Erlent

Úrslit í forsetakosningum á Haítí endurskoðuð

Stuðningsmenn Renés Prévals söfnuðust saman við Þjóðarhöllina í höfuðborginni Port-au-Prince og mótmæltu úrslitum kosninganna á Haítí.
Stuðningsmenn Renés Prévals söfnuðust saman við Þjóðarhöllina í höfuðborginni Port-au-Prince og mótmæltu úrslitum kosninganna á Haítí.

Bráðabirgðaríkisstjórn Haítí hefur fyrirskipað endurskoðun á úrslitum talningar í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í síðustu viku. Stjórnin ákvað þetta eftir að René Préval, sá frambjóðandi sem flest atkvæði hlaut, hélt því fram að umfangsmikil kosningsvik hefðu átt sér stað og útfylltir kjörseðlar fundist í sekkjavís á sorphaugum. Um níu þúsund friðargæsluliðar eru nú á Haiti til að tryggja stöðugleika í landinu. Formaður kjörstjórnarinnar á Haítí útilokar þó ekki að atkvæðaseðlunum kunni að hafa verið hent á haugana í því skyni að útlit væri fyrir að kosningasvik hefðu verið framin. Málið er í rannsókn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×