Fleiri fréttir

Þúsundum fanga sleppt

Þúsundir fanga byrjuðu í dag að streyma út úr fangelsum í Afríkuríkinu Rúanda eftir að yfirvöld ákváðu að sleppa þrjátíu og sex þúsund föngum. Níu af hverjum tíu þessara fanga hafa viðurkennt að hafa tekið þátt í morðunum á 800 þúsund mönnum af ættbálki Tútsa árið 1994.

Fuglaflensa greind í Rússlandi

Rússnesk yfirvöld greindu frá því í gær að fuglaflensuveira, sem fannst nýlega í fuglum í Síberíu, væri af þeirri skæðu gerð sem getur borist í menn. Veirusýkingin drap hundruð far- og alifugla í Síberíu fyrr í þessum mánuði, en engar fréttir hafa borist af því að hún hafi borist í menn.

Lundúnasprengjumenn handteknir

Allir mennirnir fjórir, sem voru eftirlýstir fyrir að hafa reynt að sprengja sprengjur í jarðlestum og strætisvagni í Lundúnum þann 21. júlí, eru nú í haldi lögreglu, að því er breskir fjölmiðlar fullyrtu í gær.

ESB og Marokkó semja um fiskveiðar

Fulltrúar Evrópusambandsins og Marokkó undirrituðu á fimmtudag samning um aðgang fiskiskipa ESB-landa að fiskveiðilögsögu Marokkó í Atlantshafi. Samkomulagið, sem gildir til næstu fjögurra ára, er einkar mikilvægt fyrir sjávarútveg á Spáni og í Portúgal.

Biður Karadzic að gefa sig fram

Yfirmaður friðargæsluliðs Atlantshafsbandalagsins í Bosníu fagnaði því í gær að eiginkona Radovans Karadzic, fyrrverandi leiðtoga Bosníu-Serba sem eftirlýstur er fyrir stríðsglæpi, hefði opinberlega skorað á mann sinn að gefa sig fram.

9 milljarðar í lottópottinum

Margur verður af aurum api segir málshátturinn. Sá sem vinnur stóra vinninginn í Evrópulottóinu í kvöld verður þá væntanlega górilla því að nærri níu milljarðar eru í pottinum.

Víðtækustu aðgerðir í sögu London

Alls hafa nærri þrjátíu manns verið handteknir einungis vegna árásanna misheppnuðu í London í síðustu viku í víðtækustu aðgerðum í sögu lögreglunnar í borginni. Fjórmenningarnir sem gerðu árásirnar hafa allir verið handteknir.

Þrjár konur handteknar í London

Breska lögreglan handtók þrjár konur í suðuhluta London í gær en þær eru grunaðar um að tengjast mönnunum sem gerðu misheppnaða tilraun til að sprengja lestar og strætisvagn í borginni þann 21. júlí síðastliðinn. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um málið en konurnar voru handteknar í íbúð nálægt Stockwell lestarstöðinni.

Franskir barnaníðingar fá dóm

Dómstóll í Frakklandi dæmdi hóp fólks í 28 ára fangelsi í gær fyrir að misnota og selja börn, aðallega þeirra eigin. Alls voru börnin sem um ræðir 45 talsins en þau voru seld af foreldrum fyrir sígarettur og áfengi á árunum 1999 til 2002.

Lík Menezes flutt til Brasilíu

Flogið var með lík mannsins sem lögreglan í London skaut á Stockwell lestarstöðinni í vikunni, til Brasilíu í gær. Hinn 27 ára Jean Charles de Menezes var skotinn í höfuðið, alls átta sinnum, eftir að hafa hunsað fyrirmæli lögreglunnar um að stoppa.

Dómur fyrir að skipuleggja árás

Maðurinn sem skipulagði sprengjuárás á flugvöll í Los Angeles á gamlárskvöld árið 1999  hefur verið dæmdur í tuttugu og tveggja ára fangelsi. Hinn 38 ára gamli Ahmed Ressam sýndi lítil viðbrögð þegar dómurinn var kveðinn upp í Seattle í gær.

