Erlent

Rúmlega 8 tonn af kókaíni haldlögð

Portúgalska lögreglan lagði í dag hald á meira en átta tonn af kókaíni sem er það mesta sem hefur verið haldlagt þar í landi í einu. Lögreglan lagði til atlögu gegn glæpagengi á Algarve í suður hluta landsins.

Sjö menn voru handteknir í aðgerðum lögreglu en þeir eru allir af erlendu bergi brotnir. Talsmaður lögreglu segir götuvirði efnisins talið jafnvirði rúmlega tuttugu milljarða íslenskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×