Erlent

Mannfall í mótmælum í Líbíu

Danski fáninn var brenndur fyrir utan ræðismannsskrifstofu Ítala í Benghazi í Líbíu í kvöld.
Danski fáninn var brenndur fyrir utan ræðismannsskrifstofu Ítala í Benghazi í Líbíu í kvöld. MYND/AP

Ekki er vitað hve margir létu lífið í átökum mótmælenda og lögreglu fyrir utan ræðismannsskrifstofu Ítala í borginni Benghazi í Líbíu í kvöld. Fyrstu fregnir hermdu að níu hefðu látið lífið og hátt í 60 særst en það hefur ekki fengist staðfest.

Fjölmargir líbíumenn komu saman fyrir utan bygginguna til að mótmæla skopmyndum af Múhameð spámanni sem evrópsk daglböð hafa birt síðustu vikur.

Kveikt var í danska fánanum og bílum fyrir utan ræðismannsskrifstofuna um leið og mótmælendur reyndu að brjóta sér leið inn í skrifstofuna en hún er eina skrifstofa vestræns ríkis þar í borg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×