Fleiri fréttir

Sögulegar viðræður um framtíð Kosovo-héraðs

Samninganefndir Serba og Kosovo-Albana koma saman til sögulegs fundar í Vín í Austurríki í dag til að ræða framtíð Kosovo-héraðs. Kosovo-Albanir krefjast þess að héraðið fái sjálfstæði frá Serbíu en Serbar segja Kosovo mikilvægan hluta af ríki sínu og vilja halda einhverri stjórn þar.

Óttast um líf 65 námuverkamanna

Óttast er að enginn hafi komist lífs af eftir að gassprenging varð í kolanámu í bænum San Juan de Sabinas, um 135 kílómetra suðvestur af Texas í Bandaríkjunum í gær. Alls eru sextíu og fimm námuverkamenn fastir inni í námunni og hefur ekkert samband náðst við þá þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Mesta mannfall vegna skopteikninganna hingað til

Sextán manns létust í hörðum átökum sem brutust út í Nígeríu í gær vegna skopteikninganna af Múhammeð spámanni. Ekki sér enn fyrir endann á afleiðingunum af myndbirtingum Jótlandspóstsins og átökin í Nígeríu í gær eru þau mannskæðustu hingað til.

6 létust í flugslysi í Írak á fimmtudaginn

Sex lík fundust í morgun í braki lítillar flugvélar sem hrapaði í norðurhluta Íraks á fimtudaginn. Um borð í vélinni voru þrír Þjóðverjar og einn Íraki, en þjóðerni hinna tveggja sem létust er ekki þekkt.

Tveir fundust á lífi

Tveir fundust á lífi í morgun í rústum þorpsins Guinsaugon á Filippseyjum, eftir aurskriðurnar á föstudag. Vinna er hafin við að grafa upp barnaskóla þorpsins, þar sem 250 börn urðu undir tíu metra þykkri eðjunni. Útilokað þykir að nokkurt þeirra sé á lífi.

Þúsundir kjúklinga aflífaðir

Heilbrigðisstarfsmenn aflífuðu þúsundir kjúklinga í vesturhluta Indlands í gærkvöldi, eftir að fyrsta tilfelli fuglaflensu var greint þar í landi.

Gekk í bol með skopteikningu úr Jótlandspóstinum

Ítalskir ráðamenn reyna nú hvað þeir geta að lægja öldurnar meðal múslima, eftir að einn ráðherra ríkisstjórnarinnar móðgaði múslima með því að ganga í bol með einni af skopteikningu Jótlandspóstsins framan á.

Lítil von með að finna fólk á lífi

Björgunarsveitir eygja litla von til að finna fleiri á lífi eftir aurskriðurnar í Guinsaugon á Filippseyjum. Aðstæður til leitar eru afar erfiðar og enn er hætta á fleiri aurskriðum.

Mannfall í mótmælum í Líbíu

Ekki er vitað hve margir létu lífið í átökum mótmælenda og lögreglu fyrir utan ræðismannsskrifstofu Ítala í borginni Benghazi í Líbíu í kvöld. Fyrstu fregnir hermdu að níu hefðu látið lífið og hátt í 60 særst en það hefur ekki fengist staðfest.

Rúmlega 8 tonn af kókaíni haldlögð

Portúgalska lögreglan lagði í dag hald á meira en átta tonn af kókaíni sem er það mesta sem hefur verið haldlagt þar í landi í einu. Lögreglan lagði til atlögu gegn glæpagengi á Algarve í suður hluta landsins.

Olíuleiðsla í Írak sprengd

Sprenging varð í dag í olíuleiðslu sem flytur hráolíu frá olíusvæðum í Kirkuk í Írak til olíuhreinsunarstöðvar í höfuðborginni Bagdad. Þetta er aðal olíuleiðslan á þessu svæði og segir íraska lögreglan að uppreisnarmenn beri ábyrgð á sprengingunni.

Leikskóli fyrir pandabirni

Leikskóli fyrir pandabirni var opnaður í Suður-Kína í gær. Það eru aðstandendur stærstu uppeldisstöðvar pandabjarna þar í landi sem reka skólann og segja hann þann fyrsta sinnar tegundar í heimi.

Vilja vinna hjá Ryanair

Á þriðja hundrað flugmenn skandinavíska flugfélagsins SAS hafa leitað eftir vinnu hjá Ryanair að undanförnu. Ryanair hyggst ráða eitt þúsund flugmenn vegna fjölda flugvélakaupa að undanförnu.

Fuglaflensan komin til Frakklands

Fuglaflensa hefur greinst í andarhræi í Austur-Frakklandi. Talið er líklegt að flesan sé af hinum hættulega H5N1 stofni en það hefur ekki fengist staðfest.

Orkla til sölu

Norska, fjölmiðlafyrirtækið Orkla Media, sem rekur meðal annars dönsku blöðin Berlingske Tidene, BT og Weekendavisen, er til sölu. Að því er fram kemur á norska fréttavefnum NTB hefur stjórn félagsins ákveðið að hlusta á tilboð í samsteypuna í heild sinni eða að hluta. Dagsbrún, móðurfélag 365 miðla, og norska blaðið Dagbladet hafa sýnt fyrirtækinu áhuga.

