjóri Lundúna hreinsaður af ásökunum Lögreglustjóri Lundúna hefur verið hreinsaður af ásökunum um að hafa logið að almenningi í tengslum við dauða Jean Charles de Menezes. De Menezes var skotinn til bana af lögreglumönnum. Skýrslan kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að aðstoðarlögreglustjórinn Andy Hayman hafi villt um fyrir almenningi. 2.8.2007 11:49
Gen örvhentra líklega fundið Vísindamenn hafa í fyrsta skipti uppgötvað gen sem virðist auka líkur á að fólk verði örvhent. Genið LRRTM1 virðist gegna lykilhlutverki í að stjórna því hvaða hluti heilans stýrir starfsemi á borð við mál og tilfinningar samkvæmt rannsókninni. 2.8.2007 09:00
Varað við flóðbylgju í Japan Einn lést þegar jarðskjálfti sem var 6,4 á Richter skók kyrrahafseyjuna Sakhalin í Rússlandi, norður af Japan. Engar meiriháttar skemmdur urðu á mannvirkjum. Flóðbylgjuviðvörun var í kjölfarið gefin út fyrir Hokkaídoeyju við Vesturströnd Japans. 20 centimetra bylgja hefur komið á land nú þegar, og er búist við stærri bylgjum. 2.8.2007 08:32
Mannræningjarnir höfðu leitað að fórnarlömbum um nokkurt skeið Talibanahópurinn, sem hefur tuttugu og einn suður-kóreskan gísl á valdi sínu, hafði verið að leita að fórnarlömbum um nokkurt skeið, eða frá því að æðsti maður hópsins, Daro Kahn, var handtekinn af bandarískum hermönnum í Qarabagh-héraðinu í júní. Þetta kemur fram í viðtali við einn af æðstu mönnum hópsins sem tímaritið Newsweek birtir í dag. 1.8.2007 23:23
Afrit af samskiptum brasilísku flugmannanna birt Afrit af síðustu sekúndum samskipta flugmannanna tveggja sem voru við stjórnvölinn þegar versta flugslys í brasilískri sögu átti sér stað var í dag lesið upp fyrir rannsóknarnefnd brasilíska þingsins. Samkvæmt upptökum úr flugvélinni kallaði annar flugmanna að hægja þyrfti ferðina en hinn svaraði því til að hann gæti það ekki. 1.8.2007 21:59
Obama segist reiðubúinn að fyrirskipa árás á al-Kaída í Pakistan Barack Obama, frambjóðandi í forvali Demókrata til bandarísku forsetakosninganna, sagði í dag að hann væri reiðubúinn til að fyrirskipa hernaðaraðgerðir gegn al-Kaída í Pakistan án samráðs við stjórnvöld þar í landi ef hann kæmist til valda. 1.8.2007 20:03
Skátar fagna afmæli hreyfingarinnar Skátahreyfingin fagnar í dag eitt hundrað ára afmæli. Íslenskir skátar sem staddir eru á alheimsmóti skáta í Englandi buðu upp á kjötsúpu í tilefni dagsins. 1.8.2007 19:19
Olíuverð náði sögulegu hámarki Verð á olíu náði sögulegu hámarki í dag þegar verð á olíutunnunni komst í tæpa sjötíu og níu bandaríkjadali. Talið er að hækkunina megi rekja til áhyggna af því hvort olíuframboð geti mætt eftirspurn eftir olíu á heimsvísu. 1.8.2007 19:17
Öflugur jarðskjálfti í Vanuatu Jarðskjálfti sem mældist 7.2 á richter varð í dag 45 kílómetra suðaustur af eyjunni Santo sem tilheyrir Vanuatu eyjaklasanum. Upptök skjálftans voru á 172 kílómetra dýpi í Kyrrahafinu um 1.996 kílómetra norðaustur af Brisbane í Ástralíu. 1.8.2007 17:47
Hillary eykur forskot sitt Hillary Clinton, forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum og fyrrum forsetafrú, hefur aukið forskotið á helsta keppinaut sinn í forkosningum Demókrata ef marka má nýja skoðannakönnun sem birt var í dag. Könnunin var unnin af bandaríska dagblaðinu Wall Street Journal í samvinnu við NBC sjónvarpsstöðina. 1.8.2007 16:54
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Innlent