Erlent

Þúsundir kjúklinga aflífaðir

MYND/AP
Heilbrigðisstarfsmenn aflífuðu þúsundir kjúklinga í vesturhluta Indlands í gærkvöldi, eftir að fyrsta tilfelli fuglaflensu var greint þar í landi.

Í dag hófust svo prófanir og greiningar á fólki í héraðinu, en einn eigandi kjúklingabús lést eftir að hafa fengið einkenni flensu. Hálf milljón fugla verður aflífuð á svæðinu sem hefur verið einangrað. Ráðamenn leggja þó áherslu á að engin ástæða sé til að ofsafenginna viðbragða, en alifuglabændur óttast mjög að sala á alifuglakjöti muni hrapa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×