Erlent

Fylgi við ríkisstjórnarflokka í Danmörk eykst enn

Fylgi við ríkisstjórnarflokkanna í Danmörku virðist enn aukast vegna Múhameðsmyndanna ef marka má nýja skoðanakönnun danska viðskiptablaðsins Börsen.

Danski þjóðarflokkurinn, sem hefur hörðustu stefnuna í innflytjendamálum og styður ríkisstjórnina, myndi bæta við sig átta kjörnum fulltrúum frá síðustu kosningum ef kosið yrði nú. Þá vantar Venstre og Danska þjóðarflokkinn aðeins tvo menn til þess að ná hreinum meirihluta í þinginu samkvæmt könnuninni. Fylgisaukingin virðist á kostnað jafnaðarmanna sem myndu tapa níu mönnum frá síðustu kosningum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×