Erlent

Árás skaði Bandaríkjamenn meira en Írana

Isfahan-kjarnorkuverið í Íran
Isfahan-kjarnorkuverið í Íran MYND/AP

Ef Bandaríkjamenn ráðast á Íran, mun það skaða þá meira en okkur. Þetta sagði varnarmálaráðherra Írana á blaðamannafundi í Teheran, höfuðborg Írans, í gær. Hann sagði Bandaríkjamenn aðeins vera að reyna að hræða íranskan almenning með yfirlýsingum sínum um árásir á landið. Hann ítrekaði þó að Íranar vildu ekki eignast kjarnavopn, eini tilgangurinn með kjarnorkuframleiðslu landsins, væri að framleiða rafmagn, það væri þeirra réttur og vilji. Því eiga leiðtogar vesturlanda þó erfitt með að trúa og krefjast refsiaðgerða gegn Íran.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×