Eldgos í Mexíkó

Eitt virkasta eldfjall Mexíkó, Colima, gaus í gær með þeim afleiðingum að grjót og aska þeyttust allt að 2700 metra upp í loftið. Engar fréttir hafa borist af mannfalli eða skemmdum en fjallið er staðsett í um 700 kílómetra fjarlægð frá Mexíkó borg.

Enn fleiri handtökur í Bretlandi

Breska lögreglan fann sextán sprengjur í skotti bíls sem einn af mönnunum sem gerðu hryðjuverkaárás á London hafði á leigu. Þykir þetta sýna svo ekki verði um villst að árásirnar á London sjöunda júlí hafi bara átt að vera byrjunin á mun fleiri árásum.

NASA slær geimferðum á frest

Bandaríska geimferðastofnunin NASA ætlar að slá frekari geimferðum á frest á meðan sérfræðingar rannsaka stykki sem duttu af eldsneytistanki geimferjunnar Discovery við flugtak á þriðjudaginn.

Sextíu látnir í hitabylgju

Yfir 60 manns hafa látist af völdum hita og raka í Bandaríkjunum að undanförnu. Hitabylgjan hefur valdið miklum óskunda í níu ríkjum, aðallega á austurströnd landsins en hæst fór hitinn í 38 gráður.

Flóð á Indlandi

Nærri fjögur hundruð og fimmtíu hafa látist af völdum mikilla flóða og aurskriðna í Indlandi undanfarna þrjá daga. Þúsundir manna hafa neyðst til að flýja heimili sín og samgöngur eru lamaðar. Þá hefur skólum verið lokað og mestöll atvinnustarfsemi liggur niðri.

IRA leggur niður vopnin

Írski lýðveldisherinn ÍRA mun frá klukkan þrjú í dag hætta öllum vopnuðum aðgerðum og framvegis beita friðsamlegum aðgerðum til að ná fram markmiðum sínum.

Eldur í olíuborpalli á Indlandi

Tólf manns létust og 367 var bjargað af brennandi olíuborpalli við vesturströnd Indlands í gær og í morgun. Fólk fleygði sér í sjóinn þegar eldar fóru að loga og tekist hefur að bjarga flestum en enn er þó nokkura saknað.

Þekkti ekki skilti frá staur

Færeyskur lögþingsmaður var handtekinn fyrir að aka drukkinn á ljósastaur, um síðustu helgi. Torbjörn Jacobsen, yfirgaf bíl sinn eftir áreksturinn og neitaði í fyrstu að opna fyrir lögreglunni þegar hún kom heim til hans.

Mubarak býður sig enn fram

Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, tilkynnti í dag að hann ætli enn einu sinni að bjóða sig fram til forseta. Mubarak hefur verið forseti Egyptalands í tuttugu og fjögur ár, og vill sitja í sex ár í viðbót. Hann er nú sjötíu og sjö ára gamall.

Vill endurreisa ríkisstjórnina

Gerry Adams, formaður Sinn Fein, hins pólitíska arms Írska lýðveldisherins segir að ríkisstjórnir Bretlands og Írlands verði nú að endurreisa ríkisstjórn Norður-Írlands þar sem kaþólikkar og mótmælendur skipti með sér völdum.

Sýknaðir af nasistahyllingu

Hæstiréttur Þýskalands sneri í dag dómi yfir þrem mönnum sem höfðu verið sakfelldir í undirrétti fyrir að heiðra SS hersveitir Adolfs Hitlers. Mennirnir þrír sem tilheyra hægri öfgasamtökum komu sér upp símsvara þar sem var að finna upplýsingar um hvar og hvenær skrúðgöngur þeirra færu fram.

Fánasaumur á Gaza

Saumastofur á Gaza svæðinu vinna nú nótt sem nýtan dag við að sauma fána sem á að flagga þegar Ísraelar yfirgefa Gaza, um miðjan næsta mánuð. Heimastjórn Palestínu hefur pantað sextíu þúsund palestínska fána.

