Erlent

Tíu manns fórust í mótmælum í Líbýu

Að minnsta kosti tíu manns létust í mótmælum múslima við ítalska sendiráðið í Líbýu í gærkvöldi.

Rúmlega eitt þúsund múslimar söfnuðust saman við sendiráðið og kom til átaka milli hópsins og lögreglu. Hópurinn mótmælti teikningunum af Múhameð spámanni, en ítalskur ráðherra klæddist nýlega bol með einni slíkri á. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur krafist afsagnar ráðherrans.

Þúsundir múslima söfnuðust saman í Los Angeles og New York í gær í mótmælum vegna teikninganna.Mótmælin fóru friðsamlega fram. Þá fordæmdu í gær ríkisstjórnir Pakistans og Afhanistan birtingu teikninganna, ásamt forseta Íranska þingsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×