Erlent

Ismail Haniyeh forsætisráðherraefni Hamas

Ismail Haniyeh hefur verið útnefndur sem forsætisráðherraefni Hamas-samtakanna í Palestínu. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir háttsettum embættismanni innan samtakanna, sem segir jafnframt að þetta verði ekki tilkynnt formlega fyrr en um helgina.

Haniyeh, sem hefur verið einn af leiðtogum Hamas undanfarin fimmtán ár, var um skeið samningamaður samtakanna við stjórnvöld í Palestínu. Hann er leiðtogi hófsamari arms Hamas og valið á honum þykir benda til þess að stefnubreyting kunni að vera í vændum af hálfu samtakanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×