IRA segist hættur vopnaðri baráttu

Írski lýðveldisherinn, IRA, sem drap og limlesti þúsundir manna í 35 ára vopnaðri baráttu gegn breskum yfirráðum á Norður-Írlandi, lýsti því yfir í gær að hann væri hættur að beita ofbeldi sem pólitísku baráttutæki. Bæði írska og breska stjórnin, sem og ráðamenn víðar um heim, fögnuðu þessu sem mikilvægum áfanga í átt að varanlegum friði á Norður-Írlandi.

Lúkasjenkó tekur Pólverja fyrir

Viðleitni Pólverja til að ýta undir lýðræði í nágrannaríkinu Hvíta-Rússlandi hafa framkallað æ harðari viðbrögð af hálfu stjórnvalda í sovétlýðveldinu fyrrverandi. Þessi núningur náði nýju hámarki í gær er Pólverjar kölluðu sendiherra sinn heim frá hvít-rússnesku höfuðborginni Minsk.

Discovery tengdist geimstöðinni

Geimferjan Discovery tengdist alþjóðlegu geimstöðinni í gær, eftir að hafa tekið snúning alveg upp við hana til þess að unnt væri að taka nærmyndir af neðra byrði ferjunnar úr myndavél í stöðinni. Myndatakan er liður í rannsóknum á hugsanlegum skemmdum á ytra byrði geimferjunnar.

35 ára stríði lokið á Írlandi

Írski lýðveldisherinn, IRA, hefur ákveðið að leggja niður vopn. Þar með lýkur þrjátíu og fimm ára blóðugu tímabili í sögu samtakanna, sem talin eru bera ábyrgð á dauða nærri tvö þúsund manna.

Afsláttarfargjöld á háu verði

Afsláttarfargjöld danska flugfélagsins Sterling, sem nú er í eigu sömu manna og eiga íslanska flugfélagið Iceland Express, eru í sumum tilvikum þrefalt hærri en fargjöld keppinautanna, að því er kemur fram í Jótlandspóstinum í dag.

Undur og stórmerki á Ítalíu

Þúsundir manna komu saman í kirkju heilags Péturs í Acerra í suðurhluta Ítalíu um helgina. Ástæðan er að stytta af Maríu mey er sögð hafa hreyfst frammi fyrir augum kirkjugesta. Fréttin fór sem eldur um sinu um landið og segjast sífellt fleiri hafa séð styttuna hreyfast.

Uppruni Kínaflensu óljós

Alþjóða heilbrigðisstofunin fylgist nú grannt með framvindu mála vegna hins dularfulla sjúkdóms sem herjað hefur á bændur í Kína að undanförnu. Alls hafa 24 manns látist vegna sjúkdómsins og yfir 80 veikst þar af 17 lífshættulega.

Geimskotið ekki áfallalaust

Lítið stykki, um fjórir sentimetrar, brotnaði af geimferjunni Discovery þegar henni var skotið á loft í Flórída í gær. Nasa hefur ekki getað gefið skýringar á málinu eða sagt hvort hætta sé yfirvofandi vegna þess. Nasa hefur þó sagt að hluturinn hafi ekki rekist utan í flaugina eftir að hann brotnaði af og því ekki skemmt hana að öðru leyti.

Brottflutningur æfður

Yfir fimm þúsund liðsmenn öryggissveita frá Ísrael hafa nú hafið æfingar á brottflutningi landtökufólks af Gasasvæðinu og Vesturbakkanum sem hefjast í næstu viku. Búist er við að fimmtíu þúsund hermenn taki þátt í að koma um níu þúsund manns af vettvangi.

Castro orðar óánægju þjóðarinnar

Fidel Castro, forseti Kúbu, ávarpaði þjóð sína í morgun í Karl Marx leikhúsinu í Havana, höfuðborg Kúbu, í tilefni þess að fimmtíu og tvö ár eru liðin frá því hann hóf uppreisn sína í landinu sem endaði með sigri árið 1959.

Bandaríska þjóðin efast

Meirihluti Bandarísku þjóðarinnar efast um að bandamönnum takist að vinna stríðið í Írak, samkvæmt Gallup könnun sem birt var í dag. Þá telur meirihlutinn að ríkisstjórn Georges Bush hafi gefið rangar upplýsingar til þess að afla fylgis við innrás.