Leigja út Dick Cheney veiðigalla

Búningaleiga í Bandaríkjunum hefur hafið leigu á Dick Cheney veiðigöllum. Gallinn er leigður undir þeim formerkjum að vera hin fullkomna leið til að hræða veiðifélagana.

Frjálst flæði vinnuafls dregur úr atvinnuleysi

Frjálst flæði vinnuafls úr tíu nýju löndum Evrópusambandsins virðist draga úr atvinnuleysi, þvert á það sem flestir bjuggust við. Eldri löndum sambandsins sem ekki hafa sett takmarkanir á flæði vinnuafls, farnast betur en öðrum.

Sendiráði Dana lokað í Islamabad af öryggisástæðum

Danska sendiráðinu í Islamabad í Pakistan var í dag lokað af öryggisástæðum en mikil mótmæli hafa verið í landinu í vikunni vegna skopmyndanna af Múhameð spámanni. Jótlandspósturinn hefur eftir sendiherra Danmerkur í Pakistan að hann sé enn í landinu en hann vill ekki gefa upp hvar hann er.

Engin fuglaflensa enn fundin í Danmörku

Engin fuglaflensa hefur verið greind í dauðum fuglum sem fundist hafa í Danmörku síðustu daga. Frá þessu greindu yfirvöld í dag. Búið er að rannsaka 30 svani ásamt mávi og önd sem fundust á Sjálandi, Lálandi og Falstri og engin flensa fannst í fuglunum.

Tvö þorp á kafi í leðju eftir aurskriður

Tvö þúsund manns kunna að hafa farist í einhverjum mestu aurskriðum í sögu Filippseyja í nótt. Tvö þorp hafa nánast alveg grafist í kaf í leðju eftir ofsaveður undanfarna daga.

Jöklar Grænlands bráðna hraðar en talið var

Jöklar Grænlands bráðna mun hraðar en vísindamenn bjuggust við. Tveir stærstu skriðjöklar á Austur-Grænlandi hafa tvöfaldað skriðhraða sinn á síðustu tveimur árum og skríða nú fram um fjórtán kílómetra á ári, samkvæmt nýlegri enskri rannsókn.

Ismail Haniyeh forsætisráðherraefni Hamas

Ismail Haniyeh hefur verið útnefndur sem forsætisráðherraefni Hamas-samtakanna í Palestínu. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir háttsettum embættismanni innan samtakanna, sem segir jafnframt að þetta verði ekki tilkynnt formlega fyrr en um helgina.

Vínarbrauðið breytir um nafn

Bakarar í Íran ætla nú að umnefna bakkelsið sem við köllum vínarbrauð, en á mörgum erlendum tungumálum er það kallað danskt brauð. Þetta gera þeir í mótmælaskyni við dönsku myndbirtingarnar alræmdu. Héðan í frá skulu bakarísgestir biðja um "rósir Múhameðs spámanns".

Bandaríkjamenn ættu að loka Guantanamo-búðunum

Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, segir að Bandaríkjamenn ættu að loka fangabúðunum við Guantanamo-flóa á Kúbu eins fljótt og auðið er. Þó að hann segist ekki sammála öllu sem fram hafi komið í nýrri skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum styðji hann þá niðurstöðu að ekki sé verjandi að halda föngum án ákæru eins og gert sé í Guantanamo.

Segist hafa fundið bóluefni gegn fuglaflensu

Stórt lyfjafyrirtæki í Ástralíu segist hafa fundið bóluefni gegn fuglaflensu. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum úr rannsókn á virkni hins nýja bóluefnis, ættu fimmtán míkrógrömm af efninu að duga til að koma í veg fyrir fuglaflensu hjá fullorðnu fólki.

Óttast að 2000 manns hafi látist í aurskriðum á Filippseyjum

Tvö þúsund manns kunna að hafa farist í einhverjum mestu aurskriðum í sögu Fiippseyja í nótt. Tvö þorp hafa nánast alveg grafist á kaf í leðju eftir miklar rigningar og hávaðarok. Fréttir af svæðinu eru enn óljósar, en embættismenn telja víst að tala látinna skipti hundruðum og jafnvel þúsundum.

200 Kúrdar handteknir í mótmælaaðgerðum í Tyrklandi

Um tvö hundruð Kúrdar voru handteknir í mótmælaaðgerðum í borgunum Adana og Batman í Tyrklandi í dag. Mótmælin upphófust í gær þegar sjö ár voru liðin frá handtöku kúrdíska andspyrnuleiðtogans Abdullah Ocalan. Mótmælendur hentu grjóti og múrsteinum að lögreglumönnum sem vörðust með kylfum og skjöldum.

Preval forseti

Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur lýst René Preval sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku.

Mun skaða Bandaríkin meira

Það mun skaða Bandaríkjamenn mun meira en Íran, ráðist þeir á landið. Þetta segir varnarmálaráðherra Írans og lofar auknu hatri í garð Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra láti þeir verða af árásum.

