Erlent

Leikskóli fyrir pandabirni

Tveir hamingjusamir pandabirnir.
Tveir hamingjusamir pandabirnir. MYND/AP

Leikskóli fyrir pandabirni var opnaður í Suður-Kína í gær. Það eru aðstandendur stærstu uppeldisstöðvar pandabjarna þar í landi sem reka skólann og segja hann þann fyrsta sinnar tegundar í heimi.

Það eru sextán nýfæddir pandahúnar sem verða í leikskólanum ásamt eldri húnum í eitt ár. Aðstandendur uppeldisstöðvarinnar vonast til þess að þetta auðveldi þeim að finna sér maka í framtíðinni.

Það er ýmislegt sem ógnar tilvist pandabjarna í Kína, kjörlendi þeirra eru sífellt að minnka og veiðiþjófar sækja að þeim auk þess sem pandabjörnum gengur illa að fjölga sér svo vel sé. Villtar pandabirnur eiga að meðaltali einn hún á tveggja til þriggja ára fresti.

Sextán hundruð pandabirnir hafast nú við í skóglendi Mið-Kína en hundrað þrjátíu og átta birni er að finna á uppeldisstöðvum og í dýragörðum í Kína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×