Erlent

René Preval lýstur sigurvegari

Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur lýst René Preval sigurvegara í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. Áður hafði hún fyrirskipað endurskoðun á úrslitum talningar atkvæða eftir að Préval hélt því fram að umfangsmikil kosningsvik hefðu átt sér stað og útfylltir kjörseðlar fundist í sekkjavís á sorphaugum. Um níu þúsund friðargæsluliðar eru nú á Haiti til að tryggja stöðugleika í landinu. Formaður kjörstjórnarinnar á Haítí útilokar þó ekki að atkvæðaseðlunum kunni að hafa verið hent á haugana í því skyni að láta líta út fyrir að kosningasvik hefðu verið framin. Málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×