Rumsfeld í Írak

Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna kom í óvænta heimsókn til Íraks í dag. Hann hvatti Íraka til þess að ljúka við drög að nýrri stjórnarskrá landsins fyrir fimmtánda næsta mánaðar en það var sá frestur sem bráðabirgðastjórn landsins hafði sett sér.

Handtökur í Birmingham

Maðurinn var handtekinn í Birmingham eldsnemma í morgun. Fréttastofa BBC hefur eftir heimildarmönnum innan Skotland Yard að hann kunni að vera einn fjórmenninganna sem ákaft hefur verið leitað vegna árásarinnar á London í síðustu viku.

Fjórir Svíar reknir út af hóteli

Fjórum sænskum ríkisborgurum var kastað út af hóteli í Árósum í Danmörku vegna gruns um hryðjuverk. Mennirnir segjast hafa komið til borgarinnar til að sjá stjörnurnar í knattspyrnuliðinu Barcelona leika við heimamenn.

Krónprinsessa lögð í einelti

Rúmlega fertugur danskur maður sem hefur lagt Viktoríu krónprinsessu í einelti, hefur verið handtekinn á nýjan leik, en hann strauk af geðsjúkrahúsi í Danmörku fyrir fimm dögum. Þangað hafði hann verið skikkaður til þess að kanna geðheilsu hans.

Stjórnarerindrekar myrtir í Írak

Al Kaída samtökin í Írak segjast hafa myrt tvo alsírska stjórnarerindreka, sem rænt var fyrir nokkrum dögum. Fullyrðing um þetta var birt á vefsíðu samtakanna, í dag.

Einn sprengjumanna sagður í haldi

Breska lögreglan réðst til inngöngu í hús í Birmingham fyrir dögun í gærmorgun og beittu rafbyssu til að yfirbuga mann sem að sögn vitnis og fjölmiðla er sagður vera Yasin Hassan Omar, einn þeirra fjögurra sem reyndu að sprengja sprengjur í jarðlestum og strætisvagni í Lundúnum fyrir viku.

Sagði íslam ekki siðmenningu

Ummæli ráðherra í ítölsku ríkisstjórninni, þess efnis að íslam væri ekki siðmenning, hefur valdið mikilli hneykslan á Ítalíu. Hafa talsmenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka fordæmt ummælin og lagt áherslu á að samræður við hófsama múslima séu lykillinn að baráttunni gegn hryðjuverkum.

Norður-Kóreumenn setja skilyrði

Fulltrúar Norður-Kóreustjórnar sögðu í gær að hún myndi þá aðeins hætta við kjarnavopnaáætlun sína ef sú ógn sem hún telur Kóreuskaganum stafa af bandarískum kjarnavopnum er fjarlægð og samskipti við Bandaríkjastjórn færð í eðlilegt horf. Frá þessu greindi suður-kóreska fréttastofan Yonhap.

Handtökur í Bretlandi

Breska lögreglan handtók í morgun einn fjórmenninganna sem gerðu misheppnaða árás á London síðasta fimmtudag. Sex aðrir hafa verið handteknir í tengslum við árásirnar síðan í gærkvöld.

Fækka hermönnum næsta vor

Forsætisráðherra Íraks vill að Bandaríkjamenn hefji fljótlega brottfluttning herafla síns frá Írak. Æðsti hershöfðingi Bandaríkjamanna segir raunhæft að byrja að fækka hermönnum næsta vor. Ibrahim Al-Jafaari, forsætisráðherra Íraks fundaði með Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna í Baghdad í morgun.

Ekk vitað hvað datt af Discovery

Tvö stykki brotnuðu af geimferjunni Discovery þegar henni var skotið á loft í Flórída í gær. Atvikinu svipar til þess sem olli því að geimferjan Columbía fórst fyrir um tveimur og hálfu ári. Discovery var loks skotið á loft í gær, eftir hálfsmánaðar töf vegna bilunar í mæli í eldsneytistanki. Þangað til í morgun var talið að allt hefði gengið snurðulaust fyrir sig.

Sjá næstu 50 fréttir