Erlent

Cheney segist bera fulla ábyrgð á slysaskotinu

MYND/AP

Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann bæri fulla ábyrgð slysaskotinu sem særði Harry Whittington. Cheney tjáði sig í fyrsta sinn í dag opinberlega um slysaskotið. Cheney vildi ekki ræða um hvað hefði orðið til þess að hann skaut Whittington en sagði þó við engan að sakast nema hann sjálfan.

Witthington fékk vægt hjartaáfall í gær en í ljós kom að hagl hafði farið í hjarta hans. Læknar hafa þó sagt að Whittington sé ekki í lífshættu en verði að minnsta kosti viku til viðbótar á sjúkrahúsi undir eftirliti lækna. Cheney hæfði Whittington í andlitið, hálsinn og bringuna þegar þeir voru á kornhænuveiðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×