Allt að 140 milljónir gætu dáið

Um eitt hundrað og fjörutíu milljónir manna gætu dáið úr fuglaflensu í heiminum ef hún breytist í alvarlegan inflúensufaraldur. Þá er talið að efnahagslegt tap í heiminum gæti numið um 4,4 billjónum dala sem jafngildir ársframleiðslu í Japan.

Cheney segist bera fulla ábyrgð á slysaskoti

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, hefur viðurkennt að hann beri fulla ábyrgð á óhappinu sem varð í veiðiferð hans og félaga hans, milljarðamæringsins Harrys Whittingtons, um síðustu helgi. Cheney særði þá Whittington í andliti og á bringu.

René Preval lýstur sigurvegari

Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur lýst René Preval sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. Áður hafði hún fyrirskipað endurskoðun á úrslitum talningar atkvæða eftir að Préval hélt því fram að umfangsmikil kosningsvik hefðu átt sér stað og útfylltir kjörseðlar fundist í sekkjavís á sorphaugum.

Ætla að brenna danska fánann fyrir knattspyrnuleik

Arabískir knattspyrnuáhangendur í Ísrael ætla að brenna danska fánann fyrir vináttuleik Dana og Ísraela sem fram fer í Ísrael eftir um tvær vikur. Er þetta gert til þess að mótmæla skopteikningunum af Múhameð spámanni sem birtust fyrst í Jótlandspóstinum.

Kínverjar drepnir í Pakistan

Þrír kínverskir verkfræðingar og bílstjóri þeirra voru skotnir til bana af manni á mótorhjóli í suðvestur Pakistan í gær. Aðeins þrír dagar eru þar til forseti Pakistan fer í opinbera heimsókn til Kína. Mikill fjöldi Kínverja vinnur í Pakistan en Kína er einn helsti bandamaður landsins og hefur skaffað þeim vopn og peninga í mörg ár.

Harma myndbirtingu ástralskrar sjónvarpsstöðvar

Bandarísk yfirvöld harma að ástralska sjónvarpsstöðin SBS hafi sýnt nýjar myndir af misþyrmingum á íröskum föngum sem áttu sér stað í Abu Graib fangelsinu árið 2003. Myndirnar væru olía eld núverandi ástands og gætu leitt til ofbeldis.

Úrslit í forsetakosningum á Haítí endurskoðuð

Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur fyrirskipað endurskoðun á úrslitum talningar í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. Stjórnin ákvað þetta eftir að René Préval, sá frambjóðandi sem flest atkvæði hlaut, hélt því fram að umfangsmikil kosningsvik hefðu átt sér stað og útfylltir kjörseðlar fundist í sekkjavís á sorphaugum.

Árás skaði Bandaríkjamenn meira en Írana

Ef Bandaríkjamenn ráðast á Íran, mun það skaða þá meira en okkur. Þetta sagði varnarmálaráðherra Írana á blaðamannafundi í Teheran, höfuðborg Írans, í gær. Hann sagði Bandaríkjamenn aðeins vera að reyna að hræða íranskan almenning með yfirlýsingum sínum um árásir á landið.

Grunaður morðingi framseldur til Bandaríkjanna

Breti sem grunaður er um að hafa myrt bandaríska eiginkonu sína og níu mánaða barn þeirra í úthverfi Boston í Bandaríkjunum og síðan flúið til Bretlands, var í gær framseldur til Boston þar sem hann sætir morðákæru. Neil Entwistle, sem er 27 ára að aldri, neitar allri sök en kona hans og barn fundust látin eftir að hafa verið skotin á heimili þeirra þann 20. janúar síðastliðinn.

Fuglaflensa í ellefu Evrópuríkjum

Fuglaflensan er komin til Ungverjalands. Þrír svanir þar í landi hafa drepist úr fuglaflensu. Verið er að greina hvort veiran sé af gerðinni H5N1. Þar með hefur veiran greinst í ellefu Evrópuríkjum. Þá hafa yfir 200 dauðir fuglar sem fundist hafa víða um Danmörku verið sendir til rannsóknar í Árósum en það kemur líklega ekki í ljós fyrr en á morgun hvort þeir hafi drepist úr fuglaflensu.

Cheney segist bera fulla ábyrgð á slysaskotinu

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann bæri fulla ábyrgð slysaskotinu sem særði Harry Whittington. Cheney tjáði sig í fyrsta sinn í dag opinberlega um slysaskotið. Cheney vildi ekki ræða um hvað hefði orðið til þess að hann skaut Whittington en sagði þó við engan að sakast nema hann sjálfan.

Fangar enn beittir ofbeldi í Abu Ghraib fangelsinu

Enn einu sinni hafa myndir af hrottafengnum misþyrmingum fanga Bandaríkjamanna í Abu Ghraib fangelsinu í Írak komið fyrir augu almennings. Þær eru frá því um líkt leyti og myndirnar sem ollu hneysklun og viðbjóði um allan heim vorið 2004.

Sjá næstu 50 fréttir